Morgunblaðið - 29.06.2018, Side 22

Morgunblaðið - 29.06.2018, Side 22
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kampakát börn á námskeiði. Fákur reynir að koma til móts við unga fólkið með ýmsum hætti. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is F áksmenn hafa notað tímann vel og undirbúið glæsilegt mótssvæði fyrir Landsmót hestamanna 2018. „Við gáf- um okkur ráðrúm til að spjalla og hugsa málin, og gátum byrjað að framkvæma með mark- vissum hætti síðastliðin tvö-þrjú ár með dyggum stuðningi Reykjavík- urborgar,“ segir Hjörtur Bergstað. „Við erum í raun búin að taka allt svæðið í gegn og laga það að nú- tímakröfum hestaíþrótta. Miklar breytingar hafa átt sér stað síðan landsmót var síðast haldið á þessum sama stað árið 2012.“ Hjörtur er formaður Hesta- mannafélagsins Fáks, en Lands- mótið nú er það fyrsta þar sem Fák- ur annast alla framkvæmd mótsins frekar en bara að bjóða aðstöðu. „Það hefur ýmsa kosti í för með sér að mótið sé alfarið á herðum Fáks. Við þurfum að halda vel á spilunum enda sitjum við uppi með það tap eða hagnað sem verður af mótinu, og þá er á margan hátt betra að halda utan um vel heppnað mót þeg- ar ekki eru of margir sem halda um stýrið,“ segir hann. „Af ýmsum ástæðum hefur rekstur landsmóta hestamanna ekki gengið vel upp á síðkastið og skiljanlegt er að að- standendur mótsins hafi verið til- búnir að prófa annars konar rekstr- armódel.“ Að sögn Hjartar eru Fáksmenn brattir og bjartsýnir. „Við höfum fulla trú á að það muni reynast vel að halda landsmótið hér í Reykjavík og þykir ánægjulegt að geta boðið íbúum höfuðborgarsvæðisins, lands- byggðarfólki og erlendum gestum að upplifa hér í Víðidal það sem verður stærsti íþróttaviðburður Íslands þetta árið.“ Svæðið verið tekið í gegn Svæði Fáks hefur verið tekið í gegn frá því smæsta til hins stærsta og nefnir Hjörtur sem dæmi að búið sé að leggja rafmagn og ljósleiðara um- hverfis keppnisvellina svo að auð- veldara verði að sinna æ meiri tæknilegum kröfum í kringum allt mótshald. „Mótið varð okkur líka hvati til að setja meiri slagkraft í viðhald og viðgerðir, en sýnilegustu breytingarnar snúa að sjálfu móts- svæðinu þar sem m.a. var byggð mön svo að skeiðbrautin minnir um margt á rómverskt hringleikahús. Kynbótasýningavöllurinn var líka færður til og umhverfið þar allt um kring lagfært,“ telur Hjörtur upp. „Þökk sé myndarlegum styrk frá Reykjavíkurborg höfum við líka get- að tekið reiðhöllina okkar í gegn í fyrsta sinn frá því að þetta 30 ára mannvirki var reist, og lítur höllin núna út eins og ný. Búið er að fara yfir allt svæði Fáks frá A til Ö, með allsherjar hreingerningu og lagfær- ingum; málað, dyttað að og grasið slegið, og ekkert að vanbúnaði.“ Hjörtur segir að það að hafa feng- ið að hýsa landsmót hafi eflt starf- semi Fáks til muna. „Þetta hefur verið greinileg vítamínsprauta fyrir alla starfsemi félagsins og uppbygg- inguna á svæðinu, orðið okkur hvati til að ráðast í verkefni sem hafa fengið að sitja á hakanum, og gerir okur reiðubúin að sinna starfseminni af miklum myndarbrag að mótinu loknu.“ Aðstaða eins og best verður á kosið Hinn almenni félagsmaður hefur fengið að taka virkan þátt í undir- búningi landsmótsins og voru haldn- ir reglulegir fundir til að þétta rað- irnar og kalla eftir hugmyndum og athugasemdum vegna viðburðarins. „Við höfum haldið reglulega hreins- unar- og viðhaldsdaga sem hafa ver- ið með skemmtilegustu viðburðunum í félagslífi Fáks. Þar hafa allir lagst á eitt og eftir að hafa tekið til hend- inni höfum við grillað og haft það huggulegt,“ segir Hjörtur. Margir Fáksmenn munu bjóða fram vinnu sína á mótinu og hjálpa félaginu að taka vel á móti þeim þúsundum gesta sem væntanlegir eru, og að auki leyfa Fáksmenn keppendum að fá afnot af hesthúsunum. „Við mælt- umst til þess við félagsmenn að bjóða keppendum aðstöðu í hest- húsum sínum rétt eins og á mótinu 2012 og hefur verið vel í það tekið. Veitir þetta keppendum mikil þæg- indi enda stutt að skjótast eftir hest- unum þegar þeirra er þörf en þess á milli hægt að njóta tímans á lands- mótssvæðinu til að fylgjast með sýn- ingunum, skoða allt það sem er um að vera utan keppnisvallanna og eiga ánægjulega samveru með öðr- um hestamönnum.“ Allir leggjast á eitt til að halda gott landsmót Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á svæði Fáks í Víðidal og aðbún- aður fyrir Landsmót hestamanna 2018 er hinn glæsilegasti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjörtur Bergstað með ungum knapa. Hann segir það hafa þjappað félagsmönnum Fáks saman að undirbúa Landsmót hestamanna. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 Fákur hefur alla burði til að halda gott landsmót enda félagið fjölmennt og á besta stað. Hjörtur segir félagsmenn á bilinu 1.400 til 1.500 talsins og eiga þeir samtals í kringum 3.000 hesta. Starfsemin dreifist yfir þrjú svæði: Sprengisand við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar, þar sem m.a. er blómlegt hestastarf fyrir eldri borgara, æfingasvæð- ið uppi í Víðidal og loks nýtt svæði sem verið er að byggja upp í Almannadal. Að sögn Hjartar er mjög sjaldgæft að finna hest- húsabyggð svona nálægt borgarkjarna og er það mikill lúxus fyrir borgarbúa að geta hæglega skotist upp í hesthús fyrir vinnu, í hádegishléinu eða í lok dags til að huga að hestunum. „Það er helst í Hyde Park í London að finna má eitthvað þessu líkt og þá aðallega fyrir hesta hennar hátignar. Eru ekki nema 50 metrar í næsta íbúðahús og aðeins 500 metrar upp í ósnortna náttúru Heiðmerkur. Návíginu við borgina fylgir þó að við þurfum að deila fallegum útivistarsvæðum og náttúruparadís með gangandi, skokkandi, hjólandi og akandi vegfarendum og verða allir að gæta þess að sýna öðrum tillitssemi.“ Lúxus að hafa hesta svona nálægt borgarkjarna Hjá hestamannafélögum eins og Fáki má greina vel þróunina í hestasportinu. Hjörtur segir að fólk tengist Fáki iðulega mjög sterkum böndum, og margir sinni hestamennskunni af lífi og sál, en engu að síður geti ýmsar ytri að- stæður haft áhrif á það hvort fjölgi eða fækki í félaginu. „Við fundum t.d. fyrir ákveðnu höggi, eins og aðrir, árið 2008. Þá minnkuðu margir við sig og byrjuðu að stunda hestamennskuna með öðr- um hætti en áður og þurftu að sýna ákveðið aðhald.“ Til að bregðast við ástandinu í samfélaginu ákvað Fákur að leggja sitt af mörkum. „Við vildum stuðla að nýliðun hjá yngstu aldurshóp- unum og ákváðum árið 2013 að nota félagshesthúsið með þeim hætti að börnum og ungmennum á aldrinum 10 til 21 árs stendur þar til boða að fá lánaða hesta og stunda hestamennsku með að- stoð reiðkennara. Þar geta þau verið hjá okkur í 2-3 ár, nánast á kostnaðarverði, til að stíga sín fyrstu skref inn í heim íslenska hestsins,“ útskýrir Hjörtur. „Í öllu ungmennastarfinu gætum við þess að gera hestamennskuna fjárhagslega aðgengilega, og ekki of flókna; svo að tíminn sem börn- in eru hjá okkur snúist um að njóta samverunnar við hestinn.“ Leggja áherslu á unga fólkið Stóðhestar með afkvæmum Heiðursverðlaun (í stafrófsröð) IS1999135519 Aðall frá Nýjabæ Litur: 3500 Jarpur/milli- einlitt Ræktandi: Ólöf Kolbrún Guðbrandsdóttir Eigandi: Ólöf Kolbrún Guðbrandsdóttir Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 112 stig Hæfileikar: 120 stig Aðalein.: 121 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 53 IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi Litur: 1521 Rauður/milli- stjörnótt glófext Ræktandi: Magnús Jósefsson Eigandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Ingolf Nordal Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 112 stig Hæfileikar: 124 stig Aðalein.: 125 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 57 IS2003181962 Ómur frá Kvistum Litur: 6520 Bleikur/kolóttur stjörnótt Ræktandi: Kvistir ehf. Eigandi: Kvistir ehf. Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 113 stig Hæfileikar: 120 stig Aðalein.: 122 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 73 IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti Litur: Jarpur/korg- einlitt Ræktandi: Finnur Ingólfsson Eigandi: Hulda Finnsdóttir Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 113 stig Hæfileikar: 128 stig Aðalein.: 129 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 77 1. Verðlaun (í stafrófsröð) IS2007186189 Arion frá Eystra-Fróðholti Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt Ræktandi: Ársæll Jónsson Eigandi: Ársæll Jónsson, Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 109 stig Hæfileikar: 126 stig Aðalein.: 126 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 23 IS2007166206 Eldur frá Torfunesi Litur: 1690 Rauður/dökk/dreyr- blesa auk leista eða sokka Ræktandi: Anna Fjóla Gísladóttir, Karyn B MC Farland, Ræktunarbúið Torfunesi ehf. Eigandi: Anna Fjóla Gísladóttir, Gísli Baldvin Björnsson, Karyn B MC Farland Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 124 stig Hæfileikar: 119 stig Aðalein.: 124 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 16 IS2007182575 Hákon frá Ragnheiðarstöðum Litur: 1510 Rauður/milli- skjótt Ræktandi: Hannes Sigurjónsson, Helgi Jón Harðarson, Inga Cristina Campos Eigandi: Ræktunarfélagið Hákon ehf. Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 116 stig Hæfileikar: 122 stig Aðalein.: 124 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 15 IS2006158620 Hrannar frá Flugumýri II Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt Ræktandi: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Páll Bjarki Pálsson Eigandi: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Júlía Kristín Páls- dóttir, Þórdís Inga Pálsdóttir Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 108 stig Hæfileikar: 121 stig Aðalein.: 122 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 24 IS2007186992 Jarl frá Árbæjarhjáleigu II Litur: 1541 Rauður/milli- tvístjörnótt glófext Ræktandi: Marjolijn Tiepen Eigandi: Marjolijn Tiepen Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 111 stig Hæfileikar: 122 stig Aðalein.: 123 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 15 IS2009157651 Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði Litur: 1510 Rauður/milli- skjótt Ræktandi: Benedikt G. Benediktsson Eigandi: Ræktunarfélagið Lukku Láki ehf. Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 122 stig Hæfileikar: 118 stig Aðalein.: 122 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 16 IS2005157994 Óskasteinn frá Íbishóli Litur: 3500 Jarpur/milli- einlitt Ræktandi: Magnús Bragi Magnússon Eigandi: Magnús Bragi Magnússon Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 97 stig Hæfileikar: 129 stig Aðalein.: 125 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 29 IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt Ræktandi: Kirkjubæjarbúið sf. Eigandi: Hoop Alexandra Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 111 stig Hæfileikar: 120 stig Aðalein.: 121 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 15 IS2007184162 Skýr frá Skálakoti Litur: 1550 Rauður/milli- blesótt Ræktandi: Guðmundur Jón Viðarsson Eigandi: Guðmundur Jón Viðarsson, Jakob Svavar Sig- urðsson Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 129 stig Hæfileikar: 123 stig Aðalein.: 128 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 17 IS2005135936 Trymbill frá Stóra-Ási Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt Ræktandi: Lára Kristín Gísladóttir Eigandi: Mette Camilla Moe Mannseth Kynbótamat – BLUP: Sköpulag: 107 stig Hæfileikar: 124 stig Aðalein.: 124 stig Fjöldi afkvæma m. fullnaðardóm: 15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.