Fréttablaðið - 15.10.2018, Page 6
Original Formula
styður við og styrkir
• eðlilega starfsemi hjarta-
og æðakerfisins
• ónæmiskerfið
100% lífrænn, lyktarlaus
og fer vel í maga
fylgdu
hjartanu
DÓMSMÁL Fimm dómþolar af átta
í umfangsmesta fjársvikamáli
íslenskrar réttarsögu hafa áfrýjað
dómnum og krefjast sýknu þar sem
meint brot þeirra hafi verið fyrnd.
Þetta kemur fram í greinargerðum
verjenda þeirra fyrir Landsrétti.
Aðalmeðferð fer fram á föstudag.
Hinn áfrýjaði dómur var kveðinn
upp í Héraðsdómi Reykjaness í apríl
í fyrra. Fólkið var þá sakfellt fyrir
hátt í 300 milljóna fjársvik og pen-
ingaþvætti, sem átti sér stað árin
2009-2010, en þyngd refsinga var á
bilinu þriggja mánaða til fjögurra
ára fangelsi. Allar voru þær bundnar
skilorði til þriggja ára sökum þess
hve langan tíma meðferð málsins
tók hjá lögreglu og ákæruvaldi. Hið
stolna fé hefur aldrei fundist.
Halldór Jörgen Gunnarsson,
fyrrverandi starfsmaður Ríkis-
skattstjóra (RSK), hlaut þyngstan
dóm fyrir brot í opinberu starfi og
peningaþvætti. Tók hann á móti
skráningum tveggja félaga á virðis-
aukaskattskrá og samþykkti til-
hæfulausar virðisaukaskattskýrslur
þeirra. Afleiðingin var sú að félögin
fengu alls 278 milljónir endur-
greiddar frá ríkinu.
Næstþyngstan dóm hlaut Stein-
grímur Þór Ólafsson, þrjátíu mán-
aða fangelsi, fyrir peningaþvætti
en hann skipulagði hvernig staðið
yrði að úttekt hins illa fengna fjár af
reikningum félaganna tveggja. Hvor-
ugur þeirra áfrýjaði dómi sínum. Hið
sama gildir um 42 ára karlmann sem
játaði brot sín í héraði. Þá voru hin
sakfelldu ekki dæmd til að endur-
greiða hinn ólögmæta ávinning þar
sem Steingrímur sagði fyrir dómi að
hann hefði afhent óþekktum manni
þá.
Aðrir sem sakfelldir voru áfrýja
hins vegar dómnum og gera kröfu
um sýknu af kröfum ákæruvaldsins.
Sú krafa er í flestum tilfellum byggð
á þeim grunni að meint brot þeirra
hafi verið fyrnd þegar dómur var
kveðinn upp í héraði.
Dæmd brot í héraðsdómi stóðu
yfir frá september 2009 til sumars-
ins 2010. Rannsókn lögreglu hófst á
haustmánuðum þess árs. Í upphafi
árs 2011 hægðist mjög á rannsókn-
inni og lýsir einn verjandi því að hún
hafi „verið í skötulíki“ frá þeim tíma
og þar til ákæra var gefin út í mars
2016. Í millitíðinni, í júní 2014, voru
rannsóknargögn send ákæruvaldi.
Ástæðan fyrir skilorðsbindingu
dóma í héraði var þessi dráttur en
ekki var vikið að sjónarmiðum um
fyrningu brota þó verjendur hafi
komið inn á þau í málflutningi
sínum. Í almennum hegningarlögum
segir að fyrningarfrestur brota rofni
þegar rannsókn sakamáls hefst. Þó
segir að rannsókn rjúfi ekki frestinn
ef hín stöðvast um óákveðinn tíma.
Það hafi tvímælalaust gerst í þessu
máli og því rétt að sýkna ákærðu.
joli@frettabladid.is
Telja meint brot í hundraða
milljóna fjársvikamáli fyrnd
Dómþolar í umfangsmesta fjársvikamáli sögunnar telja að rannsókn á brotum þeirra hafi stöðvast um
ótilgreindan tíma og því hafi rannsóknin ekki rofið fyrningu. Höfuðpaurar málsins áfrýja ekki. Ríflega 200
milljóna ávinningur brotanna hefur aldrei fundist. Aðalmeðferð í áfrýjuðu máli í Landsrétti á föstudaginn.
Frá upphafi aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjaness. Allir dómar í
málinu voru skilorðsbundnir vegna þess hve lengi það dróst. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Áfrýjaðir dómar
B, 44 ára karl, var sakfelldur fyrir
peningaþvætti með því að hafa
tekið við 17 milljónum króna í
plastpoka á veitingastað í Kópa-
vogi. Árin 2009 til 2010 námu op-
inberar og rekjanlegar greiðslur
hans tæpum 14 milljónum en
útgjöld 39 milljónum. Hlaut sex
mánaða skilorðsbundinn dóm.
Guðrún Halla Sigurðardóttir,
43 ára, var sakfelld fyrir að hafa
þegið allt að 3,5 milljóna þóknun
fyrir að hafa tekið út af reikn-
ingum félaganna 133 milljónir í
reiðufé í 83 úttektum í mismun-
andi útibúum. Hlaut 18 mánaða
skilorðsbundinn dóm.
U, 40 ára karl, hlaut fjögurra mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
að hafa þegið 250 þúsund króna
þóknun fyrir að taka tæpar fjór-
tán milljónir af hinu illa fengna fé
af reikningum félagsins Ólafsson-
heildverslun. Talið peningaþvætti
af gáleysi.
S, 50 ára kona, var sakfelld í hér-
aði fyrir peningaþvætti af gáleysi
með því að hafa tekið tæpar tutt-
ugu milljónir af hinu illa fengna fé
af bankareikningi félagsins. Sagði
fyrir dómi að hún hefði ekki vitað
að um illa fengið fé væri að ræða.
Z, 44 ára karl, hlaut þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir stórfelld fíkniefnabrot.
StjÓrnMÁL „Það er óásættanlegt
að rekstrargrundvelli fyrirtækja á
Vestfjörðum, sem og annars staðar
á Íslandi, sé kippt undan þeim eins
og staðan er nú í íslensku fiskeldi,“
segir bæjarstjórn Bolungarvíkur í
nýrri bókun.
Bæjarstjórnin, sem vitaskuld er að
vísa til tveggja úrskurða um ógild-
ingu leyfa fyrir laxeldi fyrir vestan,
segir að Vestfirðingar þekki það
„alltof vel að framfaramál í fjórð-
ungnum séu stöðvuð af óljósum,
tæknilegum ástæðum,“ eins og segir
í bókuninni.
„Það er ólíðandi að íbúar í Vestur-
byggð og Tálknafirði séu skildir
eftir í mikilli óvissu og nauðsynlegt
að þetta fólk fái afdráttarlausan
stuðning stjórnvalda. Nú er málið
komið á þann stað að aðgerða er
þörf,“ segir bæjarstjórnin. Fiskeldi
sé umhverfisvænt og geti orðið einn
af hornsteinum íslensks atvinnulífs.
„Ekki hefur verið farið fram á
annað en að uppbyggingin verði í
sátt við náttúru og að uppfylltum
skilyrðum,“ segir bæjarstjórnin
sem skorar á stjórnvöld að beita
sér fyrir því að skapa umgjörð
um fiskeldi á Íslandi sem „gerir
því kleift að vaxa til framtíðar
án sífelldra áfalla, vandamála og
uppákoma eins og samfélagið
hefur orðið vitni að undanfarna
daga og vikur.“ – gar
Bæjarstjórn Bolungarvíkur segir óvissu í fiskeldi vera ólíðandi
Bolvíkingar segja fiskeldi vera um-
hverfisvæna atvinnugrein.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
DÓMSMÁL Tveir menn, Baldur Kol-
beinsson og Trausti Rafn Hendriks-
son, eru ákærðir vegna alvarlegrar
líkamsárásar á Litla-Hrauni 23. janúar
síðastliðinn. Málið verður þingfest í
Héraðsdómi Suðurlands 25. október
næstkomandi.
Brotaþolinn er ungur hælisleitandi,
Houssin Bsraoi, sem kom hingað til
lands haustið 2016. Hann sat inni
fyrir ítrekaðar flóttatilraunir en hann
freistað þess að smygla sér um borð í
eitt af flutningaskipum Eimskips og
komast þannig til Kanada.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
ákært sé fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr.
almennra hegningarlaga en ákvæðið
tekur til líkamsárása sem hafa í för
með sér stórfellt líkams- eða heilsu-
tjón eða teljast sérstaklega hættulegar
vegna þeirrar aðferðar sem beitt er.
Brot gegn ákvæðinu geta varðað allt
að 16 ára fangelsi.
Árásin á Houssin var gerð í íþrótta-
sal fangelsisins og er sögð bæði skipu-
lögð og hrottafengin. Houssin var
fluttur á spítala í kjölfarið, nokkuð
marinn og með brotnar tennur.
Skömmu eftir árásina var Houssin
vísað úr landi og gafst lögreglu ekki
tóm til að taka af honum skýrslu
vegna málsins. Lögreglufulltrúi sem
fór með rannsókn árásarinnar fékk
upplýsingar í fjölmiðlum um að hann
væri farinn af landinu.
Ekki liggur fyrir hvort Houssin
kemur aftur til landsins til að gefa
skýrslu fyrir dómi en meðal sönn-
unargagna eru myndir úr eftirlits-
myndavélum.
Ákæran gegn mönnunum hefur
ekki verið birt opinberlega og því
ekki enn komið fram hvort hlutur
beggja ákærðu í brotinu telst jafn-
mikill.
Baldur Kolbeinsson og Trausti
Rafn Hendriksson eiga báðir nokk-
urn sakaferil að baki. Þá hefur Baldur
ítrekað gerst sekur um ofbeldi gagn-
vart samföngum sínum.
Hann hlaut 18 mánaða fangelsis-
dóm árið 2014 fyrir tvær líkamsárásir
framdar með nokkurra mánaða milli-
bili á útivistarsvæðinu á Litla-Hrauni.
Í fyrra tilvikinu veittist hann að
samfanga sínum og makaði saur í
andlit hans og munn og sló hann svo
bæði í höfuð og líkama. Auk þeirra
tveggja líkamsárása sem hann var
dæmdur fyrir 2014 mun hann hafa
bitið vörina af samfanga sínum í
slagsmálum á Litla-Hrauni síðastliðið
sumar. – aá
Tveir ákærðir vegna árásar á Houssin
Hrottafengin árás var gerð á ungan
hælisleitanda í íþróttasalnum á Litla-
Hrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon BRInk
Vestfirðingar þekkja
það alltof vel að
framfaramál í fjórðungnum
séu stöðvuð af óljósum,
tæknilegum ástæðum.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur
ÍtALÍA Sú framkvæmd ítalskra stjórn-
valda að meina transkonu að breyta
nafni sínu áður en kynleiðréttingar-
ferli lauk fól í sér brot gegn friðhelgi
einkalífs hennar. Þetta er niðurstaða
Mannréttindadómstóls Evrópu.
Konan hóf leiðréttingarferlið í
maí 2001. Hún var þá skráð maður
og bar karlmannsnafn. Samkvæmt
lögum á Ítalíu gat hún ekki breytt
nafni sínu fyrr en hún hafði fengið
það ástimplað af stjórnvöldum að
ferlinu væri lokið. Það var því ekki
gert fyrr en í október 2003 en í milli-
tíðinni hafði hún sótt um að breyta
nafni sínu. Dómarar töldu einróma
að það væri brot á 8. grein Mannrétt-
indasáttmála Evrópu um verndun
friðhelgi einkalífs og fjölskyldu. – jóe
Ítalía braut á
rétti transkonu
LögregLuMÁL Landsréttur hefur
staðfest úrskurð héraðsdóms um
framlengingu gæsluvarðhalds um
fjórar vikur yfir manni sem grunaður
er um alvarlega líkamsárás á dyra-
vörð 26. ágúst. Maðurinn hefur verið
í haldi frá því að hann var handtek-
inn skömmu eftir árásina.
Í úrskurðinum er árásinni lýst sem
ofsafenginni. Fjórir menn hafi ráðist
með offorsi á dyravörðinn og sá sem
er í haldi sagður hafa kýlt ítrekað og
sparkað í höfuð dyravarðarins sem
er nú lamaður fyrir neðan höku. Enn
er tveggja manna leitað vegna gruns
um aðild að árásinni. – aá
Enn í haldi eftir
árás á dyravörð
Árásin var á Shooters í Austurstræti.
FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon BRInk
1 5 . o k t Ó b e r 2 0 1 8 M Á n u D A g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
1
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
2
-A
8
F
C
2
1
1
2
-A
7
C
0
2
1
1
2
-A
6
8
4
2
1
1
2
-A
5
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K