Morgunblaðið - 21.06.2018, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
BÆJARSTJÓRI AKUREYRAR
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur
• Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til árangurs
• Hæfni í að tjá sig í ræðu og riti
Starfssvið:
• Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og
sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af
bæjarstjórn og bæjarráði
• Bæjarstjóri undirbýr og situr fundi bæjarstjórnar og
bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt
• Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna
bæjarfélagsins og nánari útlistun á hlutverki
bæjarstjóra er að finna í 50. gr. samþykkta um stjórn
og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar
Starf bæjarstjóra er fjölbreytt, krefjandi en um leið gefandi og viðburðarríkt. Leitað er að aðila sem er atorkusamur, metnaðarfullur og
tilbúinn að leggja sig allan fram, býr yfir góðri reynslu og hefur einlægan áhuga á að ná árangi í starfi. Viðkomandi þarf að eiga góð
samskipti fyrir hönd bæjarfélagsins og vera talsmaður þess í samskiptum við íbúa, fjölmiðla, viðskiptavini og opinbera stjórnsýslu.
Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 19.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan
höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.
Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfar eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins
og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og
fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert.
BÆJARSTJÓRI
Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og hefur
yfirumsjón með starfsemi þess og sér um framkvæmd
þeirra ákvarðana sem bæjarstjórn tekur
• Bæjarstjóri skipuleggur og undirbýr dagskrá funda
bæjarráðs og bæjarstjórnar
• Bæjarstjóri gætir hagsmuna bæjarfélagsins út á við og
annast samskipti við stofnanir, fyrirtæki og samtök
• Sameining stofnana/skipulagsbreytingar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun er æskileg
• Farsæl reynsla á sviði rekstrar og stjórnunar
• Þekking og reynsla af stjórnun breytinga
æskileg
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og hæfni í
mannlegum samskiptum
• Áhugi á að takast á við uppbyggingu
bæjarfélagsins
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er skilyrði
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Sandgerði og Garður er nýtt sterkt sameinað sveitarfélag á Suðurnesjum með um 3.400 íbúa. Þar er fjölskyldu-
og barnvænt samfélag og kraftmikið atvinnulíf. Í sveitarfélaginu eru tvö ráðhús, bæði í Garði og Sandgerði, og hefur
bæjarstjóri starfsstöð í þeim báðum. Sjá nánar á www.sandgerdi.is og www.svgardur.is
Ný bæjarstjórn óskar eftir að ráða öflugan bæjarstjóra til að leiða sameinað sveitarfélag og þær breytingar sem hafnar eru.
Framundan eru fjölmörg krefjandi verkefni við að sameina íbúa og starfsfólk um nýtt sveitarfélag, og spennandi tækifæri sem
m.a. tengjast alþjóðaflugvelli í landi sveitarfélagsins.