Fréttablaðið - 10.09.2018, Side 36
Kjöldregnir á Kybunpark
Ísland steinlá gegn Sviss í fyrsta leiknum undir stjórn Eriks Hamrén sem bað Íslendinga afsökunar í leiks-
lok. Ísland lék sinn versta leik í langan tíma á meðan Sviss lék á als oddi. Bronslið Belga bíður í næsta leik.
fótbolti Kjaftstopp. Ég held að það
sé engin betri leið til að lýsa við-
brögðunum eftir leikinn betur en
þannig. Þjálfaratíð Eriks Hamrén
með íslenska landsliðið hófst með
martröð á Kypunpark-vellinum
í St. Gallen á laugardaginn þegar
heimamenn niðurlægðu Ísland í 6-0
sigri í fyrstu umferð Þjóðadeildar
UEFA. Allt sem gat farið úrskeiðis
í leiknum virtist gera það og voru
landsliðsmennirnir ef til vill örlítið
heppnir að ekki fór verr, það voru
sem dæmi tvö mörk dæmd af Sviss í
leiknum vegna rangstöðu.
Allar flóðgáttir opnar
Hamrén ákvað að tefla fram leik-
kerfinu 4-4-2 og lenti Ísland í stök-
ustu vandræðum með leikkerfi
Svisslendinga, 4-2-3-1, þar sem þeir
nýttu vel aukamanninn á miðjunni.
Þeir voru hreyfanlegir og færðu
Íslendinga til svo það myndi opn-
ast fyrir liðsfélaga þeirra; það virtist
alltaf vera maður laus til að gefa á.
Þá voru Svisslendingar duglegir að
opna pláss á köntunum fyrir sína
öflugu bakverði sem tóku drjúgan
þátt í sóknarleiknum.
Tvö mörk frá Steven Zuber og
Denis Zakaria í fyrri hálfleik þýddi
að Ísland var strax komið í brekku
þegar gengið var til búningsklefa.
Xherdan Shaqiri bætti við marki
í upphafi seinni hálfleiks úr auka-
spyrnu og við það virtist allt loft
fara úr blöðru Íslands. Á sama tíma
efldist lið Sviss og bætti við þremur
mörkum, Haris Seferovic komst á
blað eftir snyrtileg uppspil áður en
Albian Ajeti og Admir Mehmedi
skoruðu keimlík mörk.
Aðspurður sagði Shaqiri að leik-
menn Sviss hefðu rætt síðasta leik
liðanna, 4-4 jafntefli þar sem Ísland
kom til baka úr stöðunni 1-4, og
rætt um að taka fótinn aldrei af
bensíngjöfinni.
„Ég mun aldrei gleyma þeim leik,
það var magnað hjá Íslandi og við
ræddum það í hálfleik að slaka ekki
á. Við vitum hvað Íslendingar geta,
þeir eru með gott lið en voru án
nokkurra lykilmanna og áttu ekki
sinn besta dag í dag. Af okkar hálfu
var þetta fullkominn leikur og þegar
við spilum svona er erfitt að eiga við
okkur.“
Létum þá líta vel út
Það var niðurlútur Erik Hamrén
sem mætti á blaðamannafund eftir
leik og byrjaði hann á að biðjast
afsökunar.
„Ég vil bara byrja á að biðja
Íslendinga afsökunar á þessari
frammistöðu. Við þurftum að eiga
góða frammistöðu til að eiga mögu-
leika gegn virkilega góðu liði en
spilamennskan var afskaplega léleg.
Þeir léku vel en okkur tókst sérstak-
lega vel að láta þá líta vel út,“ sagði
Hamrén og hélt áfram:
„Þegar þeir skoruðu þriðja
markið úr aukaspyrnunni í upp-
hafi seinni hálfleiks, þá fór allt til
fjandans. Við misstum allt skipulag,
Steven Zuber, sem skoraði fyrsta mark leiksins á St. Gallen, hefur betur í baráttu við miðverðina Sverri Inga Ingason og Ragnar Sigurðsson. FRéttAbLAðIð/EPA
SviSS 6 - íSland 0 KybunparK í St. Gallen, SviSS
SVISS 6 – 0 ÍSLAND
Frammistaða Íslands (4-4-2)
Hannes Þór Hallórsson 2
Birkir Már Sævarsson 2
Sverrir Ingi Ingason 2
Ragnar Sigurðsson 2
Ari Freyr Skúlason 2
Rúrik Gíslason 2
(74. Rúnar Már Sigurjónsson -)
Gylfi Þór Sigurðsson 4
Guðlaugur Victor Pálsson 2
Birkir Bjarnason 2
(65. Theodór Elmar Bjarnason 3)
Jón Daði Böðvarsson 4
Björn Bergmann Sigurðarson 2
(60. Viðar Örn Kjartansson 3)
Maður leiksins:
Gylfi Þór
Sigurðsson
Gylfi átti alls
ekki góðan leik
á 29 ára afmælis-
daginn og hefur
oftast spilað betur í
íslenska landsliðsbúningnum. Hann
var samt skástur í hræðilega slöku
íslensku liði. Átti nokkra ágæta
spretti og skilaði boltanum nokkuð
vel frá sér. Getur þó miklu betur
eins og allir leikmenn íslenska
liðsins.
1-0 Steven Zuber (13.), 2-0 Denis Zakaria (23.), 3-0 Xherdan Shaqiri (53.),
4-0 Haris Seferovic (67.), 5-0 Albian Ajeti (71.), 6-0 Admir Mehmedi (82.).
Skot (á mark): 20 (9)–3 (1). Horn: 4-1. Rangstöður: 7-0.
Nýjast
Þjóðadeildin
A-deild
Riðill 1
Frakkland - Holland 2-1
1-0 Kylian Mbappé (14.), 1-1 Ryan Babel
(67.), 2-1 Olivier Giroud (75.).
Staðan: Frakkland 4, Þýskaland 1, Holland
0.
Riðill 2
Sviss - Ísland 6-0
1-0 Steven Zuber (13.), 2-0 Denis Zakaria
(23.), 3-0 Xherdan Shaqiri (53.), 4-0 Haris
Seferovic (67.), 5-0 Albian Ajeti (71.), 6-0
Admir Mehmedi (82.).
Staðan: Sviss 3, Belgía 0, Ísland 0.
Riðill 4
England - Spánn 1-2
1-0 Marcus Rashford (11.), 1-1 Saúl Níguez
(13.), 1-2 Rodrigo (32.).
Staðan: Spánn 3, Króatía 0, England 0.
b-deild
Riðill 1
Úkraína - Slóvakía 1-0
1-0 Andriy Yarmolenko, víti (80.).
Staðan: Úkraína 6, Tékkland 0, Slóvakía 0.
Riðill 3
N-Írland - bosnía 1-2
0-1 Haris Duljevic (36.), 0-2 Elvis Saric (64.),
1-2 Will Grigg (90+3).
Staðan: Bosnía 6, Austurríki 0, N-Írland 0.
Riðill 4
Danmörk - Wales 2-0
1-0 Christian Eriksen (32.), 2-0 Eriksen, víti
(63.).
Staðan: Danmörk 3, Wales 3, Írland 0.
C-deild
Riðill 2
Eistland - Grikkland 0-1
0-1 Kostas Fortounis (14.).
Finnland - Ungverjaland 1-0
1-0 Teemu Pukki (7.).
Staðan: Grikkland 3, Finnland 3, Eistland 0,
Ungverjaland 0.
Riðill 2
búlgaría - Noregur 1-0
1-0 Radoslav Vasilev (58.).
Kýpur - Slóvenía 2-1
0-1 Robert Beric (54.), 1-1 Pieros Sotiriou
(69.), 2-1 Petar Stojanovic, sjálfsmark (89.).
Staðan: Búlgaría 6, Noregur 3, Kýpur 3,
Slóvenía 0.
D-deild
Riðill 1
Georgía - Lettland 1-0
1-0 Tornike Okriashvili, víti (77.).
Staðan: Georgía 6, Andorra 1, Lettland 1,
Kasakstan 0.
Riðill 2
Lúxemborg - Moldóva 4-0
1-0 Kevin Malget (34.), 2-0 Oliver Thill (60.),
3-0 Danel Sinani (75.), 4-0 Christopher
Martins (83.).
H-Rússland - San Marinó 5-0
1-0 Igor Stasevich (4.), 2-0 Stanislav Dragun
(26.), 3-0 Anton Saruka, víti (67.), 4-0 Dragun
(87.), 5-0 Yuri Kovalev (90+1.).
Staðan: H-Rússland 3, Lúxemborg 3, Mol-
dóva 0, San Marinó 0.
Riðill 4
Makedónía - Armenía 2-0
1-0 Egzijan Alioski, víti (14.), 2-0 Goran
Pandev (59.).
Liechtenstein - Gíbraltar 2-0
1-0 Dennis Salanovic (32.), 2-0 Sandro
Wieser (72.).
Staðan: Makedónía 6, Armenía 3, Liechten-
stein 3, Gíbraltar 0.
Kristinn Páll Teitsson
skrifar frá St. Gallen
kristinnpall@frettabladid.is
misstum trúna og í raun allt bara.
Það er mín ábyrgð sem þjálfari að
fá leikmennina til að trúa á sig á ný
eftir að hafa lent 0-3 undir.“
Það er ljóst að spjótin beinast að
einhverju leyti að Hamrén strax,
þetta var ein slakasta frammistaða
liðsins í mörg ár. Strax heyrðust
raddir á samfélagsmiðlum um að
það ætti að reka hann en honum
til varnar fékk hann stuttan tíma og
var liðið án fimm leikmanna sem
hefðu líklegast byrjað þennan leik.
Vantaði hálft liðið
Fyrirliðinn og afmælisbarnið á leik-
deginum, Gylfi Þór Sigurðsson, var
skiljanlega niðurlútur í leikslok.
„Þetta var mjög döpur frammi-
staða. Það vantar hálft liðið og eins
erfitt og það er að segja það, þá er
hópurinn okkar ekki það stór að
við getum mætt jafn sterku liði án
fimm leikmanna sem myndu byrja
og sækja úrslit.“
Ég vil bara byrja á
að biðja Íslendinga
afsökunar á þessari frammi
stöðu.
Erik Hamrén, lands-
liðsþjálfari
17
ár eru síðan Ísland tapaði
jafn stórt í landsleik. Íslend
ingar töpuðu þá 60 fyrir
Dönum á Parken í undan
keppni EM 6. október 2001.
Þetta var versta byrjun
landsliðsþjálfara Íslands
síðan 1996. Þá töpuðu
Íslendingar 71 fyrir Sló
venum í fyrsta leiknum
undir stjórn Loga Ólafssonar.
1 0 . S e p t e m b e r 2 0 1 8 m Á n u d a G u r16 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
1
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-F
B
3
4
2
0
C
4
-F
9
F
8
2
0
C
4
-F
8
B
C
2
0
C
4
-F
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K