Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Hafsteinn var þó hvergi nærri af
baki dottinn heldur setti tinda ost,
pickles, grillaða portobello-sveppi,
spicy-majónes, kál, tómata og lauk
á borgarann sem hann bar fram í
brioch-brauði.
Hafsteinn segir að flóknara sé
þetta nú ekki en mikilvægt sé að
grillið sé rjúkandi heitt þegar byrj-
að er að grilla. Svo er þetta bara
gert eftir kúnstarinnar reglum.
Kjötið grillað eftir smekk, brauðið
hitað á grillinu, grænmetið skorið
niður og portobello-sveppunum
skellt á grillið í nokkra stund til að
galdra fram bragðið. Morgunblaðið/Eggert
Grillaður dry age-
hamborgari
Spicy-majónes
4 hlutar majónes
1 hlutur shiracha
½ hlutur dijon-sinnep
salt
pipar
sítrónusafi
Portobello-sveppunum er velt
upp úr olíu, sojasósu og pipar, svo
grillaðir á annarri hliðinni í u.þ.b. 4
mínútur eða þar til þeir eru mjúkir
í gegn.
Hafsteinn Ólafsson, matreiðslumaður ársins í fyrra,
grillar hér fyrir okkur sjóðheitan hamborgara. Fyrir
valinu hjá Hafsteini varð nýjung á markaðinum sem
er dry age-hamborgari og fæst í Nettó. Kjötið er sagt
óvenjuskemmtilegt en við fögnum að sjálfsögðu alltaf
nýjungum sem gera grillmennskuna meira spennandi
Hittarinn í ár? Dry age
borgarinn á ábyggilega
eftir að slá í gegn.
Grillað rib eye með timiansmjöri
og kartöfluskífum
fyrir 4
4 x 250 g rib eye steikur
4 bökunarkartöflur
300 g smjör
ferskt timian
2 msk matarolía
salt
pipar
chilli flögur
Timiansmjör
300 g smjör, gott að taka úr kæli aðeins áður,
er sett í hrærivél og hrært. Þegar það er farið
að mýkjast er olíunni bætt úti og svo kryddað
til með fersku timian, salt, pipar og chilli flög-
um
Kartöflurnar skornar í 4 skífur hver, velt
upp úr olíu og salt og pipar og bakaðar í ofni við
200 gráður í 12 mín
Grillið hitað í botn og steikurnar kryddaðar
með salt, pipar og chilliflögum
Steikurnar grillaðar við fullan hita í 3 mín á
hvorri hlið og á sama tíma eru kartöfluskíf-
urnar grillaðar. Hitinn lækkaður á grillinu nið-
ur í 120 gráður og steikurnar settar þeim meg-
in sem slökkt er á brennurum. Grillinu lokað og
beðið í 6 mín,
Steikurnar látnar svo hvíla í 5-10 mín og gott
að gera fallegt salat til að bera fram.
Timian smjörinu er svo bætt ofan á steik-
urnar og borið fram með fallegu salati og kart-
öfluskífum
Grillaðar tígrisrækjur með chili mæjó,
sumarsalsa og súrdeigsbrauði
fyrir 4
16 tígrisrækjur
Marineraðar í eftirfarandi legi í 4 tíma
1dl matarolía
2 hvítlauksrif pressuð
2cm af rifnum engifer
börkur af einu lime
1 msk chilli flögur
nýmalaður svartur pipar
Chilli mæjó
400 g japanskt mayones
2 msk soya sósa
safi úr ½ lime
1 msk sambal olek
Allt sett í blender og blandað þar til tilbúið
Sumarsalsa
¼ kantalópa
½ mangó
1/8 ananas
ávextir flysjaðir og skornir í teninga
1 box cherry tómatar skornir í tvennt
1 sæt kartafla skorin í teninga og bökuð í ofni með
olíu í 14 mín 200 gráður
Öllu blandað saman í skál með olífuolíu, salti
og pipar og fersku salai bætt út í
Setjið rækjurnar á grillspjót og grillið á
sjóðandi heitu grilli í 3 mín á hvorri hlið og
munið að salta þær
Súrdeigsbrauðsneiðar grillaðar á sama tíma
þangað til að það fær fallegar grillrendur.
Brauðið er sett upp á disk og svo sum-
arsalsað oafn á það. Því næst rækjurnar á
spjótinu og svo chilli mæjó eftir smekk.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Grillað rib eye að hætti Svenna.
Sveinn Sævar Frímannsson þykir fremur flinkur
að elda enda gerir hann mikið af því.
Rækjurnar eru fallegar á diski.
Sveinn Sævar Frímannson heldur þétt um spaðana á hinum rómaða veitingastað Berlín á Akureyri. Sveinn, eða Svenni er jafnframt
afkastamikill grillari og þeir sem eru svo heppnir að fylgjast með honum á Snapchat fá oft hressandi matarmyndbönd úr blíðunni
fyrir norðan sem hefur verið með eindæmum undanfarið. Það var því auðsótt mál að fá hann til að grilla fyrir okkur tvo af sínum
uppáhaldsréttum en hér getur að líta klassískt rib eye og síðan rækjur sem ættu að falla vel í kramið á flestum bæjum.
Grillað rib eye
með timiansmjöri og kartöfluskífum
Tígrisrækjurnar eru grillaðar í 3 mínútur á hvorri hlið.
Prufið að grilla rækjur.
Þær eru sérlega
skemmtilegt hráefni
sem hægt er að mar-
inera á ótal vegu.