Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2018, Síða 4

Víkurfréttir - 04.10.2018, Síða 4
4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. október 2018 // 38. tbl. // 39. árg. Kynningarfundur Slysavarnadeildarinnar Dagbjargar Kynningarfundur deildarinnar verður haldinn mánudaginn 8. október, kl. 20:00 í húsi Björgunarveitarinnar Suðurnes, Holtsgötu 51 í Reykjanesbæ. Dagskrá kvöldsins • Kynning á starfsemi og verkefnum deildarinnar • Fyrirlestur - Daníel Guðni Guðmundsson eigandi fyrir- tækisins Heilbrigt Hugarfar og ráðgjafi kemur og talar um jákvæð samskipti og jákvætt hugarfar Bjóðum nýja félagsmenn velkomna og þá sem hafa áhuga á skemmtilegu starfi með hressu fólki að kíkja á okkur og kynnast því sem við erum að gera. Af dragnótaveiðum í september 2003 – og útgerð trillukarla ótengdum fiskvinnslum Af tveimur fyrstu pistlunum hérna í Víkurfréttum má ætla að þeir séu í boði Vísis ehf. í Grindavík, því minnst hefur verið á það fyrirtæki í báðum pistlunum. Staðan er reyndar þannig í útgerðarmálum á Suðurnesjunum að einstaklingsútgerðir eru orðnar svo fáar og í raun þá má segja að út- gerðir sem eiga báta sem eru stærri enn 30 tonn á Suðurnesjunum séu bara eitt stórt núll. Fiskvinnslufyrirtækin eiga orðið alla þá báta sem gerðir eru út frá Suðurnesjum og eftir standa þá nokkir trillukarlar. Ef við lítum aðeins á trillukarlana, eða útgerðarmenn sem eiga báta sem ekki eru tengdir fiskvinnslum, má sjá að í Grindavík landaði Sæfari GK 1,9 tonnum í þremur róðrum og Grindjáni GK 224 kílóum í einni löndun, báðir á handfærum í sept- ember. Enginn bátur í þessum flokki sem við erum að skoða landaði í Keflavík fyrir utan nokkra mak- rílbáta sem voru að veiðum fram undir miðjan september. Í Sandgerði var Alla GK með 2,4 tonn í fjórum. Björgvin GK 2,2 tonn í fimm. Sigrún GK 1,9 tonn í þremur. Mjallhvít KE 497 kíló í einum. Dímon KE 376 kíló í einum og Bára KE 334 kíló í einum. Allir þessir bátar voru á handfæra- veiðum og var þetta heildaraflinn hjá þeim í september. Eitt skýrasta dæmið um þá miklu breytingu sem orðið hefur á út- gerðarmálum á Suðurnesjum eru dragnótabátarnir. Það var árviss við- burður í Keflavík að höfnin fylltist af dragnótabátum sem voru að veiðum í Faxaflóa og voru þessir bátar ein- faldlega kallaðir Bugtarbátarnir. Það þarf ekki að fara mörg ár aftur í tímann til þess að sjá breytingu sem orðið hefur á útgerðarmálum hjá dragnótabátunum. Förum í smá ferðalag aftur í tímann, en þó ekki langt. Aðeins timmtán ár aftur í tímann og skoðum sept- ember árið 2003. Þá var landað í Keflavík 909 tonnum af fiski og var uppistaðan í þeim afla frá dragnóta- bátum. Þá var t.d. Árni KE að landa þar. Árni KE er á Húsavík og heitir í dag Árni í Eyri ÞH og hefur reyndar ekki landað afla í nokkur ár. Þessi bátur er var lengst af Rúna RE. Fyrstu vikuna í september 2003 þá landaði Árni KE 48 tonnum í fjórum róðrum. Örn KE er bátur sem allir þekkja og þessi bátur var seldur til Bolungar- víkur árið 2017 og heitir Ásdís ÍS. Örn KE var gerður út frá Sandgerði að mestu, nema þegar Bugtin opnað- ist, þá kom báturinn til Keflavíkur. Fyrstu vikuna landaði báturinn 69 tonnum í fimm róðrum. Þröstur RE var lengi gerður út frá Grindavík á dragnót og var þessi bátur síðan seldur á Vestfirði og fékk nafnið Egil ÍS. Báturinn brann mjög illa fyrir rúmu ári síðan. Þröstur RE var með 36 tonn í fjórum róðrum fyrstu vikuna. Farsæll GK er líka bátur sem allir þekkja, rauði báturinn sem Grétar Þorgeirsson var skipstjóri á í 25 ár. Í dag er Grétar skipstjóri á Krist- björgu ÁR, sem er gamli Gulltoppur GK. Fyrstu vikuna var báturinn með 41 tonn í fimm róðrum. Valur HF, sem í dag er Hafdís SU, var líka að róa frá Keflavík og var með 33 tonn í fjórum róðrum fyrstu vikuna. Njáll RE er líka mörgum kunnugur og þessi bátur er ennþá til. Liggur í Sandgerðishöfn og hefur verið lagt, en ekki seldur og ekki búið að selja kvótann. Þessi bátur á sér um 30 ára útgerðarsögu að mestu frá Sandgerði og mannaður mönnum frá Sandgerði svo til öll þessi ár. Hjörtur Jóhanns- son var skipstjóri á bátnum flest öll þessi ár og er í dag eigandi af smábáti sem heitir Stakasteinn GK. Bátnum gekk alltaf vel á bugtinni og landaði 65 tonnum í fimm róðrum fyrstu vikuna í september 2003. Hvernig er þessum málum háttað í dag? Jú, því er auðvelt að svara. Enginn dragnótabátur er gerður út frá Grindavík. Enginn bátur að landa í Keflavík eftir veiðar í bugtinni og eftir standa þá þrír bátar sem Nes- fiskur á, og allir landa þeir í Sand- gerði. Það var reyndar mokveiði hjá þeim í september 2018. Sigurfari GK var með 176 tonn í sautján róðrum. Benni Sæm GK 168 tonn í fjórtán og Siggi Bjarna GK 167 tonn í þrettán róðrum. Já, þetta er ansi mikil breyting og væri farið aðeins lengra aftur í tím- ann þá myndu koma fleiri bátar þar inn sem voru gerðir út, eins og t.d. Eyvindur KE og Baldur KE. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is AFLA FRÉTTIR Örn KE á dragnótaveiðum í Garðsjóð í september 2014. VF-mynd: Hilmar Bragi Með bættri nýtingu og endurvinnslu hluta stuðlum við að betri heimi með minni sóun og aukinni umhverfisvitund. Listasafn Reykjanesbæjar vill leggja sitt af mörkum í þessum efnum og býður í samstarfi við HANDVERK OG HÖNNUN upp á leiðsögn og smiðju í tengslum við sýninguna „Endalaust“ í Duus Safnahúsum. Sýningin inniheldur einungis verk úr endurunnum efnivið, þar sem hlutum sem annars yrði mögulega hent, er gefið nýtt og betra líf. Um er að ræða fjölbreytt og ólík viðfangsefni og alls 20 hönnuðir taka þátt í sýningunni. Laugardaginn 6.október klukkan 14 hefst leiðsögn Rögnu Fróða sýningarstjóra um sýninguna þar sem hún segir frá hugmyndafræði hennar og tilurð verkanna. Leiðsögnin er öllum opin óviðkomandi því hvort fólk tekur þátt í smiðju. Komið og gerið gamalt nýtt Á sama tíma hefst smiðja í Bíósal Duus Safnahúsa sem ber yfirskriftina „Gamalt verður nýtt“ og stendur hún til kl. 16. Það er textílhópurinn „Þráðlausar“ sem stýra smiðjunni sem er ætluð öllum aldurshópum þar sem vefnaður og endurvinnsla koma saman til að gefa gömlum og gleymdum hlutum nýtt líf. Þátttakendur fá tækifæri til að endurbæta eða breyta einum hlut sem þeir finna heima hjá sér. Stóll, myndarammi eða jafnvel flíkur eru tilvaldir hlutir en einnig má nota hugmyndarflugið og koma með alls konar hluti sem er hægt að vefa inní. Garn og efni verður til staðar sem notað verður til að vefa með. Leiðbeinendur í smiðjunni eru þær Margrét Katrín Guttormsdóttir og Ragn- heiður Stefánsdóttir sem saman mynda textílhópinn Þráðlausar. Þær eru báðar útskrifaðar úr textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og stunda nám við Listaháskóla Íslands í hönnunardeild. Þráðlausar vinna að því að búa til textílverk og endurbæta gömul húsgögn með vefnaði úr endurnýttum textíl. GAMALT VERÐUR NÝTT Í HEILSU- OG FORVARNAVIKU SUÐURNESJA LEIÐSÖGN OG SMIÐJA Í DUUS SAFNAHÚSUM Suðurnesjamagasín fimmtudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is Heilsu- og forvarnarvika á Suður- nesjum verður haldin 1. – 7. október. Markmiðið með heilsu- og forvarnar- viku er að draga úr þeim áhættu- þáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa. Setningarathöfn Heilsu- og forvarnar- vikunnar var í hádeginu á mánudag í bókasafni Reykjanesbæljar. Þar flutti Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar ávarp og aðstand- endur Einars Darra, sem lést þann 25. maí sl. eftir neyslu róandi lyfja, komu og sögðu sögu hans, sýndu myndband og dreifðu armböndum en stofnaður hefur verið minningarsjóður Einars Darra undir slagorðinu „Ég á bara eitt líf“. Fyrirtæki og stofnanir á svæðinu bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í Heilsu- og forvarnavikunni sem al- menningur er hvattur til að kynna sér. Heilsu- og forvarnavika sett á Suðurnesjum DAGSKRÁ HEILSU- OG FORVARNAVIKU OPNUÐ MEÐ SNJALLTÆKJUM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.