Morgunblaðið - 26.05.2018, Síða 3

Morgunblaðið - 26.05.2018, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 manni í bænum. Helstu kostir mínir sem knattspyrnukonu felast í styrk og hraða. Ég hugsa að það sé frá strákun- um komið, þeir eru sterkari líkamlega og ég þurfti að vera sterk til þess að standa almennilega í þeim á æfingum í gamla daga. Það gerðist eiginlega bara óvart að ég valdi fótboltann fram yfir frjálsar íþróttir. Ég var mjög lengi að gera upp á milli. Ég reyndi að halda í báðar íþróttirnar, þrátt fyrir að fólk í kringum mig hafi hvatt mig reglulega til þess að velja á milli. Þegar meist- araflokkurinn komst upp í úrvalsdeild- ina þurfti ég að fara að biðja um leyfi til þess að fara og keppa í frjálsum og þá varð þetta flóknara. Það mætti því segja að fótboltinn hafi í raun bara val- ið mig.“ Eva segir frjálsar íþróttir hafa hjálpað mikið til við að móta hana sem knattspyrnukonu. „Frjálsar íþróttir voru frábær grunnur fyrir mig sem íþróttamann. Andlega gerðu þær mér mjög gott, þetta er einstaklingsíþrótt og það þarf að vera sterkur og með sjálfstraust til þess að ná árangri þar. Þegar ég var yngri var ég í raun í öllum íþróttum en ef ég horfi bara á kúluvarpið sem dæmi byrjaði ég ung að lyfta lóðum og það hefur hjálpað mér með styrk og annað tengt því.“ Mikil uppbygging á Selfossi Eva er á fótboltastyrk í Bandaríkj- unum við Kansas-háskóla og leggur stund á arkítektúrnám. „Ég set mér yfirleitt ekki mjög há- leit markmið. Núna er ég að læra arkí- tektúr og ég set námið í fyrsta sæti. Það fer hins vegar mikill tími í fótbolt- ann líka, það er mikil samkeppni hérna úti um að komast í liðið. Aðstæðurnar hérna úti eru eiginlega of góðar og ég tel að það sé erfitt að æfa í betra um- hverfi í kvennafótbolta í heiminum í dag. Það er algjör draumur að vera úti í Bandaríkjunum, hérna er allt til alls og það eru allir boðnir og búnir að gera allt fyrir mann.“ Selfoss gerði frábæra hluti á ár- unum 2014 og 2015 og fór alla leið í bikarúrslit bæði árin en markmiðið í ár er að byggja upp stöðugt úrvals- deildarlið. „Markmiðið hjá okkur er að bæta leik liðsins og halda áfram að læra af þeim leikjum sem við erum búnar að spila. Við viljum sýna það og sanna að við eigum heima í úrvalsdeildinni og stærsta markmið sumarsins er að tryggja veru Selfoss í deild þeirra bestu. Í dag erum við með mjög ungt lið, þetta eru meira og minna stelpur sem eru að koma upp úr 2. og 3. flokki og það er stærsti breytingin frá Sel- fossliðinu fyrir þremur árum sem fór í tvígang í bikarúrslit. Það væri vissu- lega frábært að leika það eftir í sumar. Það mun ekki koma okkur á óvart ef við förum alla leið í bikarnum en við erum fyrst og fremst að byggja upp nýtt Selfosslið og við erum allar með- vitaðar um það,“ sagði miðjumaðurinn hress að lokum. fingum með strákunum Lið umferðarinnar 4. umferð í Pepsi-deild kvenna 2018 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Einkunnagjöfin 2018 Þessir eru með flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Cloé Lacasse, ÍBV 6 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 5 Ariana Calderón, Þór/KA 4 Clara Sigurðardóttir, ÍBV 4 Eva Lind Elíasdóttir, Selfossi 4 Lára Kristín Pedersen, Stjörnunni 4 Selma Sól Magnúsdóttir, Breiðabliki 4 Ásdís Karen Halldórsdóttir, Val 3 Berglind Björg Þorvaldsd., Breiðabliki 3 Crystal Thomas, Val 3 Elín Metta Jensen, Val 3 Fatma Kara, HK/Víkingi 3 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 3 Sandra María Jessen, Þór/KA 3 Stefanía Ragnarsdóttir, Val 3 Berglind Björg Þorvaldsd., Breiðabliki 6 Sandra María Jessen, Þór/KA 5 Ásdís Karen Halldórsdóttir, Val 4 Stephany Mayor, Þór/KA 4 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 3 Crystal Thomas, Val 3 Elín Metta Jensen, Val 3 Áslaug Munda Gunnlaugsd., Breiðabliki 2 Cloé Lacasse, ÍBV 2 Eva Lind Elíasdóttir, Selfossi 2 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 2 Katrín Ásbjörnsdóttir, Stjörnunni 2 Kristín Erna Sigurlásdóttir, ÍBV 2 Marjani Hing-Glover, FH 2 Rio Hardy, Grindavík 2 Stefanía Ragnarsdóttir, Val 2 Markahæstar Breiðablik 22, Þór/KA 20, Valur 20, Lið: Leikmenn: 4-5-1 Hrafnhildur Agnarsdóttir KR Allyson Haran Selfossi Lillý Rut Hlynsdóttir Þór/KA Adrienne Jordan ÍBV Steffi Hardy Grindavík Stefanía Ragnarsdóttir Val Karitas Tómasdóttir Selfossi Alexandra Jóhannsdóttir Breiðabliki Andrea Rán Hauksdóttir Breiðabliki Eva Lind Elíasdóttir Selfossi Rio Hardy Grindavík 2 ÍBV 20, Stjarnan 13, HK/Víkingur 13, Selfoss 12, KR 10, Grindavík 9, FH 7  Chris Paul, einn mikilvægasti leik- maður Houston Rockets, er tæpur fyr- ir sjötta leik liðsins við ríkjandi meist- ara Golden State Warriors í undanúrslitum NBA-körfuboltans í Bandaríkjunum. Paul fékk aðhlynningu frá sjúkrateymi Houston fram á mið- nætti eftir 98:94-sigurinn í fimmta leiknum í fyrrinótt. Houston komst í 3:2 og getur tryggt sér sæti í loka- úrslitum með sigri á útivelli aðfaranótt sunnudags. Paul skoraði 20 stig í leiknum en Eric Gordon var hæstur með 24 stig. Kevin Durant skoraði 29 stig fyrir Golden State, Klay Thomp- son 23 og Stephen Curry 22.  Atvinnukylfing- urinn Birgir Leifur Hafþórsson er í 16.-24. sæti eftir tvo hringi á Czech Challenge-mótinu í Tékklandi en það er liður í Áskor- endamótaröð Evr- ópu. Birgir lék á 70 höggum í gær, tveimur undir pari. Hann er samtals á fimm höggum undir pari og fór auðveldlega í gegnum nið- urskurðinn. Axel Bóasson komst hins- vegar ekki áfram en hann lék á sam- tals sjö höggum yfir pari.  Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafnaði í 7.-11. sæti á Parnu Bay-mótinu í golfi í Eist- landi sem lauk í gær en mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Guð- mundur lék lokahringinn á þremur höggum undir pari og lék hringina þrjá á 211 höggum eða á samtals sjö högg- um undir pari.  Karlalið Breiðabliks í körfuknatt- leik, sem vann sér sæti í úrvalsdeild- inni í vor, heldur áfram að safna liði fyrir átökin á næstu leiktíð. Arnór Her- mannsson hefur samið við Breiðablik um að leika með liðinu á komandi leik- tíð. Arnór er tvítugur að aldri og kem- ur til Breiðabliks frá KR, sem hann hefur leikið með allan sinn feril. Arnór hefur spilað með öllum yngri lands- liðum Íslands.  Borðtennismaðurinn Magnús Gauti Úlfarsson komst í gær upp úr riðli á Norður-Evrópumótinu í borðtennis. Mótið fer fram Í Haapsalu í Eistlandi og lýkur nk. sunnudag. Magnús leikur í 16 manna úrslitum í dag og mætir þá Alex Naumi frá Finnlandi. Þeir Magnús Gauti og Davíð Jónsson munu einnig taka þátt í tvenndarkeppninni en þeir munu spila með konum frá Noregi.  Spænskir dómstólar dæmdu kól- umbíska knattspyrnumanninn Rada- mel Falcao í 16 mánaða skilorðs- bundið fangelsi í gær fyrir skattsvik. Hann var einnig sektaður um níu millj- ónir evra. Falcao fer ekki í fangelsi, þar sem dómurinn er undir tveimur árum.  Rakel Hönnudóttir, landsliðskona í knattspyrnu, sagði í viðtali við mbl.is í gær að hún væri búin að jafna sig eftir að hafa tognað aftan í læri. Hún missti af fjór- um leikjum Limhamn Bunkeflo í sænsku úr- valsdeildinni vegna meiðslanna en reiknar með að taka þátt í næsta leik sem er gegn Ro- sengård á fimmtudag- inn kemur. Eitt ogannað fyrsta ár á LPGA-mótaröðinni var í fyrra. Hún þarf að vera þolinmóð og vinnusöm og sjá hverju það skilar.“ Æfði einnig tennis Við Íslendingar getum vafalaust lært eitt og annað af Svíum þegar kem- ur að afreksíþróttum. Svíar hafa átt fjölmargt heimsklassa íþróttafólk í ýmsum greinum. Í golfinu stendur Sö- renstam fremst en einnig kemur Hen- rik Stenson frá Svíþjóð svo einhver sé nefndur. Eini karlinn frá Norðurlönd- unum sem unnið hefur risamót í golfi. Spurð út í árangur Svía og vinnubrögð segir Sörenstam fjölbreytta íþrótta- iðkun vera í boði fyrir börn í Svíþjóð. „Svíar eru mikil íþróttaþjóð. Ég myndi segja að árangurinn væri íþróttaiðkun í grunnskólum að þakka, sérsamböndunum og þeirra metnaði varðandi barna- og unglingastarfið. Börn og unglingar fá tækifæri til að æfa ýmsar íþróttir undir handleiðslu fagfólks. Ég er þeirrar skoðunar að hollt sé að prófa ýmsar íþróttir. Það gerðum við í Svíþjóð þegar ég var að alast upp og sjálf æfði ég til að mynda tennis. Um sextán ára aldurinn gerði ég það upp við mig að tími væri kominn til að velja íþróttagrein. Hér í Banda- ríkjunum er mælt með því að velja íþróttagrein um 12 ára aldurinn sem mér þykir vera of snemmt. Ég er ekki fylgjandi slíkri sérhæfingu hjá krökk- unum en skoðanir um þetta eru skipt- ar.“ Aðstoðar stúlkur í golfi Eflaust segir það nokkuð um orð- spor Sörenstam, og hversu mikillar virðingar hún nýtur, að áratug eftir að hún hætti sem afrekskylfingur eru enn átta styrktaraðilar sem vilja vinna með henni. Í hvað hefur Sörenstam eytt tíma sínum eftir að keppnisferlinum sleppti? „Ég er viðloðandi golfíþróttina. Samtök sem ég á aðkomu að hafa stað- ið fyrir sex golfmótum fyrir ungmenni víða um heim á ári og þau verða fljót- lega sjö. Við reynum að vekja áhuga stúlkna á golfíþróttinni en mótin hafa verið haldin í Evrópu, Kína, Suður- Ameríku og Bandaríkjunum. Ég hef eytt talsverðum tíma með ungum stúlkum í golfi og reyni að búa til tæki- færi fyrir þær. Auk þess er ég með fatalínu og hef komið að hönnun golf- valla. Við þetta má bæta að ég er enn í samstarfi við átta styrktaraðila og sinni ásamt þeim ýmsum góðgerðamálum. Ég hef því nóg fyrir stafni og hef gam- an að því sem ég er að gera. Á morgun mun ég til dæmis fara til Minneapolis til að vera viðstödd opnun golfvallar. Ég er spennt fyrir því enda sá fyrsti völlurinn í Bandaríkjunum sem ég á þátt í að hanna.“ Náði lengra en hún bjóst við Maður þarf ekki að ræða lengi við Sörenstam til að fá þá tilfinningu að hún sé hógvær og jarðbundin þrátt fyr- ir öll afrekin. Hefur hún verið heiðruð á ýmsan hátt fyrir afrek sín eins og sjá má í samantekt sem fylgir þessu við- tali. Varla er hægt að nota annað orð en goðsögn varðandi hana sem kylfing. Gera allar þessar viðurkenningar og vegtyllur mikið fyrir hana? „Ég er mjög stolt af afrekum mín- um. Þegar ég lít til baka á feril minn sem kylfingur þá var hann frábær og ég lagði mikið á mig til að svo mætti verða. Helgaði mig íþróttinni í langan tíma. Ég náði þó lengra en ég átti von á. Því fylgir notaleg tilfinning þegar maður hittir kylfinga og þeir þekkja minn feril. En svona frá degi til dags þá lít ég frekar á mig sem móður, eig- inkonu og athafnakonu.“ Sögulega góður hringur Sörenstam varð fyrst kvenna til að spila hring undir 60 höggum í móti á stóru mótaröðunum. Hún lék Moon Valley-völlinn á 59 höggum á Standard Register-mótinu. Hún fékk þrettán fugla og þar af fugl á fyrstu átta hol- unum. Vert er að geta þess að þá höfðu ekki orðið jafn miklar framfarir í hönn- un á boltum og kylfum og síðar varð. Hvernig tifinning fylgir því að spila á 59 höggum í móti, svona fyrir okkur sem aldrei munum kynnast því? Nú hlær sú sænska en draumahringurinn er henni greinilega í fersku minni. „16. mars 2001 virtist allt vera svo auðvelt á golfvellinum. Mér fannst ég alltaf vera með rétta kylfu í höndunum, fannst ég ávallt geta slegið á rétta staði á flötunum og þótti holan vera risastór. Meðan á hringnum stóð var spila- mennskan áreynslulítil. Ég mun alltaf horfa til baka og velta fyrir mér hvern- ig ég fór að þessu en um leið velti ég því fyrir mér hvers vegna ég gat ekki gert þetta á hverjum degi. Ég hugsaði með mér að þetta gæti ég afrekað aftur en það er ekki einfalt. Þessi hringur er einn af hápunktunum á mínum ferli. Það er á hreinu,“ sagði Annika Sö- renstam í samtali við Morgunblaðið en hérlendis mun hún hitta bæði al- menna kylfinga sem og afrekskylf- inga 10. og 11. júní. ppskrift að árangri  Fædd 9. október 1970 í Bro í Svíþjóð.  Einn allra sigursælasti kylfingur heims. Sigraði tíu sinnum á risamótunum sem eru fimm talsins hjá kon- unum. Sigraði á fjórum þeirra en náði best 2. sæti í því fimmta. Sigraði sjötíu og tvisvar á LPGA-mótaröðinni og 17 sinnum á LET-Evrópumótaröðinni.  Tekin inn í Golf Hall of Fame árið 2003.  Íþróttakona ársins í Svíþjóð 2002 og 2004.  Íþróttakona ársins í heiminum hjá AP-fréttastofunni 2003, 2004 og 2005.  Handhafi Laureus-verðlaunanna sem íþróttakona árs- ins 2004 og tilnefnd til þeirra í þrjú önnur skipti.  Á meðal fyrstu kvenna til að fá inngöngu í Royal and Ancient golfklúbbinn í St Andrews.  Fyrst kvenna til að spila hring undir 60 höggum. Afrekskylfingurinn Annika Sörenstam

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.