Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
igurbjörn Magnússon er orð-
inn spenntur fyrir því að
landsmót hestamanna hefj-
ist enda mun viðburðurinn
marka hápunktinn á löngu
og ströngu ferli sem hófst fyrir rösk-
lega tveimur árum. „Það var á vor-
mánuðum 2016 að samningar náðust
um að breyta út af vananum og láta
hestamannafélagið Fák sjá um að
halda landsmótið árið 2018 á fé-
lagssvæði sínu í Víðidalnum. Í fram-
haldinu var stofnað sérstakt einka-
hlutafélag, LM 2018 ehf., utan um
verkefnið og verður landsmótið að
þessu sinni á vissan hátt prófraun á
það hvort framhald verður á því að
halda mótin áfram með þessu sniði,“
segir Sigurbjörn og bætir við að gert
sé ráð fyrir að sama fyrirkomulag
verði á næsta landsmóti á Gadd-
staðaflötum við Hellu.
Veitir aðhald og sveigjanleika
Í byrjun árs 2017 var Sigurbjörn feng-
inn til að gerast stjórnarformaður LM
2018 ehf. Hann segir þetta fyr-
irkomulag á mótshaldinu hafa ýmsa
kosti í för með sér og skapa í senn að-
hald og sveigjanleika fyrir Fák. „Fák-
ur hefur lagt allan sinn metnað í að
undirbúa viðburðinn sem best og feng-
ið myndarlegan stuðning frá Reykja-
víkurborg til að lagfæra keppn-
issvæðið og gera aðstöðuna alla hina
glæsilegustu. Þær framkvæmdir
munu síðan nýtast Fáksmönnum að
mótinu loknu og styðja við starf félags-
ins,“ segir Sigurbjörn.
Landsmót 2018 er risastórt verkefni
og má reikna með að viðburðurinn
kosti um 120 milljónir króna. Með sölu
á aðgöngumiðum tekst að mæta
megninu af kostnaðinum en að auki
koma til tekjur svo sem með sölu aug-
lýsinga, beinu streymi frá mótinu og
frá styrktaraðilum, og eins með því að
leigja seljendum vöru og þjónustu
pláss á svæðinu. Í aðdraganda mótsins
lítur tekjuhliðin vel út, miðasala hefur
farið ágætlega af stað og allar horfur
eru á að takist að reka viðburðinn með
afgangi. „Margir leggja hönd á plóg og
munar mjög um framlag sjálfboðaliða
úr röðum Fáksmanna og annars stað-
ar frá, bæði í aðdraganda mótsins og á
meðan mótið stendur yfir,“ segir Sig-
urbjörn. „Öll sú vinna sem lögð hefur
verið í undirbúning landsmótsins fram
til þessa er að skila sér í því að allt
Fákssvæðið er orðið ákaflega fallegt
og mun taka vel á móti landsmóts-
gestum. Svo er bara að vona að lands-
mótsblíðan skili sér.“
Eins og nefnt var hér að framan
verður landsmót hestamanna næst
haldið á Hellu árið 2020 og síðan árið
2022 á félagssvæði Spretts í Kópavogi.
Segir Sigurbjörn að eftir þessi mót
verði komin ágætis reynsla á hvaða
fyrirkomulag henti best mótahaldi af
þessum toga. Hann telur vel koma til
greina að hestamenn sameinist jafnvel
um að halda landsmót alltaf á einum
og sama stað. „Á margan hátt er Víði-
dalurinn hentugasti staðurinn á land-
inu til að halda landsmót og eðlilegt að
hestamenn skoði hvort tímabært sé að
þeir komi sér saman um val á einum
stað til að halda mótið. Með því að
velja hentuga staðsetningu má bæði
reikna með að auðveldara verði að ná
fram ásættanlegum hagnaði af mótinu
og þróa stefnu til lengri tíma um fram-
kvæmdir og uppbyggingu til að gera
umgjörðina sífellt glæsilegri í hvert
sinn sem blásið er til landsmóts. Það
gæti orðið hestamennskunni til fram-
dráttar.“
Áhuginn kviknaði á unglingsárunum
Það er gaman að vinna við það sem
maður hefur gaman af og því kemur
ekki á óvart að Sigurbjörn kvarti ekki
yfir því álagi sem hefur fylgt því að
undirbúa mótið. Hann veit líka, eins og
flestir hestmenn, að það virðist ein-
hvern veginn alltaf hægt að finna tíma
til að sinna hestunum þrátt fyrir aðrar
annir daglegs lífs. „Stundum hugsa ég
með mér þegar líður að jólum og fer að
verða tímabært að taka hestana aftur í
hús, hvernig ég eigi að finna tíma til að
sinna þeim, en svo þegar þeir eru
komnir gerist það bara einhvern veg-
inn,“ segir Sigurbjörn, sem var tán-
ingur þegar hann smitaðist af hesta-
bakteríunni:
„Ég var ekki alinn upp við hesta-
mennsku en á unglingsárunum fékk
ég tækifæri til að ríða út hjá frændfólki
mínu á Kiðafelli í Kjós, þaðan sem ég
er ættaður og geri út mína hestaút-
gerð á sumrin enn þann dag í dag. Eitt
leiddi af öðru og fyrr en varði var ég
farinn að stunda það af kappi að ríða út
með hinum krökkunum á Kiðafelli og í
Kjósinni. Loks keypti ég 17 ára gamall
minn fyrsta hest árið 1976 af hinum
góðkunna hestamanni Sveini Jóhanns-
syni á Varmalæk fyrir milligöngu míns
ágæta vinar og kollega Jóhanns Pét-
urs Sveinssonar heitins.“
Hestarnir næra sálina
Þar sem fjölskyldan átti jörð uppi í
Kiðafelli hafði Sigurbjörn góðan og
ódýran aðgang að sumar- og haustbeit
fyrir hestana sína og til að byrja með
hjálpuðu foreldrar Sigurbjörns honum
að halda tvo hesta yfir veturinn. Það
dró ekki úr áhuganum eftir að Sig-
urbjörn hóf laganám við Háskóla Ís-
lands og tók samhliða því þátt í ýmsu
pólitísku vafstri. „Þá naut ég þess að
geta farið upp í hesthús til að safna
kröftum með því að moka skít og viðra
mig á góðum hesti og það sama gildir í
dag þegar mig vantar góða hvíld frá
lögmannsstörfum,“ segir hann.
Sigurbjörn man eftir því hvenær
það var ljóst að hann myndi ekki
læknast af hestaáhuganum. „Hesta-
mennskan snýst ekki hvað síst um
góðan félagsskap annarra hestamanna
og það er fátt sem ég hef meira gaman
af en að ferðast um landið á hestbaki í
góðum hópi fólks. Það var einmitt í
hópreið á mitt fyrsta landsmót sem ég
fann þetta svo sterkt, en við fórum ríð-
andi saman heil hersing af knöpum og
hestum úr Kjósinni til Þingvalla árið
1978. Það var afskaplega ánægjuleg
ferð, eftirminnilegt landsmót og jafn-
framt það síðasta sem haldið var á
þessum merka stað,“ segir hann.
„Núna erum við hjónaleysin að fara í
hestaferð strax eftir landsmót með
góðum vinum og þá liggur leiðin í Öx-
arfjörð, með bökkum Jökulsár á Fjöll-
um og inn í Ásbyrgi.“
Landsmót hestamanna verður rekið með nýju sniði í ár. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Fákssvæðinu og mun efla félagið
að mótinu loknu. Ýmsir kostir myndu fylgja því að velja mótinu fastan stað og gæti það orðið hestamennskunni til framdráttar
Morgunblaðið/Valli
Sigurbjörn ásamt sambýliskonu sinni Hlíf Sturludóttur en þau eiga saman hesthús í Víðidal og koma þar nær daglega yfir vetartímann og eru dugleg að ríða út á þeim góðu reiðleiðum sem þar er að finna.
Hestamennskan snýst ekki
hvað síst um góðan félags-
skap annarra hestamanna
og það er fátt sem ég hef
meira gaman af en að
ferðast um landið á hest-
baki í góðum hópi fólks
Vert að skoða að halda mótið alltaf á sama stað
Unga fólkið má ekki missa
tenginguna við hestinn
Sigurbjörn var lánsamur að eiga þess kost að vera í kringum hesta þótt for-
eldrar hans væru ekki hestamenn. Hann segir eðlilegt að hafa af því áhyggjur
í dag að ungir Íslendingar kunni í vaxandi mæli að missa tenginguna við hest-
inn með þeim afleiðingum að það dragi smám saman úr nýliðun í samfélagi
hestamanna. „Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref í sportinu voru valkost-
irnir færri. Í mörgum landshlutum og í sveitum landsins var það helsta
skemmtunin sem fólk gat stundað hversdags að fara í góðan útreiðartúr að
kvöldi eftir heyverkin eða önnur störf til að lyfta sér upp, og stundum bikar
með til að lyfta sálinni.“
Síðan þá hefur framboðið á alls kyns íþróttum og afþreyingu stóraukist og
segir Sigurbjörn ekki sjálfgefið að hestaíþróttin geti keppt við alla hina mögu-
leikana sem unga fólkið getur valið úr. „Lífsstíll fólks hefur líka breyst, t.d.
með tíðari utanlandsferðum, og mörgum getur þótt hestasportið, þótt það sé
ánægjulegt, vera of bindandi enda kalla hestarnir á að maður getur ekki leyft
sér að fara mikið í burtu á vissum tímum árs – sérstaklega þegar hestar eru á
húsi og þarfnast daglegrar umhirðu.“
Á móti kemur að óvíða í heiminum er aðgengi að hestum jafn gott og á Ís-
landi og segir Sigurbjörn að það sé einstakt að finna aðstöðu eins og Fákur
hefur byggt upp innan borgarmarkanna. „Hestamannafélögin leggja sig líka
fram við að greiða unga fólkinu leið inn í hestamennskuna og er t.d. metn-
aðarfullt reiðskólastarf fyrir börn rekið á sumrin á Fákssvæðinu og á vetrum
hefur Fákur boðið ungum knöpum, sem eru að stíga sín fyrstu skref í hesta-
haldi, aðstöðu til að halda hesta á hagstæðu verði,“ segir Sigurbjörn og bætir
við að það sé aldrei of seint að byrja og fullorðnum standi líka til boða að fara
á námskeið hér og þar. „Þeir sem vilja þreifa sig áfram geta t.d. fengið að
setjast á hest hjá einni af hestaleigunum og svo í framhaldinu farið í lengri
skipulagða hestaferð til að máta sig við sportið og sjá hvort þeir uppgötva
ekki eitthvað alveg einstakt á bakinu á góðum klár úti í íslenskri náttúru.“