Fréttablaðið - 09.07.2018, Page 6

Fréttablaðið - 09.07.2018, Page 6
Berghlaup úr Fagraskógarfjalli í Hítardal Mildi þykir að enginn var við veiðar þar sem skriðan féll en þar eru vinsælir veiðistaðir. Á svæðinu sem nú er hulið var áður að finna góða hrygningar- og uppeldisstaði laxa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Vísindamenn frá Veðurstofunni og Hafrannsóknastofnun voru við mælingar í Hítará um helgina. NÁTTÚRUHAMFARIR Afleiðingar skrið- unnar sem féll úr Fagraskógarfjalli í Híta- rdal eru óljósar. Stærsta skriðan féll aðfaranótt laugardags en enn eru smærri skriður að falla. Góðir veiðistaðir Hít- arár voru á svæðinu þar sem skriðan fór yfir. Skriðan hindrar að áin renni eftir sínum forna far- vegi. Lón myndaðist við jaðar skriðunnar en í gær hafði vatns- flaumurinn fundið sér nýjan farveg og rennur hann nú í ána Tálma. „Það vantar í ána á einhverjum tíu kílómetra kafla. Það fór beitiland þarna undir en stærsta málið er laxveiðin og hvernig henni reiðir af. Það er einnig óljóst með vatnsskemmdir þegar áin er komin í Tálma. Farvegurinn ræður senni- lega ekki við þetta. Þó það sé mikið vatn í ánni núna þá er þetta ekki neitt miðað við vorleysingar,“ segir Finnbogi Leifs- son, bóndi í Hítardal. „Ef haugurinn verður látinn kyrr þá eru allavega þrír bæir sem missa ána. Það er mögulega hægt að grafa ána í sinn gamla farveg en það er gríðarleg vinna. Það er ekki á færi eins veiðifélags að fara í að moka þessu burt,“ segir Ólafur Sig- valdason, formaður Veiðifélags Hítarár. Ljóst er að gífurlegt tjón hefur orðið en afar ósennilegt er að nokkuð fáist bætt þar sem um náttúruhamfarir er að ræða. Vátryggingafélög undanskilja slík tjón í skilmálum sínum. „Eins lengi og það er ekkert tjón á vátryggðum eignum þá er þetta atburður sem kemur ekki inn á okkar borð. Sam- kvæmt okkar bestu vitund, þá varð ekkert slíkt tjón þarna,“ segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Nátt- úruhamfaratryggingar Íslands, áður Við- lagatrygginga Íslands. Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Hafrannsóknastofnun voru að störfum á svæðinu um helgina. Of snemmt er að segja til um endanleg áhrif hamfaranna. „Við fórum í [fyrradag] og litum á þessi ósköp. Þetta er atburður á skala sem við höfum ekki séð fyrr. Það er náttúrulega ljóst að þetta mun hafa mikil áhrif á líf- ríki árinnar,“ segir Sigurður Már Einars- son, líffræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun. Sigurður segir að skriðan hafi farið yfir góð hrygningar- og uppeldissvæði fyrir laxa. Þá hafi fleiri slík svæði þornað upp. Svæðið sem áin rennur nú um sé ekki eins gott. „Það á alveg eftir að meta það hvort möguleiki sé að koma henni aftur í upp- runalega farveginn. Það verður mjög dýrt og spurning hvort það sé hægt yfir- höfuð. Þetta kemur til með að hafa áhrif á hlunnindi margra bæja,“ segir Sigurður. „Við erum í góðu samstarfi við yfir- völd og höfum verið í samskiptum við bændur á svæðinu. Við munum funda á morgun vegna þessa og fara vel yfir stöðuna,“ segir Jón Þór Ólason, formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur, en félagið er leigutaki Hítarár. Hann segir að hollið sem hafi lokið veiðum í gær hafi veitt vel en framhaldið sé óljóst. „Við höfum átt í góðu sambandi við veiðifélagið. Hugur okkar er hjá Veiði- félagi Hítarár og bændum á svæðinu. Hítardalur er algjör perla og þetta mun hafa mikil áhrif á hann,“ segir Jón Þór. Afdrif laxveiði í Hítará er stærsta málið Margra mannhæða hátt lag af aur og grjóti breiddi sig yfir hluta Hítarár þegar skriða féll úr Fagraskógarfjalli aðfaranótt laugardags. Gífurlegt tjón varð á beitar- og veiðilöndum. Alls óvíst er hvort hægt er að moka framburðinum til svo áin renni í sinn gamla farveg. Jóhann Óli Eiðsson joli@frettabladid.is Sigtryggur Ari Jóhannson sigtryggur@frettabladid.is Stórt lón myndaðist þar sem Hítará mætti aurnum. Áin fann sér farveg framhjá niður í Tálma. 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -C D B C 2 0 5 6 -C C 8 0 2 0 5 6 -C B 4 4 2 0 5 6 -C A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.