Fréttablaðið - 10.09.2018, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 10.09.2018, Blaðsíða 36
Kjöldregnir á Kybunpark Ísland steinlá gegn Sviss í fyrsta leiknum undir stjórn Eriks Hamrén sem bað Íslendinga afsökunar í leiks- lok. Ísland lék sinn versta leik í langan tíma á meðan Sviss lék á als oddi. Bronslið Belga bíður í næsta leik. fótbolti Kjaftstopp. Ég held að það sé engin betri leið til að lýsa við- brögðunum eftir leikinn betur en þannig. Þjálfaratíð Eriks Hamrén með íslenska landsliðið hófst með martröð á Kypunpark-vellinum í St. Gallen á laugardaginn þegar heimamenn niðurlægðu Ísland í 6-0 sigri í fyrstu umferð Þjóðadeildar UEFA. Allt sem gat farið úrskeiðis í leiknum virtist gera það og voru landsliðsmennirnir ef til vill örlítið heppnir að ekki fór verr, það voru sem dæmi tvö mörk dæmd af Sviss í leiknum vegna rangstöðu. Allar flóðgáttir opnar Hamrén ákvað að tefla fram leik- kerfinu 4-4-2 og lenti Ísland í stök- ustu vandræðum með leikkerfi Svisslendinga, 4-2-3-1, þar sem þeir nýttu vel aukamanninn á miðjunni. Þeir voru hreyfanlegir og færðu Íslendinga til svo það myndi opn- ast fyrir liðsfélaga þeirra; það virtist alltaf vera maður laus til að gefa á. Þá voru Svisslendingar duglegir að opna pláss á köntunum fyrir sína öflugu bakverði sem tóku drjúgan þátt í sóknarleiknum. Tvö mörk frá Steven Zuber og Denis Zakaria í fyrri hálfleik þýddi að Ísland var strax komið í brekku þegar gengið var til búningsklefa. Xherdan Shaqiri bætti við marki í upphafi seinni hálfleiks úr auka- spyrnu og við það virtist allt loft fara úr blöðru Íslands. Á sama tíma efldist lið Sviss og bætti við þremur mörkum, Haris Seferovic komst á blað eftir snyrtileg uppspil áður en Albian Ajeti og Admir Mehmedi skoruðu keimlík mörk. Aðspurður sagði Shaqiri að leik- menn Sviss hefðu rætt síðasta leik liðanna, 4-4 jafntefli þar sem Ísland kom til baka úr stöðunni 1-4, og rætt um að taka fótinn aldrei af bensíngjöfinni. „Ég mun aldrei gleyma þeim leik, það var magnað hjá Íslandi og við ræddum það í hálfleik að slaka ekki á. Við vitum hvað Íslendingar geta, þeir eru með gott lið en voru án nokkurra lykilmanna og áttu ekki sinn besta dag í dag. Af okkar hálfu var þetta fullkominn leikur og þegar við spilum svona er erfitt að eiga við okkur.“ Létum þá líta vel út Það var niðurlútur Erik Hamrén sem mætti á blaðamannafund eftir leik og byrjaði hann á að biðjast afsökunar. „Ég vil bara byrja á að biðja Íslendinga afsökunar á þessari frammistöðu. Við þurftum að eiga góða frammistöðu til að eiga mögu- leika gegn virkilega góðu liði en spilamennskan var afskaplega léleg. Þeir léku vel en okkur tókst sérstak- lega vel að láta þá líta vel út,“ sagði Hamrén og hélt áfram: „Þegar þeir skoruðu þriðja markið úr aukaspyrnunni í upp- hafi seinni hálfleiks, þá fór allt til fjandans. Við misstum allt skipulag, Steven Zuber, sem skoraði fyrsta mark leiksins á St. Gallen, hefur betur í baráttu við miðverðina Sverri Inga Ingason og Ragnar Sigurðsson. FRéttAbLAðIð/EPA SviSS 6 - íSland 0 KybunparK í St. Gallen, SviSS SVISS 6 – 0 ÍSLAND Frammistaða Íslands (4-4-2) Hannes Þór Hallórsson 2 Birkir Már Sævarsson 2 Sverrir Ingi Ingason 2 Ragnar Sigurðsson 2 Ari Freyr Skúlason 2 Rúrik Gíslason 2 (74. Rúnar Már Sigurjónsson -) Gylfi Þór Sigurðsson 4 Guðlaugur Victor Pálsson 2 Birkir Bjarnason 2 (65. Theodór Elmar Bjarnason 3) Jón Daði Böðvarsson 4 Björn Bergmann Sigurðarson 2 (60. Viðar Örn Kjartansson 3) Maður leiksins: Gylfi Þór Sigurðsson Gylfi átti alls ekki góðan leik á 29 ára afmælis- daginn og hefur oftast spilað betur í íslenska landsliðsbúningnum. Hann var samt skástur í hræðilega slöku íslensku liði. Átti nokkra ágæta spretti og skilaði boltanum nokkuð vel frá sér. Getur þó miklu betur eins og allir leikmenn íslenska liðsins. 1-0 Steven Zuber (13.), 2-0 Denis Zakaria (23.), 3-0 Xherdan Shaqiri (53.), 4-0 Haris Seferovic (67.), 5-0 Albian Ajeti (71.), 6-0 Admir Mehmedi (82.). Skot (á mark): 20 (9)–3 (1). Horn: 4-1. Rangstöður: 7-0. Nýjast Þjóðadeildin A-deild Riðill 1 Frakkland - Holland 2-1 1-0 Kylian Mbappé (14.), 1-1 Ryan Babel (67.), 2-1 Olivier Giroud (75.). Staðan: Frakkland 4, Þýskaland 1, Holland 0. Riðill 2 Sviss - Ísland 6-0 1-0 Steven Zuber (13.), 2-0 Denis Zakaria (23.), 3-0 Xherdan Shaqiri (53.), 4-0 Haris Seferovic (67.), 5-0 Albian Ajeti (71.), 6-0 Admir Mehmedi (82.). Staðan: Sviss 3, Belgía 0, Ísland 0. Riðill 4 England - Spánn 1-2 1-0 Marcus Rashford (11.), 1-1 Saúl Níguez (13.), 1-2 Rodrigo (32.). Staðan: Spánn 3, Króatía 0, England 0. b-deild Riðill 1 Úkraína - Slóvakía 1-0 1-0 Andriy Yarmolenko, víti (80.). Staðan: Úkraína 6, Tékkland 0, Slóvakía 0. Riðill 3 N-Írland - bosnía 1-2 0-1 Haris Duljevic (36.), 0-2 Elvis Saric (64.), 1-2 Will Grigg (90+3). Staðan: Bosnía 6, Austurríki 0, N-Írland 0. Riðill 4 Danmörk - Wales 2-0 1-0 Christian Eriksen (32.), 2-0 Eriksen, víti (63.). Staðan: Danmörk 3, Wales 3, Írland 0. C-deild Riðill 2 Eistland - Grikkland 0-1 0-1 Kostas Fortounis (14.). Finnland - Ungverjaland 1-0 1-0 Teemu Pukki (7.). Staðan: Grikkland 3, Finnland 3, Eistland 0, Ungverjaland 0. Riðill 2 búlgaría - Noregur 1-0 1-0 Radoslav Vasilev (58.). Kýpur - Slóvenía 2-1 0-1 Robert Beric (54.), 1-1 Pieros Sotiriou (69.), 2-1 Petar Stojanovic, sjálfsmark (89.). Staðan: Búlgaría 6, Noregur 3, Kýpur 3, Slóvenía 0. D-deild Riðill 1 Georgía - Lettland 1-0 1-0 Tornike Okriashvili, víti (77.). Staðan: Georgía 6, Andorra 1, Lettland 1, Kasakstan 0. Riðill 2 Lúxemborg - Moldóva 4-0 1-0 Kevin Malget (34.), 2-0 Oliver Thill (60.), 3-0 Danel Sinani (75.), 4-0 Christopher Martins (83.). H-Rússland - San Marinó 5-0 1-0 Igor Stasevich (4.), 2-0 Stanislav Dragun (26.), 3-0 Anton Saruka, víti (67.), 4-0 Dragun (87.), 5-0 Yuri Kovalev (90+1.). Staðan: H-Rússland 3, Lúxemborg 3, Mol- dóva 0, San Marinó 0. Riðill 4 Makedónía - Armenía 2-0 1-0 Egzijan Alioski, víti (14.), 2-0 Goran Pandev (59.). Liechtenstein - Gíbraltar 2-0 1-0 Dennis Salanovic (32.), 2-0 Sandro Wieser (72.). Staðan: Makedónía 6, Armenía 3, Liechten- stein 3, Gíbraltar 0. Kristinn Páll Teitsson skrifar frá St. Gallen kristinnpall@frettabladid.is misstum trúna og í raun allt bara. Það er mín ábyrgð sem þjálfari að fá leikmennina til að trúa á sig á ný eftir að hafa lent 0-3 undir.“ Það er ljóst að spjótin beinast að einhverju leyti að Hamrén strax, þetta var ein slakasta frammistaða liðsins í mörg ár. Strax heyrðust raddir á samfélagsmiðlum um að það ætti að reka hann en honum til varnar fékk hann stuttan tíma og var liðið án fimm leikmanna sem hefðu líklegast byrjað þennan leik. Vantaði hálft liðið Fyrirliðinn og afmælisbarnið á leik- deginum, Gylfi Þór Sigurðsson, var skiljanlega niðurlútur í leikslok. „Þetta var mjög döpur frammi- staða. Það vantar hálft liðið og eins erfitt og það er að segja það, þá er hópurinn okkar ekki það stór að við getum mætt jafn sterku liði án fimm leikmanna sem myndu byrja og sækja úrslit.“ Ég vil bara byrja á að biðja Íslendinga afsökunar á þessari frammi­ stöðu. Erik Hamrén, lands- liðsþjálfari 17 ár eru síðan Ísland tapaði jafn stórt í landsleik. Íslend­ ingar töpuðu þá 6­0 fyrir Dönum á Parken í undan­ keppni EM 6. október 2001. Þetta var versta byrjun landsliðsþjálfara Íslands síðan 1996. Þá töpuðu Íslendingar 7­1 fyrir Sló­ venum í fyrsta leiknum undir stjórn Loga Ólafssonar. 1 0 . S e p t e m b e r 2 0 1 8 m Á n u d a G u r16 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 1 0 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C 4 -F B 3 4 2 0 C 4 -F 9 F 8 2 0 C 4 -F 8 B C 2 0 C 4 -F 7 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.