Fréttablaðið - 10.09.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 1 3 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 0 . s e p t e M b e r 2 0 1 8
Ókeypis kynningartími
11. september
Ármúli 11, 3. hæð
Skráning á dale.is/ungtfolk eða í síma 555 7080
Segðu þína skoðun
öflugur liðstyrkur
OrkuMál Á næstu þremur ára-
tugum þarf íslenskt samfélag að
byggja sem samsvarar þremur
nýjum Blönduvirkjunum til að anna
eftirspurn eftir raforku. Þetta kemur
fram í nýrri raforkuspá Orkustofn-
unar sem gildir til ársins 2050.
Í skýrslu Orkustofnunar, sem
unnin er á vegum orkuspárnefnd-
ar, er fjallað um raforkunotkun til
ársins 2050 og spá frá árinu 2015
endurreiknuð út frá nýju gögnum
og breyttum forsendum.
Samkvæmt þessari spá mun
afhending frá dreifikerfinu aukast
um 8 prósent næstu tvö árin og um
80 prósent til loka spátímans sem
er 2050. Árleg aukning notkunar er
því um 1,8 prósent að meðaltali á
ári hverju.
Í heildina eykst því notkunin um
rúmlega 2.800 gígavattstundir í orku
og um 464 megavött í afli. Til sam-
anburðar er Kárahnjúkavirkjun um
670 megavött. Blönduvirkjun er um
150 megavött og því þarf að byggja
um þrjár slíkar virkjanir á næstu 33
árum.
Sigurður H. Magnússon, sérfræð-
ingur hjá Orkustofnun, segir þessa
spá ekki gera ráð fyrir að neinir
stórir og orkufrekir aðilar komi inn
á markað. Aðeins að haldið verði
í við aukna raforkunotkun lands-
manna. „Hér erum við aðeins að
skoða hvernig raforkukerfið muni
líta út á spátímanum miðað við
þann iðnað sem fyrir er. Hér gerum
við ekki ráð fyrir því að nýir aðilar
komi inn með orkufrekan iðnað en
það mun þá breyta myndinni tals-
vert,“ segir Sigurður.
Í spánni er einnig gert ráð fyrir
aukningu í flutningi raforku til
gagnavera og tekið tillit til að orku-
skipti í samgöngum hafi gengið
hraðar fyrir sig en spáð var fyrir
þremur árum.
Á næsta aldarfjórðungi munu
stjórnvöld þurfa að svara þeirri
spurningu hvers konar virkjanir
verði reistar. Ein hugmyndin er
Búrfellslundurinn svokallaði. Ofan
Búrfells áformar Landsvirkjun
stærðarinnar hóp vindrafstöðva.
Uppsett afl þeirra er um 200 mega-
vött og gætu þær því séð þjóðinni
fyrir tæpum helmingi þessa afls sem
upp á vantar til ársins 2050.
sveinn@frettabladid.is
Þörf fyrir þrjár
Blönduvirkjanir
til ársins 2050
Orkustofnun telur þörf á að virkja sem samsvarar
þremur Blönduvirkjunum á næstu þremur ára-
tugum þó að engin ný stóriðja komi til. Orkuskipti í
samgöngum og aukin rafnotkun auka eftirspurnina.
6-0
Allt um martröðina í
Sviss á síðum 2, 16 og 17
2.800
gígavattstundir er heildar-
aukning rafnotkunar til
ársins 2050 samkvæmt spá.
464
megavött er áætluð aukning í
afli næstu 30 árin.
Fréttablaðið í dag
skOðun Guðmundur Steingríms-
son skrifar um það sem gerir
okkur mennsk: vitleysuna. 11
spOrt Blikar eru hársbreidd frá 17.
Íslandsmeistaratitlinum. 14
plús 2 sérblöð
l Fólk l Fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
dóMsMál Karlmaður á sextugsaldri
var í Héraðsdómi Austurlands fyrir
rúmum mánuði dæmdur í fjögurra
ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
dætrum sínum.
Þetta er í annað sinn sem maður-
inn er dæmdur fyrir brot gegn börn-
um sínum en hann var árið 1991 í
sakadómi Austur-Skaftafellssýslu
dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir
brot gegn elstu dóttur sinni.
Ákæra á hendur manninum var í
sjö liðum en hann var sýknaður af
þremur þeirra þar sem framburður
brotaþola þótti ekki duga til sönn-
unar gegn eindreginni neitun hans.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að brotin voru framin í skjóli
trúnaðartrausts og að um einbeittan
brotavilja var að ræða. Dómurinn
frá 1991 hafði ekki áhrif á ákvörð-
unina. – jóe / sjá síðu 6
Maður dæmdur í annað sinn fyrir
kynferðisbrot gegn börnum sínum
sVÍÞJóð Aðeins munar um hálfu
prósentustigi á hægri- og vinstri-
blokkinni í sænskum stjórnmálum
að kosningum þar í landi loknum.
Vinstriblokkin, sem setið hefur í
minnihlutastjórn, var með 40,7 pró-
sent þegar Fréttablaðið fór í prent-
un og hægriblokkin, Alliansen, var
með 40,2 prósent. – jóe / sjá síðu 8
Mjótt á munum í
þingkosningum
1
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-F
1
5
4
2
0
C
4
-F
0
1
8
2
0
C
4
-E
E
D
C
2
0
C
4
-E
D
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K