Víkurfréttir - 04.10.2018, Page 9
9 f immtudagur 4. október 2018 // 38. tbl. // 39. árg.
Sýningarnar frá okkur hafa hlotið mikið lof
alls staðar. Ég er mjög þakklát, það er svo frá-
bært hvað við höfum fengið að kenna mörgum
nemendum á þessum tíu árum. Æðislegt! Þegar
ég byrjaði með þennan skóla þá var það alltaf
markmið mitt að búa til frábæra dansara og ég
vissi að klassískur ballett og nútímadans væri
leiðin til þess. Það er dálítið fyndið að hugsa
til þess hvernig ég varð að lauma ballettinum
inn í fyrstu tímana mína en í dag bjóðum við
upp á tíma í ballett. Þessir nemendur fara létt
með allskonar dansform eftir það nám. Ég
sé það alltaf þegar ég horfi á sýningu hverjir
hafa lært ballett eða nútímadans því tæknin og
hreyfingarnar eru fágaðri og fallegri. Þú getur
alltaf orðið betri og betri,“ segir Bryndís og það
leynir sér ekki hvað hún hefur mikið metnað
fyrir hönd nemenda sinna. Í fyrsta sinn á Ís-
landi í BRYN voru haldin danspróf í klassískum
ballett frá „International Dance Acclaim“ (IDA)
sem er dansprógramm og kennsluaðferð frá
Kaliforníu sem flýtir fyrir þjálfun nemenda og
sýnir listrænar og tæknilegar framfarir nem-
enda í listdansnámi. Dómari kom alla leið frá
Bandaríkjunum og fengu nemendur medalíu
og viðurkenningarskjal fyrir frammistöðu sína.
Draumurinn rættist á Íslandi
Við göngum um gangana í BRYN Ballett Aka-
demíunni en skólinn er staðsettur í risastórri
braggabyggingu rétt hjá gamla kanasjúkra-
húsinu á Ásbrú, ótrúlega flott húsnæði með
þremur danssölum, dansbókasafni og dans-
verslun. Þegar komið er inn í búningageymsluna
þá byrjum við að gramsa því herbergið er svo
skemmtilegt, fullt af litríkum dansbúningum
og fylgihlutum. Þetta er nú eitthvað fyrir lista-
spírur að koma þarna inn. „Já ég var alltaf með
þetta í maganum að stofna eigin skóla, alveg frá
því að ég var að kenna hjá Æfingastúdíó Bertu á
Brekkustígnum. Svo liðu árin og ég bjó erlendis
í ellefu ár, kláraði meðal annars leikaranám í
California Institute of Arts og fór svo til Eng-
lands. Þar fór ég í ballettkennaranám í Royal
Academy of Dance og er eini ballettkennarinn
frá þeim skóla hér á landi. Þessi ár erlendis
gerðist svo margt skemmtilegt. Ég kynntist
manninum mínum Daniel James Coaten jurta-
lækni og vísindamanni, hann flutti með mér
heim til Íslands árið 2008. Já, við vorum ný-
búin að opna skólann þegar hrunið kom og
ég hugsaði hvað erum við að gera hérna? Svo
ákváðum við samt að halda áfram með planið
okkar og hugsuðum að tímasetningin væri rétt
þó að okkur fyndist það ekki fyrst. Við vildum
trúa því að okkur var ætlað að gera góða hluti
hér heima á Íslandi,“ segir Bryndís og heilsar
litlu dóttur þeirra hjóna, Amelíu, sem kemur
hlaupandi inn um dyrnar og beint til mömmu
sinnar sem faðmar hana innilega að sér.
Ég sé það alltaf þegar ég horfi á
sýningu hverjir hafa lært ballett eða
nútímadans því tæknin og hreyfing-
arnar eru fágaðri og fallegri
• Umsjón og þróun afsláttarkerfis.
• Umsjón samfélagsmiðla.
• Umsjón styrktarmála.
• Umsjón innri markaðsmála.
• Utanumhald markaðsátaka.
• Önnur verkefni sem markaðsstjóri
felur markaðsfulltrúa.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir,
markaðsstjóri Samkaupa.
Umsóknir sendist á: ingibjorg@samkaup.is
• Framkvæmd og úrvinnsla verðkannana.
• Umsjón með tekjustýringu.
• Eftirlit og miðlun upplýsinga um rekstur verslana.
• Umsjón með netverslun félagsins.
• Verkefnastýring og innleiðing á nýjungum.
• Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs
felur verkefnastjóra.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Egill Sigurðsson,
framkvæmdastjóri verslunarsviðs.
Umsóknir sendist á: gunnar@samkaup.is
Samkaup auglýsir eftirtalin
störf laus til umsóknar
Samkaup reka rúmlega fimmtíu verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum
til þæginda verslana. Helstu vörumerki Samkaupa eru Nettó, Krambúð og Kjörbúðin.
Umsóknarfrestur er til 8. október
Verkefnastjóri verslunarsviðsMarkaðsfulltrúi