Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Side 40
SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2018
RELEVE Model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 285.000,-
L 250 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
SAVOY Model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 395.000,-
ETOILE Model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 429.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 465.000,-
„Sniglabandið hefur á rúmlega þrjátíu
ára ferli sínum komið víða við, en eitt af
því sem hefur fylgt sveitinni alla tíð er
tónlist The Band. The Band hefur átt
sinn sess í hjörtum okkar og nú langar
okkur að votta þessum höfðingjum
virðingu okkar með sérstökum tón-
leikum,“ segir Skúli Gautason, liðs-
maður Sniglabandsins, en á tónleik-
unum í Bæjarbíói verða leikin bestu
lögin af tónleikunum The Last Waltz,
sem voru kveðjutónleikar The Band árið 1976.
Hljómsveitin The Band var um margt merkileg. Hún
gat sér gott orð sem meðleikssveit söngvaranna Ronnie
Hawkins og Bob Dylan. Hún starfaði þá reyndar undir
öðrum nöfnum, en Bob Dylan kallaði hana alltaf einfald-
lega „The Band“ og það nafn festist við hana. Eftir sam-
starfið með Bob Dylan gaf hljómsveitin út nokkrar plöt-
ur og varð þekkt og vinsæl. Þeir félagar ákváðu að segja
nóg komið árið 1976 og héldu veglega tónleika, The Last
Waltz, í San Francisco ásamt fjölda góðra gesta. „Kvik-
myndaleikstjórinn Martin Scorsese tók tónleikana upp
og varð úr því kvikmynd sem að margra mati er besta
tónleikamynd allra tíma,“ segir Skúli.
Spurður hvað sé svona merkilegt við The Band svarar
Skúli: „Það er kannski merkilegast hversu lítið er merki-
legt við sveitina. Hún var alls ekki frumleg, ætli við get-
um ekki kallað þetta hillbillíkántrírokk, en það sem gerir
tónlistina góða er einlægnin og hjartað. Það er oft þannig
að besta tónlistin er ekki endilega sú með flóknustu
hljómasamsetningunum. Ég hef verið lengi í bransanum
og verð að viðurkenna að ég er orðinn ansi leiður á sumu
sem ég hef verið að spila en það á ekki við um The Band.
Tónlistin þeirra er alveg tímalaus.“
Eins og fyrirmyndirnar fær Sniglabandið til sín fjölda
góðra gesta á tónleikunum og er vel í lagt.
Hljómsveitin The Band. Að sögn Skúla Gautasonar er það einlægnin og hjartað sem gerir tónlist sveitarinnar svona góða.
Tímalaust Band
Sniglabandið heiðrar kanadísk/bandarísku hljómsveitina The Band með
tónleikum í Bæjarbíói í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30.
Skúli Gautason
GAMLA FRÉTTIN
Sumartískan 1958
Gráblár jerseykjóll, með 7/8 síddar jakkanum, þótti
mjög klæðilegur götuklæðnaður sumarið 1958.
Glaðvært sumarskap ríkti í
annars frekar dimmum og
drungalegum salarkynnum
Sjálfstæðishússins í Reykjavík í
maíbyrjun 1958 þegar konur
komu saman til að kynna sér
sumartískuna. Að þessari
fyrstu tískusýningu sumarsins
stóðu þær frú Bára Sigurjóns-
dóttir, sem sýndi sumarhatta
og kjóla og frú Guðrún Stef-
ánsdóttir, sem sýndi kápur,
kjóla og dragtir.
Í frétt Morgunblaðsins kom
fram að sumartískan væri
mjög fjölbreytt, bæði hvað
gerð og lit snertir. „Kjólarnir
eru í sterkum litum, efnin
mikið mynstruð. Svarta dragt-
in er aftur í tízku, ýmist með
víðum, nokkuð síðum jakka
eða mjög aðskornum stutt-
um. Kápurnar eru yfirleitt víð-
ar og oft felldar í bakíð, – flest-
ar úr tweed-efnum. Kjólarnir
eru flestir úr svokölluðu „cot-
ton-satin“, sem hefur þann
góða eiginleika að það þolir
mjög vel þvott. Kvöldkjólarnir
eru margir með balloonpilsi
og sumir eru með „spútníksn-
iði“. Hattarnir eru úr pana-
mastrái, sem er handleikið
eins og efni og í öllum regn-
bogans litum, einnig eru þeir
úr rifsi, og öðrum efnum, ým-
ist með stórum eða litlum
börðum.“
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Lína Langsokkur
sterkasta stelpa í heimi
W. Axl Rose
söngvari Guns N’ Roses
Svavar Austmann
bassaleikari Sólstafa