Fréttablaðið - 10.09.2018, Síða 11
Stór hluti af
því að vera
manneskja
er að vera
vitleysingur.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron
sameinar tvo heima
► 17“ álfelgur ► Bakkmyndavél
► Dökkar rúður ► Málm/glitlakk
► Nálgunarvörn framan og aftan
► MMI útvarp ► Bluetooth símatenging
► Bluetooth tenging fyrir tónlist
► Dynamic stefnuljós ► LED afturljós
► Fjarstýrðar samlæsingar
► Lyklalaust aðgengi
► Tenging fyrir USB og Iphone
► Tvískipt sjálfvirk loftkæling
► Hæðarstillanleg framsæti
► Skriðstillir (Cruise control)
► Ljósa- og regnskynjari
► Skynjari fyrir loftþrýsting í hjólbörðum
► Baksýnisspegill með glýjuvörn
► Rafdrifnir upphitaðir og aðfellanlegir útispeglar
► Audi hljóðkerfi 180w með 10 hátölurum
► Leðurklætt aðgerðastýri ► Hiti í framsætum
► ABS bremsukerfi ► ESP stöðugleikastýring
► Árekstrarvörn (pre sense)
Listaverð 4.560.000 kr.
Tilboðsverð 4.090.000 kr.
Til afhending
ar strax
Ein athyglisverðasta fréttin sem ég las í liðinni viku var um tiltekna erfiðleika sem hafa komið upp við þróun sjálfkeyrandi bifreiða. Erfið-leikarnir felast í stuttu máli
í því að sjálfkeyrandi bílar keyra of vel.
Þeir fylgja öllum umferðarreglum og
taka þær mjög bókstaflega. Þeir eru til
fullkominnar fyrirmyndar. Mannlegir
ökumenn eru hins vegar yfirleitt ekki
að öllu leyti til fyrirmyndar, vægast
sagt. Þeir leita leiða til að skjóta sér milli
bíla, jafnvel þar sem það telst glapræði.
Þeir skjóta sér yfir á umferðarljósum
rétt eftir að það er komið rautt. Og svo
framvegis. Mannskepnan er alltaf að
redda sér, sveigja og beygja reglurnar.
Ökumenn gera almennt ráð fyrir að
hinir ökumennirnir séu eins og þeir
hvað þetta varðar. Þannig verður til í
umferðinni ákveðið mannlegt, kaótískt
flæði, sem sjálfkeyrandi bílar skilja
ekki. Niðurstaðan er sú að sjálfkeyrandi
bílar eru farnir að valda árekstrum.
Mannlegir ökumenn keyra aftan á þá.
Löghlýðni tölvunnar og fullkomleiki er
óeðlilegur og veldur fáti.
Við þróun gervigreindar almennt
skilst mér – eftir upplýsandi spjall
við gervigreindarfræðing á göngum
Háskólans í Reykjavík einu sinni – að
einn meginerfiðleikinn sé einmitt þessi:
Hvernig á að búa til tölvu sem er í rugli?
Til þess að vera mannleg þarf tölva að
geta brotið reglur, geta gert heimsku-
lega hluti í stundarbrjálæði, geta sagt
eitthvað án þess að meina það. Geta
misskilið og misheppnast. Hún þarf að
geta sett sama flugfélagið á hausinn á
u.þ.b. 10 ára fresti. Geta tapað 6-0 fyrir
Sviss. Síðast þegar ég vissi reyndist
þetta verkefni verulegum erfiðleikum
bundið. Hvernig býr maður til mann-
legan ófullkomleika?
Spegillinn á mannkynið
Kannski finnst lausn á því einhvern
daginn. Mér er í raun nokk sama um
það. Það sem er athyglisvert við þessi
vísindi er spegillinn sem í þeim felst,
á mannkynið. Vísindin draga þarna
fram úr óvæntri átt órækan vitnisburð
um það sem margan hefur grunað, að
stór hluti þess að lifa gæfuríku lífi sem
manneskja hlýtur að felast í því að
kunna að höndla ákveðið magn af vit-
leysisgangi og lifa með honum.
Stór hluti af því að vera manneskja
er að vera vitleysingur. Manneskjur eru
breyskar. Þær gera hluti sem þær vilja
ekkert endilega gera, í raun og veru. Þær
ígrunda ekki allt sem þær segja og gera.
Manneskjur kynna sér ekki mál. Þær
misskilja endalaust. Ég held að veru-
lega stór hluti mannlegra samskipta
snúist um misskilning. Annar skilur
orð öðruvísi en hinn. Risastór deilumál
geta jafnvel verið þessu marki brennd.
Í heimi hins mannlega er í raun allt
meira og minna í messi.
Oft er spurt: Mun mannkynið
læra af mistökum? Verður mann-
kynið skynsamara eftir því sem sögunni
vindur fram? Þegar maður nálgast
svona spurningar eins og tölva er svarið
auðvitað já. Hið rökrétta er að maður
læri af mistökum. Að maður endurtaki
ekki mistök. Hvers vegna ætti maður
að endurtaka eitthvað sem var rangt og
vitlaust? Maður lærir. Auðvitað verður
maður gáfaðri. Ef maður nálgast þessar
spurningar eins og manneskja er svarið
hins vegar öllu óljósara. Tja, það er ekki
gott að segja. Kannski. Líklega ekki.
Kraftarnir að verki
Ég er enginn svartsýnismaður. Ég tel
heiminn að mjög mörgu leyti, og á
veigamikinn hátt, vera betri en áður.
Margt hefur þróast á góðan veg. Hins
vegar er ekki hægt að horfa fram hjá
því að veröldin í dag siglir hraðbyri
inn í alls konar endurtekningar á
hinum fjölbreytilegasta vitleysis-
gangi. Þjóðernispopúlistar eru að
sölsa undir sig völd í Evrópu. Það er
góð hugmynd, út frá sögunni, eða
hittó. Jafnframt gefur að líta í samtíma
okkar stórbrotin dæmi um jafnvel
alveg nýja tegund af bjánaskap sem
hefur þegar farið yfir öll mörk. Seint
eða aldrei verður hægt að þróa gervi-
greind sem endurspeglar hegðun og
gáfnafar Donalds Trump. Ef hann
mætti ráða væri hann líklega farinn í
stríð við Kanada.
Það þarf ekki að spá lengi í veröld-
ina til að fá það sterklega á tilfinn-
inguna að þrátt fyrir allar framfarir,
lærdóma sögunnar, uppgötvanir
vísindanna, verður mannkynið alltaf
fyrst og fremst þetta: Mannlegt. Ekki
tölva. Kexruglað jafnvel. Ekki þarf
maður að líta lengi í eigin barm til að
upplifa sterkt hina sífelldu viðureign
skynseminnar og heimskunnar í
sálarlífinu. Svona er að vera til. En
hvað er þá til ráða? Jú, maður getur
vonað að þrátt fyrir allt séu aðrir
kraftar vitleysunni sterkari. Eins og
nafnlausi skrifarinn í New York Times
orðaði það um ástandið í Hvíta hús-
inu: Við erum nokkur hér, fullorðið
fólk, sem erum að vinna í að bjarga
þessu. Með öðrum orðum:
Þetta reddast.
Allt í messi
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 1 0 . S e p T e M B e R 2 0 1 8
1
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-F
6
4
4
2
0
C
4
-F
5
0
8
2
0
C
4
-F
3
C
C
2
0
C
4
-F
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K