Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 3
Sveitarstjóri
Í Vopnafjarðarhreppi búa
tæplega 700 manns í
þéttbýli og dreifbýli. Aðal
atvinnugreinar svæðisins
eru fiskveiðar, fiskverkun,
iðnaður, þjónusta og
landbúnaður. Sveitarfélagið
rekur grunnskóla, leikskóla,
hjúkrunardeild og fleira auk
þess sem framhaldsskóladeild
er starfrækt í samstarfi við
framhaldsskólann á Laugum.
Ungu fólki fjölgar og er
áhersla lögð á að íbúar á
öllum aldri fái þjónustu við
hæfi. Á Vopnafirði eru miklir
möguleikar til útivistar og
afþreyingar í fallegum firðinum
og ferðaþjónusta í sókn. Svæðið
er einnig þekkt sem ein besta
stangveiðiparadís landsins.
capacent.is/s/6854
:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri æskileg.
Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð skipulagshæfni og metnaður.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
9. júlí
Starfssvið:
Er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og æðsti yfirmaður
starfsfólks.
Hefur yfirumsjón með fjármálum og rekstri sveitarfélagsins.
Undirbýr og situr fundi sveitarstjórnar auk þess að annast
framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar.
Samskipti og samvinna við ýmsa aðila fyrir hönd
sveitarfélagsins.
Aðkoma að stefnumörkun og áætlanagerð.
Vopnafjarðarhreppur óskar eftir að ráða öflugan leiðtoga í starf sveitarstjóra. Leitað er að jákvæðum og hugmyndaríkum
einstaklingi með hæfni í mannlegum samskiptum. Sveitarstjóri þarf að vera talsmaður sveitarfélagsins út á við sem innan og
hafa metnað og áhuga fyrir uppbyggingu og þróun samfélagsins.
BÆJARSTJÓRI AKUREYRAR
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur
• Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til árangurs
• Hæfni í að tjá sig í ræðu og riti
Starfssvið:
• Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og
sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af
bæjarstjórn og bæjarráði
• Bæjarstjóri undirbýr og situr fundi bæjarstjórnar og
bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt
• Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna
bæjarfélagsins og nánari útlistun á hlutverki
bæjarstjóra er að finna í 50. gr. samþykkta um stjórn
og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar
Starf bæjarstjóra er fjölbreytt, krefjandi en um leið gefandi og viðburðarríkt. Leitað er að aðila sem er atorkusamur, metnaðarfullur og
tilbúinn að leggja sig allan fram, býr yfir góðri reynslu og hefur einlægan áhuga á að ná árangi í starfi. Viðkomandi þarf að eiga góð
samskipti fyrir hönd bæjarfélagsins og vera talsmaður þess í samskiptum við íbúa, fjölmiðla, viðskiptavini og opinbera stjórnsýslu.
Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 19.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan
höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.
Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfar eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess. Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins
og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og
fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert.