Morgunblaðið - 29.06.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.06.2018, Blaðsíða 18
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ að segir ýmislegt um ágæti íslenska hestsins hvað honum hefur tekist að ná miklum vinsældum víða um heim þrátt fyrir skort á samhæfðu kynningar- og markaðs- starfi. „Af ýmsum ástæðum hefur ekki verið mikil samvinna í kringum það að kynna íslenska hestinn og fólk unnið hvað í sínu horninu að reyna að koma honum á framfæri,“ segir Jelena Ohm. „Þetta breyttist árið 2015 þegar hagsmunaaðilar í hestabransanum ákváðu að snúa bökum saman og hleyptu verkefn- inu Horses of Ice- land af stokk- unum.“ Jelena er verk- efnastjóri Horses of Iceland hjá Ís- landsstofu og segir hún verk- efnið hafa náð góðum árangri. Í tjaldi sem Horses of Iceland (www.horsesoficeland.is) setur upp á mótssvæðinu, nálægt fé- lagsheimili Fáks, verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá alla mótsdag- ana, fyrirlestra og kvikmyndasýn- ingar, en líka ýmsa óvænta viðburði. „Markaðsverkefnið, sem er alþjóðlegt, hófst með formlegri stefnumótun. Haldnir voru vinnu- fundir með hagsmunaaðilum til að tryggja að þekking og reynsla allra þeirra sem starfa í greininni, í rækt- un, útflutningi á hestinum og vörum honum tengdum, sem og í þjónustu, nýttust í vinnunni og hugmyndir þeirra almennt. Eftir mikla vinnu og ítarlega rýni, jafnt innanlands sem utan, þróuðum við stefnu til að vinna eftir og gerðum aðgerðaáætlun og nýtt vörumerki varð til: Horses of Iceland – Bring you closer to nat- ure,“ útskýrir Jelena. „Útgangs- punkturinn er að íslenski hesturinn flytur okkur á ótroðnar sloðir og leyfir okkur að upplifa töfra náttúr- unnar. Markmiðið er að auka vitund um íslenska hestinn um heim allan og leggja grunn að aukinni verð- mætasköpun í tengslum við hann.“ Markviss markaðssetning Samkvæmt samningi við hið opin- bera taka stjórnvöld þátt í verkefn- inu með því að jafna þau framlög sem koma frá greininni, krónu á móti krónu. Jelena segir tilgang Horses of Iceland bæði að kynna og styðja við hagsmuni útflytjenda ís- lenskra hesta en líka efla hesta- tengda þjónustu, ferðaþjónustu og sölu á vörum tengdum hestinum. „Við byrjuðum á erlendum ferða- mönnum á Íslandi og fólkinu sem er viðriðið íslenska hestinn í útlöndum en síðarnefndi hópurinn er á margan hátt okkar sendiherrar og elskar yfirleitt allt sem íslenskt er,“ upp- lýsir Jelena. „Frá árinu 2018 færð- um við síðan áhersluna yfir á hesta- fólk sem er kunnugt öðrum hesta- kynjum með það fyrir augum að fræða það betur um eiginleika ís- lenska hestsins og reyna að draga úr smáhesta-stimplinum og ýmsu öðru sem hefur loðað við ímynd hans.“ Hófst með Nonna og Manna Jelena þekkir það frá fyrstu hendi hversu auðvelt það getur verið fyrir Íslenski hesturinn á mikið inni Unnið er að því með markvissum hætti að kynna íslenska hestinn erlendis og þannig renna sterkari stoðum undir hestatengda ferðaþjónustu og út- flutning hestaræktenda Ljósmyndir/Horses of Iceland Í hugum margra er íslenski hesturinn hápunktur heimsóknar til Íslands. SU N N U DAGU R 1. JÚLÍ 11:30 - 12:15 Knapamerki vinnufundur: Hvernig viltu hafa öðruvísi reiðpróf? Hlín Jóhannesdóttir, verkefnastjóri Knapamerkjakerfis 16:00 - 18:00 Verðlaunaafhendingar barna og partí M Á N U DAGU R 2. JÚLÍ 15:40 - 16:00 Líkamlegar mælingar á knöpum Vilfríður Sæþórsdóttir, meistaranemi í íþróttavísindum og þjálfun Þ R I Ð J U DAGU R 3. JÚLÍ 13:15 - 13:45 Duplo járningar Stephan Becker, járningameistari og leiðbeinandi M I Ð V I KU U DAGU R 4. JÚLÍ 12:10 - 12:40 Hæsta 5. stig 2018: Knapamerkjapróf sýnt 12:45 - 13:15 Hrímnir sýnikennsla 18:15 - 18:45 Sýnikennsla: Þjálfunarstigin – hross frá Sólvangi á mismunandi þjálfunarstigum sýnd Sólvangur Icelandic Horse Center F I M M T U DAGU R 5. JÚLÍ 12:15 - 12:45 FT sýnikennsla F Ö ST U DAGU R 6. JÚLÍ 09:45 - 10:15 Rob Krabbenborg, dýranæringarfræðingur hjá Pavo Horsefeed 12:45 - 13:15 Laura Bas Conn, dýralæknir og meistaranemi hjá sænska landbúnaðarháskólanum 17:35 - 18:05 Rob Krabbenborg, dýranæringarfræðingur hjá Pavo Horsefeed L AUGA R DAGU R 7. JÚLÍ 11:45 - 12:15 Rob Krabbenborg, dýranæringarfræðingur hjá Pavo Horsefeed 16:15 - 16:45 Hnakkurinn og virkni hans Hrímnir SU N N U DAGU R 8. JÚLÍ 13:00 - 13:45 Áhrif skeiðgensins á ganghæfni íslenskra hrossa Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður í hrossarækt M Á N U DAGU R 9. JÚLÍ Opið hús hjá Vesturkoti Opið hús á Kjarri Jelena Ohm Horses of Iceland mun halda áfram að fræða heiminn um kosti íslenska hestsins og þannig styðja við verðmætar atvinnugreinar sem eru honum tengdar. Lengi vel fór ekki fram eitt samhæft kynningarstarf á íslenska hestakyninu. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.