Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 13

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 13SJÓNARHÓLL Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar BÓKIN Það er ekki laust við að frumkvöðlar þurfi að vera örlítið geggjaðir. Oftar en ekki fórna þeir því öryggi og tekjum sem fylgir því að vera venju- legur launþegi til þess að elta draum sem mæl- ingar sýna að allar líkur eru á að muni ekki ræt- ast. Háleitar hugsjónir eða gróðavon – eða blanda af þessu tvennu – knýja þá áfram á þeirri löngu og erfiðu göngu að gera góða viðskipta- hugmynd að stöndugum rekstri. Það sem meira er, að þegar umfjöllun fjölmiðla um stjörnu- sprotana er skoðuð mætti halda að þeir einu sem eigi erindi við sprota- heiminn séu ofvitar og sérvitringar, hálfgerð ofurmenni eða óttalausir ólátabelgir, sem virðast næstum því gera sér það að leik að stofna risafyr- irtæki á borð við Tesla, Uber, eða Fa- cebook, eða leiddist svo námið við Harvard að þeir ákváðu að stofna nýtt stórveldi í bílskúrnum hjá foreldrum sínum. Rand Fishkin segir mjög bjagaða mynd hafa verið dregna upp af frum- kvöðlum, og hann langar að hug- hreysta allt það venjulega fólk sem vill taka stökkið og stofna fyrirtæki. Fishkin, sem er stjórnandi og einn af stofnendum markaðshugbún- aðarfyrirtækisins Moz, er höfundur bókarinnar Lost and Founder: A Painfully Honest Field Guide to the Startup World. Hann bendir þar á að flestir stofnendur sprota- fyrirtækja eru í sömu sporunum: Þeir hafa ósköp litla hugmynd um hvað þeir eru að gera og þurfa að læra hlutina jafnóðum. Hann segir líka að nær allir árangursríkir frumkvöðlar eigi sáralítið sameig- inlegt með mönnum eins og Musk, Zuckerberg eða Kalanick. Fishkin vill með bókinni bæði hug- hreysta frumkvöðla og gefa þeim hagnýt ráð. Hefur hann safnað sam- an alls kyns hagnýtri þekkingu um sprotarekstur og heilræðum um allt frá því hví hvernig má biðja fjárfesta um pening yfir í hvernig hægt er að koma sprotanum í verð sem allra fyrst. ai@mbl.is Góð ráð fyrir ráð- villta frumkvöðla Í upphafi þessa árs birti höfundur grein undir yfir-skriftinni „Um fullveldi“. Óhætt er að segja að reynthafi á fullveldisrétt í kjölfar þessara skrifa – og þá einkum í tengslum við stöðu íslenskra ríkisborgara erlendis. Í þessari grein verður fjallað um það hvað ger- ist ef íslenskur ríkisborgari lendir í aðstæðum erlendis sem kalla á viðbrögð af hálfu íslenska ríkisins og mis- munandi möguleika stjórnvalda til að gæta hagsmuna þegna sinna á erlendri grundu. Íslenskir ríkisborgarar eru flestir staddir hér á landi og falla því undir fullveldisrétt íslenska ríkisins. Ef ís- lenskir ríkisborgarar ferðast út fyrir lögsögu íslenska ríkisins falla þeir undir fullveldisrétt þess ríkis þar sem þeir eru staddir hverju sinni. Af því leiðir að umrætt ríki, svokallað móttökuríki, hefur lögsögu yfir ríkisborg- urunum, eins og sínum eigin ríkisborgurum. Aftur á móti gilda ekki alfarið sömu reglur um er- lenda ríkisborgara og ríkisborg- ara móttökuríkisins af þeirri ástæðu að erlendir ríkisborgarar eru, eins og heiti þeirra ber með sér, erlendir ríkisborgarar. Sú staða að erlendur ríkisborgari fellur undir lögsögu annars ríkis leiðir til þess að móttökuríkið getur ekki komið fram við hann eins og því sýnist, þar sem heima- landi ríkisborgarans er ekki sama hvernig komið er fram við rík- isborgara þess. Tvö tilvik hafa verið til umræðu nýverið um stöðu ís- lenskra ríkisborgara erlendis – annars vegar stöðu ís- lenskrar konu sem varð fyrir slysi á Spáni og sætti sakamálarannsókn þar og hins vegar stöðu íslensks manns sem saknað er í Sýrlandi. Þar sem báðir ein- staklingar voru staddir erlendis féllu þeir undir fullveld- isrétt annarra ríkja en þó með mismunandi hætti. Hvað fyrra tilvikið varðar virðist ljóst af fjölmiðla- umfjöllun að slys hafi átt sér stað og að spænsk yfirvöld hafi haft rökstuddan grun um meint refsivert athæfi konunnar. Af almennum reglum þjóðaréttar leiðir að hún féll undir fullveldisrétt spænska ríkisins á meðan hún dvaldi þar. Engu að síður er um íslenskan rík- isborgara að ræða og því hafði íslenska ríkið hagsmuni af því að hún nyti að minnsta kosti sömu meðferðar og spænskir ríkisborgarar í sömu stöðu, nánar tiltekið hlyti viðeigandi læknismeðferð og að mannréttindi hennar væru virt. Af þessari ástæðu létu íslensk stjórnvöld sig málið varða og heimsótti fulltrúi þeirra konuna og kann- aði að hún fengi læknismeðferð og að farið væri eftir reglum spænskra sakamálalaga. Af 5. gr. alþjóðasamn- ings um ræðissamband frá árinu 1963 áttu stjórnvöld rétt á því að kanna stöðu konunnar og ganga úr skugga um að hagsmunir hennar væru tryggðir og aðstoða hana, ef hún þess óskaði, við að njóta tiltekinna lág- marksréttinda. Hvað seinna tilvikið varðar virðist ljóst að íslenskur ríkisborgari hafi ákveðið að taka þátt í borgarastyrjöld- inni – m.ö.o. tekið með virkum hætti þátt í vopnuðum átökum stríðandi fylkinga. Í þessu tilviki er íslenskur ríkis- borgari staddur á landsvæði þar sem fleiri en einn hópur gerir kröfu til þess að fara með yf- irráð og því enginn einn aðili með óskoraðan fullveldisrétt. Í opinberri umræðu hafa íslensk stjórnvöld verið gagnrýnd fyrir aðgerðarleysi. Aftur á móti hef- ur komið fram að íslensk stjórn- völd hafa leitað atbeina ríkja sem láta sig þetta svæði varða, hvort sem um ríki á svæðinu er að ræða eða ríki sem hafa meiri áhrif í skjóli stærðar sinnar. Óhætt er að fullyrða að mjög erfitt er fyrir íslensk stjórnvöld að staðreyna atvik máls á svæði fyrir botni Miðjarðarhafs sem ekki lýtur stjórn eins tiltekins aðila og er í órafjarlægð frá Íslandi. Af framansögðu er ljóst að íslenska ríkið getur látið málefni ríkisborgara sinna varða þegar þeir yfirgefa fullveldislögsöguna. Hins vegar ber íslenska ríkinu að virða fullveldisrétt annarra ríkja og hefur það takmark- að svigrúm til að láta sig málefni íslenskra ríkisborgara varða á erlendri grundu. Með sama hætti þurfa erlend ríki að virða fullveldisrétt íslenska ríkisins þegar mál er- lendra ríkisborgara koma upp hér á landi. Sú staða leið- ir af eðli fullveldisréttarins og þeirrar staðreyndar að ríkisborgararnir falla undir fullveldisrétt annarra ríkja. Fullveldi í framkvæmd LÖGFRÆÐI Finnur Magnússon hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands ” Tvö tilvik hafa verið til umræðu nýverið um stöðu íslenskra ríkis- borgara erlendis... Þar sem báðir einstaklingar voru staddir erlendis féllu þeir undir fullveldis- rétt annarra ríkja en þó með mismunandi hætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.