Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Blaðsíða 34
LESBÓK Kristín Reynisdóttir veitir leiðsögn á sunnudag kl. 17 um sýningusína í Hallgrímskirkju, Synjun, og Prodhi Manisha, flóttamaður sem er nýkominn með landvistarleyfi, segir einnig frá reynslu sinni. Kristín fjallar um Synjun 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018 Írski tónlistarmaðurinn Alexander Anyaeg-bunam, sem gengur undir listamannsnafn-inu Rejjie Snow, er einn þeirra erlendu tón- listarmanna sem koma fram á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni í nóvember. Snow er 24 ára og gerði útgáfusamning við bandaríska plötufyrirtækið 300 Entertainment fyrir tveim- ur árum. Í febrúar síðastliðnum kom svo út fyrsta breiðskífan hans, Dear Annie, sem hlotið hefur lofsamlega dóma og þá m.a. fullt hús stiga hjá tónlistartímaritinu NME og fjórar stjörnur af fimm mögulegum í enska dagblaðinu Guardi- an. Snow er rappari og söngvari og ólst upp í Drumcondra, úthverfi í norðurhluta Dyflinnar á Írlandi. Spurður að því hvernig hafi verið að alast upp þar segir hann að það hafi verið býsna erfitt, mikið um slagsmál og vandræðageml- inga. „En mér fannst mjög gaman í fótbolta sem hélt mér frá vandræðum,“ segir hann. Hann hafi dreymt um að verða atvinnumaður í knattspyrnu og á átjánda aldursári hlaut hann námsstyrk út á knattspyrnuhæfileika sína við framhaldsskóla í Flórída í Bandaríkjunum. Hann fluttist þangað og allt stefndi í að hann yrði atvinnumaður en draumurinn rættist ekki þar sem hann skorti nauðsynlegan aga og hæfi- leika í atvinnumennskuna, að eigin sögn. Hann valdi því tónlistina sem togaði æ meir í hann. Snow segist hafa rappað og samið tónlist allt frá 17 ára aldri. „Ég var að fíflast við að rappa, pabbi minn var mjög hrifinn af hipphoppi og var alltaf að rappa,“ segir hann. Innblástur víða að Snow er oftast sagður rappari en blaðamanni þykir það fullmikil einföldun eftir að hafa hlustað á plötuna Dear Annie. Snow er hipp- hopp-tónlistarmaður, rappari og sálarsöngvari með meiru. Eða hvernig lýsir hann tónlist sinni sjálfur? „Það er erfitt að setja hana í ákveðinn flokk því ég sæki innblástur svo víða, t.d. í popp- og sálartónlist og ég hef líklega alltaf flakkað milli ólíkra stíla og búið til einhvers konar bræðing úr þeim. Það sem skiptir mestu máli er að tón- listin hreyfi við manni,“ svarar Snow. En hver er þessi Annie sem vísað er til í titli plötunnar og nokkrum lögum hennar? „Hún er skálduð persóna, hugarburður minn og sköpuð til að segja ákveðna sögu,“ svarar Snow og spurður að því hvort rauðhærða stúlkan á umslagi plötunnar sé Annie segir hann svo ekki vera. Vinur hans hafi bent honum á þetta tiltekna listaverk og honum hafi þótt áhugavert að nota það á umslagið. Heyra má að Snow er áhuga- maður um myndlist og hann segist hafa stundað hana lengi vel, m.a. gert götulistaverk og teiknað mikið. „Ég hef gaman af því að skapa og nýt þess að teikna, geri það nánast daglega,“ segir hann. Gott samstarf Á Dear Annie starfaði Snow með framleiðand- anum Rahki sem hlotið hefur Grammy-verð- laun og vann m.a. með bandaríska Pulitzer- verðlaunahafanum Kendrick Lamarr að nokkrum lögum á plötunni To Pimp a Butt- erfly. Snow er spurður að því hvernig hann hafi landað svo þekktum og eftirsóttum fram- leiðanda og segist hann hafa fengið lista með nöfnum framleiðenda frá plötufyrirtækinu, 300 Entertainment, og strax sagst vilja starfa með Rahki. „Ég átti ekki von á því að Rahki myndi svara mér en hann gerði það og sagðist gjarnan vilja vinna með mér,“ segir Snow. –Hann hefur þá væntanlega komið með margar góðar hugmyndir og bætt lögin þín? „Já, mjög margar hugmyndir og þess vegna gekk samstarfið upp, við höfðum það sameig- inlega markmið að gera plötuna eins góða og mögulegt væri og byggðum hana upp í samein- ingu,“ svarar Snow. Lítur til gamalla meistara –Platan þín er róleg og falleg að stórum hluta, rómantísk og það er meira að segja sungið á frönsku í lögum sem minna á t.d. Serge Gains- bourg og aðra rómantíska söngvara af gamla skólanum. Hlustarðu mikið á slíka tónlist? „Ekki mikið kannski en þetta er samt tónlist sem ég hef hlustað á og sótt innblástur í. Þetta er góð tónlist og Serge Gainsbourg er með virtustu tónlistarmönnum. Ég lít upp til slíks fólks, t.d. Michael Jackson, en þegar ég var að gera plötuna vildi ég að hún væri þroskuð og að fólk ætti líka auðvelt með að tengja við hana og þá líka fólk á mínum aldri,“ segir Snow. –Var einhver útgangspunktur eða ákveðið þema sem þú hafðir í huga áður en þú hófst upptökur á henni? „Já, ég held að grunnþemað og -umfjöll- unarefnið hafi alltaf verið ástin, að allt ætti að snúast um hana. Ástin veitir mér innblástur í tónlistarsköpuninni.“ Blaðamaður bendir hinum dimmraddaða Snow á að eftir 15 ár eða svo verði hann líklega kominn niður á radddýpi Barry White og hann hlær við. „Ég vona það því mig langar eigin- lega ekki að rappa lengur heldur syngja, að verða söngvari. Mér finnst rappið hamla mér og að ég geti tjáð mig betur með söng,“ segir hann. Slæm reynsla á Madonnu-túr Þó vel gangi núna hjá Snow hefur það ekki allt- af verið þannig á tónlistarferlinum. Popp- drottningin Madonna fékk hann til að hita upp fyrir sig á tónleikaferð hennar, Rebel Heart, sem hófst í september 2015 og lauk í mars 2016 og hefur Snow sagt frá því að tónleikar hans hafi verið algjörlega misheppnaðir. Hvað fór úrskeiðis? „Eiginlega allt,“ svarar Snow. „Ég átti bara fimm lög og þau voru ekki al- mennilega hljóðblönduð, tróð upp frammi fyrir 20 þúsund gestum á stórum íþróttaleikvangi og rappaði eins og ég ætti lífið að leysa og hélt að ég væri að standa mig frábærlega. En fólk tengdi ekki við þetta, púaði á mig og henti í mig drasli og þetta var alveg klikkað! Ég komst í tilfinningalegt upp- nám á sviðinu en launin sem ég fékk fyrir þetta urðu til þess að ég ákvað að klára verkefnið,“ segir Snow kíminn. Það hafi engu að síður ver- ið mikill heiður að fá að hita upp fyrir sjálfa Madonnu. „Mér finnst ennþá dálítið fyndið að hún skyldi biðja mig um að gera þetta, af öllu fólki í heiminum!“ segir hann og hlær. Spenntur fyrir Airwaves En verður Snow einn síns liðs eða með hljóm- sveit á Iceland Airwaves? „Ég veit það ekki, ég þarf að fá að vita meira um tónleikastaðinn en kannski kem ég bara fram með plötusnúði. Ég held að það myndi virka vel,“ segir hann. Snow hefur aldrei komið til Íslands, segist afar spenntur fyrir heimsókninni og hvetur fólk til að mæta á tónleikana og skemmta sér með honum. „Ég er Íri og hef því gaman af því að skemmta mér,“ segir hann sposkur. Einhvers konar bræðingur Írski tónlistarmaðurinn Rejjie Snow kemur fram á Iceland Airwaves. Hann vann með Grammy-verðlaunahafanum Rahki að fyrstu breiðskífu sinni, Dear Annie, sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ’Ég komst í til-finningalegt upp-nám á sviðinu enlaunin sem ég fékk fyrir þetta urðu til þess að ég ákvað að klára verkefnið. Írski tónlistarmaðurinn Rejjie Snow, réttu nafni Alexander Anyaegbunam, er ungur tón- listarmaður á uppleið og hefur hlotið mikið hrós fyrir fyrstu breiðskífu sína, Dear Annie.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.