Víkurfréttir - 04.10.2018, Side 6
6 BLEIKUR OKTÓBER Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. október 2018 // 38. tbl. // 39. árg.
hafnargötu 29 / sími 421 8585
opið: 11-18 virka daga og laugardaga 11-16
20%
afsláttur af öllum skóm
á haustdögum 4.-8. október
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Hringbraut 99 - 577 1150
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 til 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 til 18:00.
30%
AFSLÁTTUR
ÚT NÓVEMBER
NÝTT!
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Hreyfing skapar vellíðan
Við sjáum það alltaf betur og betur hvað regluleg hreyfing gerir líkamanum
gott. Sumir vilja stunda gönguferðir eða skokka utandyra, hressast af því og
koma sér í form þannig, á meðan aðrir vilja fara inn á líkamsræktarstöð og
æfa þar með því að lyfta lóðum eða mæta í hópatíma. Alls konar námskeið
eru í boði. Það getur samt verið erfitt að hífa sig upp úr sófanum, slökkva á
sjónvarpinu eða tölvunni og hætta að borða snakk í tíma og ótíma. En þeir
sem byrja að æfa og halda það út í nokkur skipti, finna fljótt miklar breytingar
í andlegri og líkamlegri vellíðan. Það fyrsta sem fólk talar um er að því líði
betur andlega um leið og líkaminn fer að styrkjast. Þeir sem taka þetta alla
leið og breyta einnig um mataræði, td. auka ferska grænmetisneyslu, fá einn-
ig meiri orku úr matnum sem þeir borða. Líkaminn er fljótur að verðlauna þá
sem byrja í reglulegri þjálfun en fyrst er að mana sig upp, ákveða hvað hentar
manni og fara af stað. Gleðin vex og ánægjan tekur yfir. Fólk sem æfir er yfir-
leitt miklu jákvæðara því það fær þessa ákveðnu útrás sem líkaminn þarf.
Í tilefni heilsu- og forvarnaviku fórum
við og hittum fólk sem er að hreyfa
sig reglulega. Okkur lék forvitni á að
vita hvernig það æfði og hvers vegna,
hvort fólk spáði eitthvað í mataræði
og fleira. Það var gaman að sjá hversu
margir voru að byggja sig upp hingað
og þangað um Reykjanesbæ.
JÓN INGI ÞORGEIRSSON, 21 ÁRS
MATREIÐSLUMAÐUR OG VAKTSTJÓRI
Á SLIPPBARNUM REYKJAVÍK:
„Ég æfi sjálfur í
tækjum tvisvar til
þrisvar í viku. Mér
líður betur þegar
ég hreyfi mig og
ég vil vera í góðu
formi. Ef ég mæti
ekki í ræktina þá finn ég
það fljótt, mér finnst ég vera þreyttari
og sljórri. Það er mikilvægt einnig að
spá í mataræðið en ég vil vera sykur-
laus og sleppa hvítu hveiti. Hrein fæða
er best finnst mér, náttúruleg fæða
sem maður eldar frá grunni. Þetta er
lífsstíll en ekki eitthvað tímabundið
og gefur þannig árangur.“
MONIKA MARIA
BAJDA, 35 ÁRA
ÖRYRKI:
„ É g k e m
hingað í Sport-
húsið fimm
sinnum í viku
til að byggja mig
upp og vinna í sjálfri
mér. Ég blanda saman tækjum og
þolþjálfun þrisvar í viku. Mér líður
betur en þetta hefur líka góð áhrif
á hugann í leiðinni. Ég kem hingað
með dóttur minni henni Alexöndru
sem er búin að hjálpa mér mikið því
hún hvetur mig áfram. Hún finnur
æfingarnar og passar upp á okkur,
að við séum að bæta okkur. Þetta er
samverustundin okkar saman því ég á
tvö yngri börn sem þurfa líka
athygli en hérna erum
við tvær í friði að æfa.
Ég borða mikið ferskt
grænmeti og spái í að
borða hollan mat og
elda heima frá grunni.“
ALEXANDRA MARÍA
TRAUSTADÓTTIR,
14 ÁRA
GRUNNSKÓLANEMI:
„Ég æfi með
mömmu eftir
skólann en svo er
ég einnig nokkrum
sinnum í viku í leikfimi og sundi
í skólanum. Ég hef mikinn áhuga á
heilsu og því sem er gott fyrir líkam-
ann. Við skoðum E-efnin í matnum
úti í búð og forðumst svoleiðis mat
en viljum náttúrulegan mat. Ég les
mikið varðandi góða heilsu og vil
nærast rétt og vel. Mér finnst gott að
við æfum saman, það er svo hvetjandi
fyrir mig líka að hjálpa mömmu að
koma sér í form.“
VIGNIR GUNNARSSON, 26 ÁRA ATVINNU
FLUGMANNSNEMI HJÁ KEILI:
„Ég verð að fá útrás eftir allan
lesturinn í náminu mínu. Mér
finnst ég ferskari eftir hreyf-
inguna og stressið hverfur en
ég kem hingað í Sporthúsið sex til
sjö sinnum í viku og er í eina klukku-
stund eða lengur. Þetta tappar af
manni spennunni í náminu og eykur
orkuna og úthaldið í líkamanum.
Mér líður svo vel eftir æfingarnar.
Eftir að ég tók mig á þá er þetta orðið
að lífsstíl. Að vera í formi er lengsta
maraþon sem til er. Þetta er búið að
taka mig fjögur ár en ég byrjaði að
æfa þegar ég var orðinn 110 kg, þá
fékk ég nóg og vaknaði. Ég var áður
afreksmaður í frjálsum íþróttum
en svo slasaðist ég og fór í aðgerð
sem misheppnaðist og þá hófst víta-
hringurinn með að borða of mikið og
hreyfa sig ekkert. Það er að byrja aftur
að hreyfa sig, koma sér upp rútínu,
mæta í ræktina og gefast ekki upp.
Halda áfram. Ég borða ekki sykur
lengur nema ég fæ mér eitt súkku-
laði á laugardögum og ostapopp. Ég
forðast hvítt hveiti, þar með talið
pítsur, og elda allan mat frá grunni.
Ég borða fisk, kjöt, kjúkling og græn-
meti. Það þarf viljastyrk til að byrja
að æfa en þegar maður finnur hvað
manni líður miklu betur eftir á, þá
er það þess virði.“
ÍRIS KRISTJÁNS
DÓTTIR, 54 ÁRA
HJÚKRUNAR
FRÆÐINGUR:
„Ég æfi í tækjum
þrisvar til fjórum
sinnum í viku. Það
hentar mér að koma
ein og þegar mér hentar því ég er
í vaktavinnu og núna var ég t.d. að
koma af næturvakt og þá er hressandi
að mæta í ræktina. Það var erfitt að
byrja fyrst en svo þegar þú finnur
hvað þér líður miklu betur er léttara
að halda áfram en hætta. Ég sef betur
og mér líður betur í skrokknum. Ég
borða venjulegan heimilismat en ég
mætti borða meira ferskt grænmeti.
Sumum þætti það kannski nóg sem
ég borða af því en ég er jú í heilsu-
geiranum og veit að grænmeti er gott
fyrir okkur. Hreyfing bætir lífsgæði
og fullorðið fólk finnur mikinn mun
á sér þegar það byrjar að æfa.“
BJÖRN SVEINSSON,
65 ÁRA FYRRUM
LÖGREGLUÞJÓNN
OG RANNSÓKNAR
LÖGREGLUMAÐUR:
„Ég kem í sund
þrisvar til fjórum
sinnum í viku eða
annan hvern dag. Hérna slaka ég á í
heitu pottunum og hitti gott fólk sem
langar að spjalla um dægurmálin.
Svo koma hingað fallegar konur og
bara fullt af almennilegu fólki. Það er
mjög hressandi að fara í sund. Laugin
í Keflavík er flott og ég mæti í alls
konar veðri. Bara yndislegt. Á sumrin
spila ég golf fyrst og fremst en gerði
lítið af því hér fyrir sunnan í sumar
en reyndi að elta sólina út á landi
til að spila golf. Ja, hvað ég borða?
Ég hef nú átt tvær yndislegar konur
sem elduðu góðan mat og höfðu mig
í bómul en núna bý ég einn og hræri
bara einhverju saman í pott, ekki svo
nauið. Stundum býð ég sjálfum mér
út að borða.“
GUNNHILDUR
ÞÓRÐARDÓTTIR,
39 ÁRA KENNARI
OG MYNDLISTAR
MAÐUR:
„Ég kem mjög oft
hingað í sundlaug-
ina með gríslingana
mína fjóra. Sjálf syndi ég fjórum
sinnum í viku á meðan þau eru í
skólanum. Það er ákveðin þerapía að
koma í sund og ég vinn úr hugsunum
mínum á meðan ég syndi. Svo er alltaf
gaman að vera í góðum félagsskap
hérna og slaka á í heitu pottunum. Ég
hjóla einnig allt sem ég get, meira að
segja í Bónus og Nettó til að versla í
matinn. Við bjuggum í Bretlandi áður
og þar byrjaði ég að hjóla. Líkamsrækt
úti í fersku lofti er það sem hentar
mér. Við förum einnig í göngur fjöl-
skyldan, ég og maðurinn minn með
börnin okkar fjögur, en þá er farið á
fjöllin hér í kring td. Keili, Þorbjörn
og fleiri fjöll. Ég borða allan mat en
í hófi og hef þá reglu að borða fimm
í allt á dag af einhverju úr ávaxta- og
grænmetisflokknum.“
SNORRI STEINAR
SKÚLASON, 70
ÁRA FYRRUM
STARFSMAÐUR
HJÁ ELDSNEYTIS
AFGREIÐSLU EAK
LEIFSSTÖÐ:
„Ég er í Janusarverkefninu og geng
rösklega á hverjum degi í þrjátíu mín-
útur eða lengur og fer svo í Massa í
íþróttahúsinu Njarðvík tvisvar í viku.
Þar geng ég á bretti og lyfti lóðum,
geri teygjur og svona. Það er komið
rúmt ár síðan ég byrjaði í þessu
verkefni á vegum Reykjanesbæjar
og þetta hefur gert mér mjög gott.
Maður yngist af þessari hreyfingu. Ég
er allur að styrkjast og eflast. Þetta
er búið að vera gaman en ég er hjá
Janusi íþróttaþjálfara sem mælir
árangur minn og stundum er heilsu-
farsskoðun. Maður borðar hollan
mat og meira grænmeti. Ég finn
mikinn mun. Maður er léttari í lund
og hittir fleira fólk sem er að hreyfa
sig. Það eru svo margir að mæta en
á mánudagsmorgnum hittast allir í
Reykjaneshöll og þar er einnig gengið
en svo förum við sjálf út að ganga á
daginn. Þá mæli ég mig til gamans í
gegnum símann minn. Í dag er ég t.d.
búinn að ganga sjö kílómetra á einni
klukkustund. Í febrúar þegar veðrið
var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir
þá gekk ég þann mánuðinn 160 km á
fótboltavellinum!“