Morgunblaðið - 17.07.2018, Side 4

Morgunblaðið - 17.07.2018, Side 4
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Þ að segir kannski meira um blaðamann en bílinn sem hann fékk til prufu, hvítan Mercedes-Benz A-Class 180d Progressive+, að það tók hann smátíma að koma bílnum á hreyfingu, fyrst eftir að hann settist á bak við stýrið. Þar sem hann er óvanur „lyklalausum“ bílum þurfti fyrst að átta sig á hvernig ræsa ætti farar- tækið. Þegar búið var að leysa þá gátu, sem fólst einfaldlega í því að stíga á bremsuna og ýta á „Start“- takkann, þá var næst að sjá hvernig hægt væri að koma bílnum í gír og hreyfa hann úr sporunum. Engin var gírstöngin hægra meg- in, heldur vígalegur hnúður sem reyndist vera hluti af „tölvumúsinni“ sem stýrir allri tækninni í bílnum, og afþreyingarkerfinu, og því þurfti maður að leita annað eftir gírunum – en hvert! Vanalega eru gírstangir fremur fyrirferðarmiklar og áberandi hluti af innra rými bifreiða, en því er ekki að heilsa í A - Class. Nett gírstöngin fannst áföst við stýrið hægra megin, þar sem maður finnur gjarnan rúðu- þurrkusveifina. Þá daga sem ég var með bílinn til reynslu ruglaðist ég tvisvar til þrisvar á rúðuþurrkunum, sem er annars að finna vinstra megin við stýrið, og gírunum. Ég tel að þetta venjist þó fljótt og í rauninni finnst mér það einhvernveginn nota- legt að gírarnir séu jafn fyrirferð- arlitlir í bílnum og raun ber vitni – eins og þeir séu hálfgert aukaatriði. Það sama má segja um handbrems- una, það verða engar Fast and Furio- us-„handbremsubeygjur“ teknar á þessum bíl. Handbremsan er einfald- lega lítill takki vinstra megin í mæla- borðinu. Rétt er þó að benda á að hægt er að taka Fast and Furious-rispur með því að skipta bílnum úr sjálfskiptum yfir í beinskiptan með „blöðkunum“ sem staðsettar eru á bak við stýrið. Strax og maður fær það verkefni að skrifa pistil um Benz-bifreið, fara væntingarnar á flug, enda er Benz eitt þekktasta vörumerki heims. Í stuttu máli varð ég ekki fyrir von- brigðum með nýja A-Class, enda var hann eins og hugur manns í akstri, og ég ók honum stoltur um borg og bý. Það læddist samt að mér sú spurning, hvort fólkið sem sá mig á bílnum hafi örugglega áttað sig á ég væri að keyra Benz. Er bíllinn kannski aðeins of venjulegur úr fjarska séð, og þá einkum séður á hlið, því enginn velk- ist í vafa um tegundina þegar horft er á hann beint framan á, þar sem hið tígullega Benz-merki er staðsett. Þó að bíllinn sé nokkuð „venjuleg- ur“ í laginu að utan, þá eru þar ákveð- in smáatriði sem gefa honum skemmtilegt og sportlegt yfirbragð eins og púströrin tvö að aftan og ljós- in að framan. Retro-ristar Það er þægilegt að fara inn og út úr A-Class og ekkert sem truflar mann þar, og þrýstin ARTICO-leðurlíkis- sportsætin, sem eru hluti af þeim aukabúnaði sem prýðir bílinn, voru sérlega þægileg. Þau ættu að geta fallið flestum í geð, því hægt er að stilla þau á marga vegu. Ekki ein- ungis er hægt að framkvæma helstu aðgerðir, eins og að draga þau fram og til baka, og halla aftur og fram, heldur er líka hægt að tjakka sætin upp og niður með sveif á hliðunum, þrýsta þeim upp í miðjunni til að gefa aukinn stuðning og einnig að færa fram og til baka púða hjá klofinu, en allt þetta ætti að hjálpa til við að gera setuna í bílnum ánægjulega og þægi- lega á löngum sem stuttum ferðum. Án þess að vera með frekju, þá væri samt gaman ef það væri hægt að færa sætin fram og til baka rafrænt, en slíkt getur verið mjög hentugt í lengri ökuferðum. Morgunblaðið/Eggert Næmur og notalegur Blaðamaður þurfti að gæta sín á hraðablindu á bak við stýrið á nýja A-Class frá Benz. Þessi smái en knái díselbíll er með ágætis viðbragð. Meðaleyðslan í prufakstrinum mældist rúmir 6 lítrar á 100 km Stjórnborðið þykir ákaflega vel heppnað og útblástursristarnar snotrar. 4 | MORGUNBLAÐIÐ PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Mercedes-Benz A-Class 180d Progressive+ » 116 hestöfl, 260 Nm » 7 þrepa sjálfskipting » 4 strokka, 1.461 cc díselvél » 4.1- 4.3 l / 100 km í blönd- uðum akstri » Úr 0-100 km/klst. á 10,5 sek- úndum » Hámarkshraði 202 km/klst. » Framhjóladrifinn » 205/60 R16 dekk » Eigin þyngd: 1.370 kg » Farangursrými: 370 lítrar » Koltvísýringslosun: 108-114 g/km » Listaverð 5.990.000 kr. „Er bíllinn kannski aðeins of venjulegur úr fjarska séð, og þá einkum séður á hlið, því enginn velkist í vafa um tegundina þegar horft er á hann beint framan á, þar sem hið tígullega Benz-merki er staðsett.“ Sjá síðu 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.