Fréttablaðið - 24.07.2018, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Söngvarinn, rapparinn og upptökustjórinn Trausti býr og starfar norður á Grenivík. Hann gaf út plötuna Þrýstingur í byrj-un mánaðar en þar snýr
hann tökkum, rappar og syngur
sjálfur. Með honum á plötunni
eru nokkrir góðir gestir – Arnar úr
Úlfur Úlfur til dæmis og má kannski
segja að Trausti sé falinn demantur í
rappsenunni íslensku.
„Ég er bara niðri í kjallara að gera
taktana og líka að taka mig upp.
Ég tek sjálfan mig sem sagt upp og
mixa líka og mastera,“ segir Trausti
og jánkar því hlæjandi þegar blaða-
maður spyr hvort það sé ekki bara
friður og ró og lítið um truflanir við
að taka upp tónlist fyrir norðan.
„Þegar ég var í sjötta eða sjöunda
bekk þá var bróðir minn með eitt-
hvert eldgamalt forrit sem heitir
Mixcraft eða álíka – þar gat maður
gert takta. Þetta voru alls engir hip-
hop-taktar heldur bara eitthvert
prump en þarna kynntist ég því að
setja saman hljóð og öllu sem því
fylgir. Ég var bara að dunda mér við
þetta þangað til svona í byrjun 2016,
þá fór ég að taka þetta af alvöru og
læra hvernig ég gæti gert tónlist og
látið hana hljóma betur. Ég byrjaði
fyrst að rappa með strákum sem ég
var með í grunnskóla eftir að ég hitti
þá aftur eftir langa fjarveru á Akur-
eyri. Við byrjuðum að taka upp og
svona. Ég var alltaf mikið að skrifa
texta en byrjaði að rappa í byrjun
2017 – ég hafði meira verið að
syngja fram að því. Núna er ég byrj-
aður að blanda þessu öllu saman,“
segir Trausti.
Þó að Trausti sé í góðu yfirlæti í
kjallaranum á Grenivík að taka upp
tónlist gekk það ekki þrautalaust
fyrir sig að koma plötunni út.
„Fyrir svona einu ári var ég búinn
að klára alveg slatta af lögum, en
harði diskurinn eyðilagðist og þau
lög eyddust öll út. Þannig að ég
þurfti að gera plötuna alveg upp á
nýtt. Það sem ég ákvað hins vegar að
gera, í stað þessa að hætta bara við,
var að gera alla taktana upp á nýtt
en nota sömu textana og í glötuðu
lögunum. Þannig að á plötunni er
helmingurinn af lögunum tek-
inn upp aftur og svo er
sirka helmingurinn
alveg ný lög.“
Tónlistin á plöt-
unni er mjög fjöl-
breytt en Trausti
segir að „væbið sé
mjúkt“ en annars
sé hún raunar út
um allt tónlistar-
lega séð.
„Planið er að halda áfram að taka
upp tónlist og vinna með fólki sem
hefur áhuga á því að gera góða tón-
list. Ég ætla kannski að spila eitt-
hvað – ég ætla að fara að reyna að
gera meira af því plögga.“
Blaðamaður spyr hvort það sé
ekki aukin eftirspurn eftir því að
vinna með Trausta eftir að platan
kom út og hann játar því og bætir
við að hann sé nú þegar að vinna
með mjög mörgum aðilum og að
það séu alls konar hlutir væntan-
legir bráðlega.
stefanthor@frettabladid.is
Mjúk væb
norðan frá Grenivík
Trausti er fjölhæfur tónlistarmaður frá Grenivík sem gaf út plötu í
byrjun mánaðar. Þrátt fyrir að um helmingur laganna hafi glatast lét
hann það ekki stöðva sig. Næst á döfinni eru upptökur og fleira.
Trausti byrjaði að gera takta mjög ungur eftir að hafa komist í hundlélegt forrit hjá bróður sínum og að syngja áður en
hann vatt sér yfir í rappið. Nú gerir hann allt þrennt auk þess að taka sjálfan sig upp og mixa. MyND/LINDAMyNDAR.NET
Arnar Freyr úr
Úlfur Úlfur er
gestur á plötunni.
ÉG var bara að
dunda MÉr við
þetta þanGað til svona í
byrjun 2016, þá fór ÉG að
taka þetta af alvöru oG
læra hverniG ÉG Gæti Gert
tónlist oG látið hana
hljóMa betur.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
60%A F S L ÁT T U R
A L LT A Ð
ÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
SUMAR
Stendur undir nafni
2 4 . j ú l í 2 0 1 8 Þ R I Ð j U D A G U R22 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð
2
4
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
7
2
-4
A
E
8
2
0
7
2
-4
9
A
C
2
0
7
2
-4
8
7
0
2
0
7
2
-4
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K