Verslunartíðindi - 01.07.1924, Side 6

Verslunartíðindi - 01.07.1924, Side 6
82 VERSLUNARTlÐINDI Kjöttollsmálið. Nú fyrir stuttu er það orðið heyrum kunnugt hver samningsniðurstaða hefur orðið á milli Noregs og íslands hvað kjöt- tollsniðurfærslu snertir frá Norðmanna hendi og hlunnindi að fiskveiðum fyrir Norðmenn frá íslendinga hálfu. Seint í júnímánuði tilkynti atvinnumála- ráðuneytið, að nú væri kjöttollurinn færð- ur niður um rúmlega 25 aura á hvert kg., sem hjeðan væri flutt til Noregs, og er það mikil lækkun úr því sem málum var komið. — íslenska kjötið var fyrst tollað í Noregi árið 1897 og var þá tollurinn 10 aura á kg. Þessi sama tollupphæð hjelst svo óbreytt þar til árið 1922, að tollurinn hækkaði upp í 25 aura kg. Snemma á árinu 1923 er svo þessi tollur hækkaður á ný um V3 og síðar á sama ári ákveðið að hann skyldi heimta eftir gullgildi, og átti því sú hækkun að fara eftir gengi norsku krónunnar. Tollniður- færslan er því nú, samkvæmt samningum, að grunntollurinn lækkar um 25 aura niður í 15 aura, og bætist þar við 33l/B % + gulltolli: Þann 20. júní, er norska stjórnin auglýsti tollhækkunina., varð niðurfærslan úr rúmlega 63 aurum niður í tæpa 38 aura kg. Það sem á móti hefur komið frá ís- lendinga hálfu, er birt í tilkynningu frá atvinnumálaráðuneytinu hjer og fer sú til- kynning hjer á eftir: Innihald kjöttollssamningsins norska er það sem hjer segir: Gegn þeirri niðurfærslu á kjöttollinum, sem áður hefur verið auglýst, hefur Norðmönnum verið heitið því sem hjer greinir, um fram- kvæmd fiskiveiðalaganna m. m,, um leið og það hefur verið tekið skýrt fram, að ekki væri unt að slaka neitt til á grundvallaratriðum fiskiveiða- löggjafarinnar, meðal annars því grundvallar- atriði, að erlendum fiskimönnum er óheimilt að nota land eða landhelgi beinlínis eða óbeinlínis, til þess að reka fiskivelðar þaðan eða þar: 1. Fiskistöðvar, sem Norðmeun eiga hjer á landi, má reka áfram, meðan íslenskt saltkjöt nýt- ur hinnar umsömdu tolllækkunar. 2. a.) Því er lofað, að skipagjaid ríkissjóðs sje hið sama í öllum höfnum iandsins: enda er svo að lögum; en sumlr norskir skip- stjórar hafa kvartað yfir, að svo væri ekki í framkvæmd. b. ) Afgreiðslugjald og vltagjald greiðlst ekki af norskum skipum, þótt þau leggist fyrir akkeri í landheigi, ef þau hafa ekkert samneyti við land. c. ) Þegar skip leitar hafnar í neyð, greiðist ekki fult afgreiðslugjald eða vitagjald. 3. Það skal vera leyfilegt að nota síidarbátana til fiutninga á höfnum inni, og ákvæðin um, að bátar skuii vera á þilfarl og veiðarfæri innanborðs, skal framkvæma þannig, að ekki skal átalið, þótt ekki sje farið nákvæmlega eftir þessum ákvæðum, þegar það er ljóst af öllum atvikum, að bátarnir eru ekki utan- borðs til að veiða eða verka flsk í land- helgi. 4. Þegar skip, sem hefur verið tekið fast, vill ekki sættast á að greiða sekt heldur vlll láta ganga dóm í málinu, ber að láta skipið laust þegar í stað gegn tryggingu. Að öðru leyti verður fiskiveiðalöggjöfin framkvæmd gagnvart Norðmönnum framvegis eins og hingað til, með velvild i þeirra garð, enda hefur verið heitið samskonar velvild áfram meðan íslenskt saltkjöt nýtur tolllækkunar eíns og nú. Þess er sjerstaklega getið, að engln tilslökun hefur verið gerð um veiðl eða verkun, eða um- hleðslu, í landhelgi eða á höfnum inni og þá eigl heldur um verkun í landl eða fiutning á veiði í land. Nú þegar hafa hafist deilur um samn- inginn. Hefur sjerstaklega formaður Fiski- fjelags Islands ritað um þann hlutann, er að fiskiveiðalöggjöfinni snýr, og telur eigi ugglaust um, að á oss hafi verið snúið í þessu máli frá Norðmanna hálfu. En hvort sem svo er eða ekki, má segja,

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.