Fréttablaðið - 15.10.2018, Síða 38
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Ástkær eiginmaður minn og besti
vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Brynjólfsson
framkvæmdastjóri Verkfæralagersins,
Kríuhólum 4, Reykjavík,
lést sunnudaginn 23. september á
Tenerife. Útför hans verður gerð frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 16. október kl. 13.00.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Brynjólfur Gunnarsson Ásta Bjarnadóttir
Tómas Haraldsson Selma Smáradóttir
Móeiður Tómasdóttir
Sara Brynjólfsdóttir Alma Brynjólfsdóttir
Veislan var nú á laugardaginn og ég hélt upp á afmælið með heimatónleikum. Ég söng nokkur eigin lög en líka standarda. Það kom líka
danshópur og dansaði með mér. Þetta
var mikið fjör,“ segir Bergljót.
Hún segir að á þessum tímamótum
hafi núvitundin sjaldan verið meiri.
„Lífið er mesta ævintýrið sem okkur er
boðið upp á. Það er ekkert sjálfgefið að
maður fái að lifa þetta lengi. Ég hef misst
ættingja, skólafélaga og æskuvinkonu
fyrir aldur fram.“
Bergljót lenti í alvarlegu slysi fyrir
nokkrum árum þegar hún flaug af hest-
baki. „Ég er þakklát fyrir að hafa náð
bata. Ég brotnaði á tveimur hryggjar-
liðum og gat ekki stigið í fæturna fyrst á
eftir. Mér er enn þá illt í bakinu en það
minnir mig bara á að ég er á lífi.“
Ellefta barnabók Bergljótar er nýkom-
in út. Hún ber heitið Rosi fer í bað.
„Bókin er um Rosa sem er rosaleg risa-
eðla. Ég skrifaði hana fyrir tíu árum og
hún var tilbúin til útgáfu en var frestað
vegna hrunsins. Hún er búin að vera á
lista hjá Forlaginu yfir bækur sem á að
gefa út og nú var ákveðið að drífa í því.“
Bergljót segist halda að þetta sé fyrsta
íslenska baðbókin. „Mér finnst mjög
mikilvægt að börn kynnist bókaforminu
mjög snemma og þetta er upplagt því
um leið og þau geta farið að grípa í eða
halda á hlutum geta þau skoðað þessa
bók. Þótt flestum börnum þyki gaman
að fara í bað er það ekki alltaf efst á óska-
listanum. Þá getur verið gott að grípa í
þessa bók.“
En það er fleira á döfinni hjá Berg-
ljótu því að hún er líka leikstjóri Leik-
hópsins Perlunnar.
„Leikhópurinn fagnar bráðum 35 ára
afmæli og af því tilefni hefur forsetinn
boðið okkur á Bessastaði. Þar ætlum við
að sýna honum nokkur létt ævintýri og
dæmisögur. Ég hlakka mikið til og allir
í hópnum eru spenntir.“
Bergljót fær hópinn svo í heimsókn til
sín í vikunni til æfinga en einnig til að
fagna fimmtugsafmælinu. „Það má segja
að ég fái margfalt afmæli út úr þessu.“
Þann 11. nóvember mun Bergljót
svo syngja ásamt kór á tónleikum í Sel-
fosskirkju. „Stjórnandinn er búinn að
útsetja tvö lög eftir mig fyrir kór. Ég hef
ekki áður flutt lögin mín með kór og ég
hlakka til að heyra útsetningarnar.“
sighvatur@frettabladid.is
Lífið er mesta ævintýrið
sem okkur er boðið upp á
Söngkonan og barnabókarithöfundurinn Bergljót Arnalds fagnar fimmtugsafmæli
sínu í dag. Hún er nýbúin að senda frá sér sína elleftu barnabók og hefur nóg fyrir
stafni. Fram undan er leiksýning á Bessastöðum og tónleikar í Selfosskirkju.
Bergljót Arnalds brotnaði á tveimur hryggjarliðum er hún flaug af hestbaki fyrir nokkrum árum en er hér á fílsbaki. MYND/ARI
Merkisatburðir
1674 Torsåker nornaréttarhöldin í Svíþjóð hefjast. 71 er
hálshöggvinn eða brenndur á báli
1866 Stórbruni í Quebec í Kanada eyðileggur 2.500 hús.
1878 Rafmagnsljósafyrirtæki Edisons, Electric Light
Company, er stofnað.
1880 Lokið við byggingu dómkirkjunnar í Köln í Þýsklandi,
633 árum eftir að framkvæmdir hófust.
1889 Aðallestarstöðin í Amsterdam formlega opnuð.
1904 Japanir brjóta sókn Rússa á bak aftur í orrustunni um
Shaho. Japanir missa 16 þúsund menn og hjá Rússum falla
sextíu þúsund í valinn.
1941 Fyrstu fjöldanauðungarflutningar gyðinga til Austur-
Evrópu.
1944 Flokkur þjóðernissinna nær völdum í Ungverjalandi.
1951 Egypska þingið fellur frá samkomulaginu um Suez-
skurðinn.
1958 Sovétríkin gera tilraun með kjarnorkusprengju á
Novaya Zemlya.
1970 Brú yfir ána Yarra í Melbourne í Ástralíu hrynur og 35
farast.
1975 Ísland færir landhelgi sína úr 50 í 200 mílur.
1976 Bítillinn Ringo Starr sendir frá sér smáskífu með
laginu A Dose of Rock ’n’ Roll.
1997 Bandaríkin senda á loft kjarnorkuknúna farið Cassini
sem stefnt er á Satúrnus.
2011 Lególand opnar stærsta garð sinn í Winter Haven í
Flórída.
Ringo Starr með félögum sínum í The Beatles.
Harka var í landhelgisdeilunni við Breta.
Hermann Göring, æðsti yfirmaður
þýska flughersins og stofnandi Gesta-
po, hinnar illræmdu leynilögreglu í
Þýskalandi nasismans, stytti sér aldur á
þessum degi árið 1946.
Göring gekk í Nasistaflokkinn eftir að
hann kynntist Adolf Hitler, stofnanda
flokksins. Göring særðist illa eftir mis-
heppnaða valdaránstilraun Hitlers og
nasistahyskis hans. Eftir þetta varð
Göring háður verkjalyfjum.
Hitler gerði Göring að pólitískum ráð-
gjafa sínum árið 1930 og eftir að Hitler
komst á valdastól fékk Göring meðal
annars stórt hlutverk í að skipuleggja
útrýmingarbúðir fyrir andstæðinga
foringjans.
Bandarískir hermenn tóku Göring
höndum 8. maí 1945. Þá var nasista-
foringinn settur í fangabúðir og látinn
fara í megrun og afeitrun. Gefin var út
ákæra á hendur honum í október sama
ár. Göring var háttsettasti nasistafor-
inginn sem sætti ákæru fyrir stríðsglæpi
í Nürnberg-réttarhöldunum.
Hermann Göring var dæmdur til
dauða 1. október 1946 og átti að hengj-
ast. Aðeins nokkrum klukkustundum
áður en fullnægja átti dómnum svipti
Göring sig lífi með blásýruhylki.
Þ Etta g E R ð i St : 1 5 . o któ B E R 1 9 4 6
Hermann Göring gleypti blásýruhylki
Hermann Göring var handsamaður í lok
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Lífið er mesta ævintýrið
sem okkur er boðið
upp á. Það er ekkert sjálfgefið að
maður fái að lifa þetta lengi.
1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M Á N U D A G U r18 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
2
-8
1
7
C
2
1
1
2
-8
0
4
0
2
1
1
2
-7
F
0
4
2
1
1
2
-7
D
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K