Verslunartíðindi - 01.08.1936, Blaðsíða 8
VérslunartíðindI
76
lagi eða aðskilið, þó þannig, að ekki
er heimilt að aðskilja það, sem selt
er sem heild — með þessum skilmálum:
a) ekki skal selja fasteignir hærra en
við hálfu tilkostnaðarverði eða bók-
færðu verði. b) erlendar vörur skulu
seldar við útsöluverði að frádregnum
20%. c) kaupverð fasteigna og vöru-
birgða skal greitt með vaxtalausu
skuldabrjefi gegn tryggingu er metin
sje gild (af amtmanni) og veði í hinu
selda. Skuldabrjefið er afborganalaust
í 5 ár, en skal síðan greitt á 10 árum
með jöfnum afborgunum, enda haldi
kaupandi áfram verslun meðan nokkuð
er ógreitt af skuldinni, og haldi fast-
eignum við undir eftirliti stjórnarvalda.
17. Þeir, sem sæta vilja boði þessu
skulu segja til fyrir haustið 1786, en í
síðasta lagi með vorskipi 1787, og þá
jafnframt segja til hverjar erlendar
vörur þeir óska að fá til verslunar sinn-
ar, en einokunarverslunin mun annast
útvegun þeirra vara fyrir reikning kaup-
manns og senda honum án ómakslauna
og fragtfrítt nema hvað flutnings- og
vátryggingargjald er tekið fyrir korn-
vörur.
18. Á þær hafnir, þar sem verslun
hefir verið seld og kaupandi gert ráð-
stafanir um útvegun vörubirgða á næsta
ári, mun einokunin ekki senda skip til
að versla þar, nema svo standi á, að til-
boð kaupanda hafi ekki verið samþykt
endanlega, en hann skal eiga rétt til að
kaupa farminn við innkaupsverði með
skilmálum þeim er fyr getur. Vörusend-
ingar einokunar til annara hafna skal
takmarka svo sem auðið er.
19. Þeim, sem þannig kaupir verslun
eða hluta af verslun, stendur til boða
hæfilegt peningalán eftir atvikum og
ennfremur eitt eða fleiri af skipum ein-
okunarinnar eftir vali hans, við vægu
verði, og skal um greiðslur á þessu fara
sem um kaupverð verslunarinnar.
20. Ef amtmaður, sem umboðsmaður
konungs við söluna, treystist ekki til að
meta tryggingu þá er einhver kaupandi
setur fyrir kaupi svo sem áður var sagt,
og skýtur málinu til konungs, má amt-
maður samt afhenda kaupanda hið
keypta í apríllok 1787 með fyrirvara,
til þess að upphaf frjálsrar verslunar
tefjist ekki. Skal þá svo litið á, sem
kaupandi fari með hið keypta í umboði
konungs þar til úrskurður liggur fyrir. —
Hann má ráðstafa kaupi sínu og hefja
verslun en skal vera ábyrgur gagnvart
konungi þar til samþykki konungs er
fengið um kaupin.
21. Sjóðir einokunarverslunarinnar á-
samt birgðum af íslenskum vörum skulu
sendir konungi með sumarskipum 1787.
22. Á þeim höfnum þar sem ekki
kemur boð í verslunarhús og vörubirgð-
ir skal algerlega hætta allri lánsverslun
en selja við hæfilegu verði gegn greiðslu
í íslenskum vörum, og ljúka þar við-
skiftum og 'eikningum er kaupskip
leggja af stað heim.
23. Nú taka einstakir kaupmenn ekki
upp sigling á einhverja höfn og skal þá
bjóða hverjum sem vera skal af þegn-
um konungs birgðir á staðnum til kaups
með sjerstökum skilmálum gegn því, að
hann haldi verslun þar áfram. Ef eng-
inn gefur sig enn fram, en ekki þykir
fært að leggja þar verslun niður vegna
þarfa eða atvinnu staðarmanna, þá skal
hvetja til verslunar á slíkum stöðum
með því að veita til þess verðlaun eða
aðra aðstoð.
24. Ullarverksmiðjan í Reykjavík og
brennisteinsverkið á Húsavík, skulu
boðin til sölu með hægum skilmálum,
sem nánara skal ákveða. Þó skal ekki
selja ullarverksmiðjuna í Reykjavík
nema með því skilyrði, að haldið verði