Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2018, Page 16

Víkurfréttir - 04.10.2018, Page 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Sjóarinn tekinn fyrir framúrakstur? Með þér alla leið 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Til sölu báðar eignir í þessu fallega tvíbýlishúsi. 120 fm 4ra herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð Verð: 43,9 millj. 100 fm rúmgóð 3ja herbergja á 1. hæð Verð: 37,5 millj. Eignin hefur verið mikið endurbætt að utan sem innan. Húsið er skemmtilega staðsett með mikla víðáttu, útsýni og opin svæði. Stutt í leikskóla, skóla ásamt verslun og þjónustu. Tjarnargata 4 260 Reykjanesbær BÓKIÐ SKOÐUN Nánari upplýsingar: Óskar H. Bjarnasen, lögg. fasteignasali ohb@miklaborg.is sími: 691 1931 Umfram- keyrslan um sjö milljónir króna Bæjarráð Grindavíkur harmar það að ekki hafi verið farið eftir fjár- heimildum hvað varðar umfang Sjóarans síkáta en umframkeyrslan er um sjö milljónir króna. „Slíkar framúrkeyrslur eru óheimilar án undangenginnar beiðni um við- auka,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð Grindavíkur telur að ný- ráðinn sviðsstjóri frístunda- og menn- ingarsviðs þurfi að leiða vinnu um framtíðarskipulag hátíðarinnar í samvinnu við frístunda- og menn- ingarnefnd og bæjarráð. Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti með fimm atkvæðum að taka ekki þátt í tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs í húsnæðismálum, sem tekið var fyrir á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur í vikunni sem leið. Þau Páll Valur Björnsson bæjarfulltrúi Helga Dís Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi sátu hjá við afgreiðslu málsins. Íbúðalánasjóður sendi nýlega bréf þess efnis að sjóðurinn leitaði eftir sveitarfélögum til að taka þátt í til- raunaverkefni um uppbyggingu í hús- næðismálum á landsbyggðinni. Fram kom að verkefnið snéri að því að leita leiða til að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkti víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi íbúðarhúsnæði. Jafnframt kom fram að verkefnið taki einnig mið af stefnumótandi byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi í júní sl. þar sem m.a. er kveðið á um markmið um fjölgun íbúða á svæðum þar sem skortur á hentugu húsnæði hamlar uppbyggingu í sveitarfélaginu. Í erindi Íbúðalánasjóðs kom fram að horft væri til þess að 2-4 sveitarfélög taki þátt í tilraunaverkefninu. „Í umræðum um málið á fundi bæjar- stjórnar Grindavíkur kom fram að vissulega væri umframeftirspurn eftir íbúðarhúsnæði í bæjarfélaginu eins og víða á landinu. Ekki væri þó hægt að segja að skortur á hentugu húsnæði hamlaði uppbyggingu í bæjarfélaginu, enda hefðu byggingarframkvæmdir verið umtalsverðar síðustu misseri og nýlega hefði lóðaframboð verið aukið verulega. Grindavíkurbær hefur sam- þykkt húsnæðisáætlun fyrir bæjar- félagið og horfir til þess að koma á fót húsnæðissjálfseignarstofnun fyrir almennar leiguíbúðir,“ sagði Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík í samtali við Víkurfréttir um málið. Í umræðum á bæjarstjórnarfundinum kom fram að þetta tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs væri áhugavert, en að bæjarfélagið taki ekki þátt í verk- efninu að svo komnu máli. Brynja byggir við Stapavelli Brynja, hússjóður Öryrkjabanda- lags Íslands hefur sótt um stofn- framlag til Reykjanesbæjar vegna byggingar íbúða að Stapavöllum. Málið var tekið fyrir á fundi bæjar- ráðs Reykjanesbæjar á dögunum. Bæjarráð samþykkti þar stofnframlag sem er 12% af áætluðum byggingar- kostnaði kr. 25.200.000,-. Stofnframlagið skal endurgreiðast í samræmi við 5. mgr. 14. gr. laga nr. 52/2016 og reglur bæjarins um stofnframlög sem samþykktar voru á bæjarstjórnarfundi 15. nóvember 2016. Greiðsla stofnframlagsins verður í samræmi við 10. gr. sömu reglna, segir í fundargerð bæjarráðs. Skortur á hentugu húsnæði hamlar ekki uppbyggingu - Grindvíkingar taka ekki þátt í tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs SJÓÞOTUFJÖR VIÐ KEFLAVÍK

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.