Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 16

Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 16
SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Karl Wernersson verður gjaldþrota Bókunarrisi gjaldþrota Fer í samkeppni um viðskiptafarþega Milljarðar í nýjan turn Íslandsáhugi á Google fer dvínandi Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Mundi Vondi, framkvæmdastjóri Klang, segir í samtali við Viðskipta- Moggann að félagið hafi farið í gegn- um nokkrar minni hlutafjáraukn- ingar áður en kom að þessari langstærstu til þessa, sem fyrirtækin Firstminute Capital, Neoteny, Mosa- ic Ventures og Novator tóku þátt í. „Þetta gerir okkur kleift að fara í fulla framleiðslu á leiknum. Við erum 18 starfsmenn núna en stefnum að því að verða 40 fyrir árslok og halda okkur í þeirri stærð þar til leikurinn kemur út. Við höfum verið að fjár- magna undirbúningsvinnuna hingað til. Síðast fengum við samtals eina milljón dala frá Reid Hoffman, með- stofnanda Linkedin, Joi Ito, stjórn- anda Media Lab bandaríska MIT- háskólans, og Davíð Helgasyni, for- stjóra Unity Technologies. Það veitti okkur mikið traust að fá svona magn- aða gaura með okkur,“ sagði Mundi. Gefinn út árið 2020 Klang hefur þegar sent frá sér einn leik, ReRunners, sem vakti mikla athygli. „Með honum vildum við sanna okkur sem leikjafyrirtæki sem gæti sent frá sér fullbúinn leik frá a til ö. Mörg leikjafyrirtæki ná aldrei að senda frá sér fullbúinn leik. Því má segja að þar hafi fyrsti sig- urinn unnist. Með honum náðum við mikilli athygli og unnum til verð- launa.“ Mundi segir að stefnt sé að því að gefa Seed út árið 2020. „Hann verður orðinn vel sýnilegur þá, og einhverjir byrjaðir að spila hann.“ Mundi hvet- ur alla áhugasama til að skrá sig á heimasíðu leiksins. „Við erum byrj- aðir að byggja upp samfélag í kring- um leikinn sem ég mæli eindregið með að fólk kynni sér. Þeir sem verða virkastir í þessu samfélagi verða fyrstir til að fá að prófa leikinn.“ Í Seed er ný pláneta numin og hægt er að stýra mörgum persónum í einu. Klang fær hálfan milljarð í hlutafé Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íslenska leikjafyrirtækið Klang, sem þróar nú gervi- greindar-fjölspilunarleikinn Seed, tryggði sér á dög- unum fimm milljóna dala hlutafjáraukningu, jafnvirði um 500 milljóna króna. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Stefnt er að því að Flugstöð LeifsEiríkssonar ráðist í viðamiklar fjárfestingar á næstu árum til að mæta vaxandi umsvifum. Um er að ræða 30 milljarða á næstu þremur árum og samanlagt 115-125 millj- arða króna fram til ársins 2025. Ekki er dregið í efa að fjárfestaþurfi myndarlega í flugvell- inum enda hefur ferðaþjónustan tekið stakkaskiptum á skömmum tíma. Þetta eru hins vegar háar fjár- hæðir sem um er að tefla og það er ekki sjálfgefið að hið opinbera eigi að koma að málum. Það dylst engum að verulegarsveiflur geta verið í ferðaþjón- ustu og því er ekki hægt að ganga að því vísu að fjárfestingarnar verði arðbærar. Rekstur flugvalla er því áhættusamur og, eins og sést, býsna fjárfrekur. Umsvif Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru eflaust orðin það mikil að fjárfestar hafa áhuga á að leggja fé í reksturinn. Það er því skynsamlegt að leita leiða til að koma að minnsta kosti hluta af upp- byggingunni í einkaframkvæmd, til að takmarka áhættu ríkisins og draga úr fjárbindingu. Best væri þó að ríkið myndi seljaKeflavíkurflugvöll og láta fjár- festum það eftir að að taka þátt í þessari kostnaðarsömu uppbygg- ingu. Hið opinbera þarf ekki lengur að leggja hönd á plóg á þessum vettvangi. Fjármunir ríkisins myndu nýtast betur fyrir vikið og væru ekki bundnir í áhættusömum rekstri. Milljarðar í háloftin Flest ríki leggja áherslu á aðstyrkja stöðu fyrirtækja sinna í innlendri og erlendri samkeppni með því að skapa þeim eins hag- stætt rekstrarumhverfi og kostur er. Stundum er eins og stjórnvöld og stofnanir hér á landi misskilji hlutverk sitt og telji að þeim beri fyrst og fremst að setja bönd á fyrirtækjarekstur og skattleggja hann. Undanfarin ár og áratug hefurmikill fjöldi nýrra laga og reglugerða litið dagsins ljós í Evrópu sem miða að því að auka aga, gegnsæi og samkeppni, iðu- lega með auknum kvöðum, tak- mörkunum eða upplýsingargjöf af hendi fyrirtækja. Eins og gengur eru reglurnar misskynsamlegar, sumar mjög til bóta og aðrar til óþurftar, en almennt hafa fyrir- tæki tekið þeim með jafnaðargeði og innleitt möglunarlaust, enda skal hið sama yfir alla ganga. Öðru máli gegnir um reglu-verk sem innleitt er hér á landi þar sem iðulega er gengið eins langt í kvöðum eða takmörk- unum á atvinnulífið og kostur er, og jafnvel lengra en farið er fram á í nágrannaríkum. Og það þrátt fyrir að reglurnar séu upphaflega hugsaðar fyrir margfalt stærri markaði og fyrirtæki með mun meiri stærðarhagkvæmni gagn- vart kostnaðarliðum en þau ís- lensku. Þegar séríslenskar og íþyngj-andi kröfur eru lagðar á inn- lend fyrirtæki fram yfir það sem þau erlendu búa við eru stjórn- völd beinlínis að valda íslensku atvinnulífi skaða, hvort sem það er í formi kostnaðarauka eða skattlagningar. Í raun ættu stjórnvöld að leggjaáherslu á að ganga eins skammt og kostur er í að leggja álögur á innlend fyrirtæki, þannig að regluverkið einkennist af aga og skýrleika en uppfylli um leið alþjóðlegar kröfur og skuldbind- ingar. Þannig geta stjórnvöld stuðlað að aukinni samkeppn- ishæfni til hagsbóta fyrir íslenskt atvinnulíf og, um leið, íslenskan almenning. Veljið ekki séríslenskt Gjaldþrotaskiptum á Hraðpeningum er lok- ið. Allar kröfur, 123 milljónir, voru gerðar upp. Gjaldþrota- skiptum lokið 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.