Verslunartíðindi - 01.08.1936, Qupperneq 11
VERSLUN ARTlÐINDI
79
hefir komist á verslun og iðnað eftir
slíkar sýningar. Má sannfæra sig um
það með samanburði talna í hagskýrsl-
um. Þarna er ágætt tækifæri til þes,s að
bera saman framleiðslu hinna einstöku
þjóða. Hverri þjóð verður ljóst, hvar hún
er eftirbátur hinna og hvar hún skarar
fram úr. — Mönnum hefir einnig kom-
ið saman um að telja alþjóðasýningar
til þeii-ra viðburða, sem styðja friðar-
og bandalagshugsjón þjóðanna. Hinum
ýmsu þjóðum veraldarinnar er stefnt
saman til friðsamlegrar samvinnu og
skuggum hernaðarsamkepninnar hefir
nú um langt skeið verið bægt frá þess-
um sýningum. — Um gagn það, sem er
að slíkum sýningum getur mönnum því
ekki blandast hugur. Það er mikið og
rnargvíslegt, bæði beint og óbeint.
Af öllu Frakklandi stendur höfuð-
borgin París auðvitað lang best að vígi
gagnvart sýningunni. Þar á sýningin að
standa. Tískuborgarinnar með sína
frumlegu og margbreyttu framleiðslu á
öllum sviðum mun gæta mjög mikið, að
líkindum mest. En mikil áhersla verður
einnig lögð á að gefa sem glegsta og
fullkomnasta hugmynd um hinn hluta
Frakklands, sem ekki er París, og hon-
um ætlað mikið hlutverk á sýningunni.
En Frakkland er ríkt að nýlendum, sem
dreifðar eru víðsvegar um hnöttinn. Þær
eiga að koma fram á sýningarsvæðinu
í eins skýrri og réttri mynd og frekast
verður unt. Árið 1931 var sérstök sýn-
ing nýlendanna í París. Þeirrar sýningar
verður nú minst og af henni lært, til
þess að þessi hlutur sýningarinnar verði
sem best úr garði gerður. —- Hinar
ýmsu þjóðir, sem koma fram á sýning-
unni, munu eins og að líkindum lætur
ekki liggja á liði sínu til þess að gera
sinn þátt sem bestan, öðrum til upp-
byggingar og sjálfum sér til gagns og
sóma. Sýnir hin almenna þátttaka þjóð-
anna hve mjög þeim þykir um vert sýn-
inguna.
Sýningunni hefir verið valinn staður
í miðri París, beggja megin árinnar
Signu. Svæðið verður á lengd 314 km.,
en ekki breitt. Alls verður það 66 hekt-
arar. Ýmsar breytingar er nauðsynlegt
að gera á því. Iena-brúin yfir Signu,
sem er hér um bil miðsvæðis, hefir
verið breikkuð upp í 35 metra. Troea-
déro-safnið, hefir verið rifið og annað
reist í staðinn. Aðrar byggingar eru
feldar og nýjar reistar, sumar til var-
anlegrar prýði fyrir höfðuðborgina, aðr-
ar verða látnar hverfa með sýningunni.
Upphæð, sem svarar nálægt 60 miljón-
um króna er varið til varanlegra bygg-
inga, en 47 til bygginga, sem standa
eiga einungis yfir sýningartímann. Að-
komuþjóðunum er ætlað rúm miðsvæðis
á besta stað við elna-brúna, sem verður
eins og brennipunktur sýningarinna'-.
Þar munu rísa upp sýningar-skálar
hinna ýmsu þjóða, en hver þjóð fyrir
sig getur ráðið tilhögun sinna bygginga,
og mun því þar koma fram margbreytni
mikil.
„Sýning listar og tækni nútímans“.
Enginn hlutur, sem ekki er að einhverju
leyti frumlegur eða nýr á að komast
inn á þessa sýningu. Eftirlíkingum af áð-
ur þektu, án nýs verðmætis, verður bægt
frá sem ógagnlegu.
Frönsku deildinni verður skift í
marga aðalflokka, sem aftur skiftast í
aðra smærri. Ætlast er til, að engin hlið
athafnalífsins verði útundan og að
myndin, sem fram kemur af því verði
sem fullkomnust. Þeir Frakkar, sem búa
utan Parísar. sýna ýmist í viðeigandi
flokki frönsku deildarinnar, eða í sjer-
stakri deild, sem þeim er ætluð. Þar
verða hlið við hlið, aðskilin. hin ýmsu
hjeruð Frakklands, og verður revnt að
draga fram það, sem einkennandi er