Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 4

Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 BÆJARSTJÓRI AKUREYRAR Upplýsingar veitir: Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí nk. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur • Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum • Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til árangurs • Hæfni í að tjá sig í ræðu og riti Starfssvið: • Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af bæjarstjórn og bæjarráði • Bæjarstjóri undirbýr og situr fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt • Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna bæjarfélagsins og nánari útlistun á hlutverki bæjarstjóra er að finna í 50. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar Starf bæjarstjóra er fjölbreytt, krefjandi en um leið gefandi og viðburðarríkt. Leitað er að aðila sem er atorkusamur, metnaðarfullur og tilbúinn að leggja sig allan fram, býr yfir góðri reynslu og hefur einlægan áhuga á að ná árangi í starfi. Viðkomandi þarf að eiga góð samskipti fyrir hönd bæjarfélagsins og vera talsmaður þess í samskiptum við íbúa, fjölmiðla, viðskiptavini og opinbera stjórnsýslu. Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 19.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland. Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfar eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert. BÆJARSTJÓRI Upplýsingar veitir: Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 26. júní nk. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Starfs- og ábyrgðarsvið: • Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og hefur yfirumsjón með starfsemi þess og sér um framkvæmd þeirra ákvarðana sem bæjarstjórn tekur • Bæjarstjóri skipuleggur og undirbýr dagskrá funda bæjarráðs og bæjarstjórnar • Bæjarstjóri gætir hagsmuna bæjarfélagsins út á við og annast samskipti við stofnanir, fyrirtæki og samtök • Sameining stofnana/skipulagsbreytingar Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun er æskileg • Farsæl reynsla á sviði rekstrar og stjórnunar • Þekking og reynsla af stjórnun breytinga æskileg • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum • Áhugi á að takast á við uppbyggingu bæjarfélagsins • Þekking á opinberri stjórnsýslu er skilyrði • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Sandgerði og Garður er nýtt sterkt sameinað sveitarfélag á Suðurnesjum með um 3.400 íbúa. Þar er fjölskyldu- og barnvænt samfélag og kraftmikið atvinnulíf. Í sveitarfélaginu eru tvö ráðhús, bæði í Garði og Sandgerði, og hefur bæjarstjóri starfsstöð í þeim báðum. Sjá nánar á www.sandgerdi.is og www.svgardur.is Ný bæjarstjórn óskar eftir að ráða öflugan bæjarstjóra til að leiða sameinað sveitarfélag og þær breytingar sem hafnar eru. Framundan eru fjölmörg krefjandi verkefni við að sameina íbúa og starfsfólk um nýtt sveitarfélag, og spennandi tækifæri sem m.a. tengjast alþjóðaflugvelli í landi sveitarfélagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.