Verslunartíðindi - 01.07.1924, Side 8

Verslunartíðindi - 01.07.1924, Side 8
84 VERSLUNARTÍÐINDI upp í kr. 6.38 og pundið 27 50. Þann 8. júlí var dollarinn kominn upp í kr. 6 30 og pundið 27.27. Þeasi hækkun stafaði af því, að þjóðbankinn og gjaldeyrissöfnunar- sjóðurinn treystust ekki að halda krón- unni stöðugri, þar til samvinna milli stjórn- arinnar, fulltrúa stjórnmálaflokkanna og og atvinnurekenda væri hafin, um sjer- stakar gjaldeyrisráðstafanir. Þjóðbankinn hefur haldið áfram iánstakmörkunarstefnu sinni. Hafa lán hans til 4 helstu privat- bankanna lækkað um 22 milj. kr. í júní- mánuði, og lán þeirra aftur til atvinnu- veganna um 41 milj. kr. Afleiðing af þessu er meðal annars sú, að seðlaum- ferðin hefur minkað úr 481 milj. kr. nið- ur í 477 milj. kr. (482 milj. kr. í júní í fyrra). Viðskiftin hafa ekki verið mikil á kaup- höllinni með verðbrjef og hlutabrjef. Hlutabrjefaviðskiftin voru að meðaltali á viku í júní 2.6 milj. kr. og verðbrjef 3,1 milj. kr. (í maí 2.8 og 3.0 milj. kr.). Vísitalan hækkaði um 1 stig í júnímán- uði, úr 219 upp í 220. Verslunarjöfnuðurinn var ekki eins góður í maí og næstu mánuði á undan Inn- flutningurinn nam 219 milj. kr, en útflutn- ingurinn 186 milj. kr. Mismunur þvi 33 miij. kr. (19 milj. kr. í maí 1923). Mis- munur á innflutningi og útflutningi það sem af er árinu nú, er þó mun minni en á sama timabili í fyrra, 96 milj. kr. nú, en 175 milj. kr. í fyrra. Utflutningurinn í mai skiftist þannig niður: Búfje fyrir 14 milj. kr., flesk og kjöt 44 milj. kr., smjör, mjólk og ostur 58 milj. kr. og egg, feitmeti o. fl. fyrir 19 milj kr. Þessar tölur mega teljast við- unandi, bæði hvað verð snertir og eins hvað mikið hefur verið flutt út, þar sem vikulega var flutt út í júní af landbúnað- arafurðum, smjör 25.300 hkg. (23.728 hkg. í maí), egg 842.900 stk. (972.700), flesk og svín 39.383 hkg. (44.899) og búfje 8.413 hkg. (10.796). Verðið var að meðaltali á viku í júní, smjör 438 kr. fyrir 100 kg. (maí 474), flesk 206 aura kg. (197), egg 222 aura (206) og kjöt 105 aura kg. á fæti (101). Atvinnuleysi hefur farið að mun mink- andi siðan í fyrra. Hundraðstala atvinnu- lausra var í júní lok 5,1 %, en 8,1 % í fyrra um sama leyti. Ríkistekjurnar af neytsluskattinum námu 12,3 milj. kr. (þar af 4,6 tolltekjur), en 11,2 milj. kr. í júní 1923 (tolltekur 4,2 milj. kr.). Noregur. Útdráttur úr skýrslu frá norska aðal- konsúlnum. Reikningur Noregsbanka fyrir júnímán- uð sýnir að seðlaumferðin hefur vaxið um 16,8 milj. kr. frá því sem hún var í maí- mánaðarlok, og er talin 30. júní kr. 395.- 297.000. Útlán og veðbrjefakaup hafa hækkað um 21,5 milj. kr. Þessar tölur eru þó mun lægri en þær voru á sama tímabili í fyrra. Eftirspurn eftir útlendum gjaldeyri hef- ur ekki verið mikil og veldur þar um, að seinlegt hefur verið að kippa iðnaðar- rekstrinum í lag eftir verkföllin, og enn- fremur hefur innflutningur verið lítill, svo að útlends gjaldeyris hefir ekki verið þörf. Á verðbrjefa- og hlutabrjefamarkaðin- um hafa litlar breytingar verið. Þó má telja undantekningu með hvalveiðahluta- brjef, sem bæði hafa hækkað í verði og um talsverð viðskifti verið að ræða. Heildsöluverð hefur verið nálega það sama í júní og í maí. Matvörur úr jurta- rikinu, fóðurbætir, eldiviður, olía, járn og málmar hafa lækkað lítið eitt, en matvör- ur úr dýrarikinu, múrsteinn, sement, gler, trjámauk, trjákvoða, pappír, vefnaðarvör-

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.