Morgunblaðið - 16.06.2018, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
SVEITARSTJÓRI
Upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson, thorir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Starfssvið:
• Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð
á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
• Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu
sveitarfélagsins og starfsmannamálum
• Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur
og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar
• Annast upplýsingamiðlun og samskipti við
samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa
• Að gæta hagsmuna Bláskógabyggðar út á við, vera
talsmaður sveitarstjórnar og vinna að framfaramálum
• Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar
í ólíkum málaflokkum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
• Þekking á sveitarstjórnarmálum og opinberri
stjórnsýslu
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Áhugi á uppbyggingu samfélagsins,
kynningarmálum, ímynd og stefnumótun
• Reynsla af mannauðsmálum
• Reynsla og/eða þekking af markaðsmálum
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Bláskógabyggð er framsækið sveitarfélag í örum vexti þar sem nú búa rúmlega 1100 íbúar. Sveitarfélagið varð
til árið 2002 við sameiningu þriggja hreppa, Biskupstungnahrepps, Laugardalshrepps og Þingvallahrepps.
Þrír þéttbýliskjarnar eru í sveitarfélaginu, Laugarás, Laugarvatn og Reykholt.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir starf sveitarstjóra laust til umsóknar.
BÆJARSTJÓRI AKUREYRAR
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur
• Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til árangurs
• Hæfni í að tjá sig í ræðu og riti
Starfssvið:
• Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og
sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af
bæjarstjórn og bæjarráði
• Bæjarstjóri undirbýr og situr fundi bæjarstjórnar og
bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt
• Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna
bæjarfélagsins og nánari útlistun á hlutverki
bæjarstjóra er að finna í 50. gr. samþykkta um stjórn
og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar
Starf bæjarstjóra er fjölbreytt, krefjandi en um leið gefandi og viðburðarríkt. Leitað er að aðila sem er atorkusamur, metnaðarfullur og
tilbúinn að leggja sig allan fram, býr yfir góðri reynslu og hefur einlægan áhuga á að ná árangi í starfi. Viðkomandi þarf að eiga góð
samskipti fyrir hönd bæjarfélagsins og vera talsmaður þess í samskiptum við íbúa, fjölmiðla, viðskiptavini og opinbera stjórnsýslu.
Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 19.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan
höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.
Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfar eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins
og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og
fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi