Morgunblaðið - 08.06.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.06.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 „Loksins erum við Reykvíkingar farnir að sjá einhver teikn um að sumarið sé á næsta leiti. Sólin hefur aðeins gægst út í gegnum skýja- hnoðrana og regninu hefur eitthvað slotað. Það er fátt sem gleður meira en von um góð- viðri þannig að hægt sé að kynda undir grillinu með sólarglætu í hjarta,“ segir Ragnar og bætir því við að þessi uppskrift tylli því besta úr íslenskri náttúru upp á ljúfan stall þar sem lambið og grænmetið fái sérstaklega að njóta sín. Marineraðar lambakótilettur 2 hryggir skornir í 1,5 cm þunnar sneiðar 4 msk jómfrúarolía safi úr einu lime börkur af einu lime 3 hvítlauksrif ½ rauður chilipipar 1 tsk hlynsíróp salt og pipar Vellaukað kartöflusalat 1 kg smælki með hýðinu 1 rauðlaukur búnt af vorlauk 4 skalottulaukar 4 msk smátt skorinn graslaukur 4 msk smátt skorin steinselja 3 hvítlauksrif 3 msk majónes 2 msk grísk jógúrt 2 tsk hlynsíróp 2 tsk hvítvínsedik salt og pipar Mangósalsa 1 mangó 4 kjarnhreinsaðir tómatar 1 rauður chilipipar 2 msk hökkuð fersk mynta 4 msk jómfrúarolía 2 tsk hlynsíróp salt og pipar Fylltar papríkur 5 rauðar íslenskar papríkur 400 g rjómaostur til matargerðar einn castello-ostur með chilibragði 4 hvítlauksrif 1 msk hökkuð fersk steinselja 1 msk hökkuð fersk basil salt og pipar Agúrkusalat frá Hveravöllum 1 kjarnhreinsuð agúrka 1 tsk sykur 2 msk majónes 1 tsk hökkuð fersk steinselja safi úr hálfu lime salt og pipar  með mangó, chili og tómatsalsa með osta- fylltum papríkum, gúrk- um í majó og vellauk- uðu kartöflusalati Ljósmynd: Ragnar Freyr Ingvarsson Það er hinn eini sanni Ragnar Freyr Ingvarsson eða Læknirinn í eldhúsinu sem á heiðurinn að þess- ari uppskrift. Ragnar er sérlega flinkur grillari og því ekki annað hægt en að prófa þessa dásemd en Ragnar leggur ætíð mikið upp úr meðlætinu sem er íslenskt grænmeti að þessu sinni. Paprikurnar eru fylltar með Castello osti. Kótiletturnar tilbúnar á grillið. Kótilettur henta einstaklega vel á grill. Marineraðar lambakótilettur Sérlega vel heppnaður réttur hjá Ragnari eins og hans er von og vísa. Mangósalsað tekur máltíðina upp á næsta stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.