Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Grillaðar lamba-innralærissteikur með sítrónu-og rósmarínmarineringu Fyrir fjóra 2 pk. lambasteikur, mínútusteikur 200 gr hver pakki 4 msk. ferskur sítrónusafi 4 tsk. sítrónubörkur 1 ½ tsk. saxað ferskt rósmarín 2 hvítlauksgeirar, saxaðir Nýmulinn svartur pipar 200 ml. repjuolía Blandið sítrónusafa, sítrónuberki, rósmarín og hvítlauk í matvinnsluvél ásamt olíunni. Kryddið með salti og svörtum pip- ar. Marinerið kjötið í blöndunni í að minnsta kosti 10 mínútur. Grillið í 2 mínútur á hvorri hlið, hvílið í 5 mínútur og berið fram. Kryddsmjör 160 gr. mjúkt smjör 2 msk. fersk steinselja 2 msk. ferskt estragon 2 msk. ferskur graslaukur 2 msk. Dijon sinnep 2 msk. korna sinnep Blandið saman í skál, setjið á bökunarpappír og rúllið upp í sívalning og kælið. Skorið í mátulega bita við notkun. Salat með rauðkáli og fennel (slaw) 4 bollar rauðkál skorið í þunnar sneiðar 2 stk fennel í þunnum sneiðum 1 grænt epli 2 msk rifin fersk piparrót 4 msk repjuolía 2 msk eplaedik Blandað og smakkað til með salti og pipar, má gera deginum áður og láta bíða í kæli yfir nótt. Grilluð lambasteik með sesam- og appelsínumarineringu 2 pk. lambasteikur, mínútusteikur 200 gr hver pakki 2 msk. sesam olía 1 msk. sesamfræ, ristuð 1 appelsína, börkur og safi 1 msk. ostrusósa 1 romaine salathaus ½ appelsína 3 msk chili olía Blandið kjöti ásamt, sesamolíu, sesam fræjum, appels- ínuberki, appelsínusafa og ostrusósu og marinerið í að minnsta kosti 10 mínútur. Grillið eða steikið í 2 mínútur hvora hlið. Skerið romaine langsum, penslið með chili olíu og grillið í u.þ.b. 1 mínútur á hvorri hlið á meðalhita. Skerið appelsínu í báta, penslið með olíu og grillið í 2 mínútur á meðalhita. Grillað lamba-innlæri með grilluðu brokkoli, gremolata, ferskri tómatasósu og kartöflusalati 1 pk lamba-innralæri u.þ.b. 300 gr 3 msk repjuolía ½ brokkoli haus, skorinn gróft Brúnið kjötið á heitu grilli í í tvær mínútur á hvorri hlið og setjið á efri hillu á grillinu, lækkið í meðalhita og lokið grillinu. Eldið í u.þ.b. 20 mín þar til nær 58 °C í kjarnhita. Mæli með notkun á kjarnhitamæli! Takið af grillinu og hvílið við stofuhita í 10 mín. Berið ríflegt magn af gremolata á kjötið áður en það er borið fram. Grillið brokkoli og berið fram ásamt ferskri tóm- atasósu. Kartöflusalat 400 gr. soðið kartöflusmælki 100 gr. grænar ólífur 2 msk. kapers 1 msk. dijon 1 msk. hunang 4 msk. ólífuolía 2 msk. ítölsk steinselja klípa af salti Gremolata 1 búnt ítölsk steinselja 1 geiri hvítlaukur Sítrónubörkur af 2 sítrónum Saxið steinseljuna gróft, rífið hvítlauk og sítrónubörk á fínu rifjárni og blandið saman Tómatasósa 1 msk olía ½ laukur skorinn í teninga 1 hvítlauksrif, smátt skorið 2 pakkar ferskir konfekt tómatar 1 stk hunang svartur grófmulinn pipar salt Svitið lauk og hvítlauk á hægum hita í 2 mín, bætið tómöt- unum við og látið sjóða í 10 mín, bætið við hunangi og smakkið til með svörtum pipar og salti. Maukið í matvinnsluvél. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Grillaðar lamba- innralærissteikur  með sítrónu- og rósmarín-marineringu Það er fátt betra á grillið en góð lambasteik og hér getur að líta uppskriftir frá hinum eina sanna Hafliða Halldórssyni sem veit nú meira en flestir hvernig best er að matreiða lamb. Hafliði fer hér víða og bragðsamsetningarnar ættu að gleðja matgæðinga enda afar snjallar eins og hans er von og vísa. Grilluð lambasteik með sesam- og appelsínumarineringu. Grillað lamba-innanlæri með grilluðu brokkolí. Munið að ef kjötið er látið hvíla eftir að steikingu lýkur, eins og æskilegast er, heldur kjarnhitinn áfram að hækka dálítið. Reikna má með að í stórri steik eins og lambalæri hækki hann um 4-10°C (oftast um 5°C) á 15-20 mínútum og þetta þarf að hafa í huga þegar verið er að meta hvort kjötið sé að verða steikt. Ef gleymist að reikna með þessu getur kjötið reynst meira steikt en til var ætlast, þegar farið er að skera það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.