Fréttablaðið - 09.07.2018, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Guðmundar
Brynjólfssonar
BAKÞANKAR
Veisluþjónusta
Sjá úrval veislubakka
á www.joifel.is
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Pabbi át flugur.“ Þannig hefst einþáttungurinn Knall eftir eitt okkar besta leikritaskáld,
Jökul Jakobsson. Þetta er dásamlegt
upphaf á skemmtilegu en líka ögn
harmrænu verki.
Einhverjum árum áður en Jökull
var á dögum reit gríska skáldið
Aristófanes leikritið Vespurnar
(gr. Σφήκες). Það verk vann til
verðlauna árið 422 fyrir Krists burð
– því er það ekki útilokað með öllu
að flugur vinni leiki.
Þetta segi ég ekki út í loftið heldur
vegna þess að mikið fár var sett á
fyrir einhverjum dögum vegna HM-
flugnanna sem ýmist mátti ætla að
ætu íslensku leikmennina lifandi
og væru þeim þannig hættulegri
en nokkurt fótboltalið. Ellegar þær
myndu stífla öll vit landsliðsmanna
svo úr yrði harmleikur. Heldur
meiri en sá sem varð.
Nú mun einhverjum um það
kunnugt að HM er enn í gangi.
Lauk sum sé ekki, merkilegt nokk,
með tapi Íslands fyrir rússneskum
mýflugum. Vegna landfræðilegrar
staðsetningar, síðustu daga, hefur
mér orðið ljóst að enn er HM-flug-
an á sveimi. En nú ber svo við að
hún þykir ekki lengur mikilvægari
eða hættulegri andstæðingur en
sjálf knattspyrnuliðin – þau sem
enn tóra í keppninni. Mér sýnist
þeir fjölmiðlar sem ég fylgist með
hér í útlöndum vera fullkomlega
áhugalausir um flugurnar í Rússa-
veldi. Samt hafa engir miðlar birt
fréttir af hruni rússneska mýflugna-
stofnsins – enda sér maður sveim-
inn þegar maður horfir á leikina.
Má vera að þessi himinhrópandi
þögn um flugurnar, nú þegar
dregur nær endalokum sparksins,
sé sú að einungis Íslendingar lutu
í gras fyrir flugunum? Enda bara
Íslendingar sem eru hræddir við
flugur. Og bara íslenskt leikskáld
töfrar fram bæði skop og harm í
þessum orðum: „Pabbi át flugur.“
Flugur
0
9
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
6
-A
1
4
C
2
0
5
6
-A
0
1
0
2
0
5
6
-9
E
D
4
2
0
5
6
-9
D
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K