Morgunblaðið - 17.07.2018, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ | 9
LC 500 og 500h eru ættarlaukar
Lexus-fjölskyldunnar og byggjast á
LF-LC hugmyndabílnum sem frum-
sýndur var árið 2012. Raunar þykir
merkilegt hve lítill munur er á fram-
leiðsluútgáfunum tveimur og á fram-
úrstefnulega hugmyndabílnum sem
heimsbyggðin fékk fyrst að berja
augum árið 2012. Þeir sem eru vel að
sér um ættartré Lexus sjá líka skýr
útlitseinkenni frá LFA-sportbílnum
sem framleiddur var í aðeins 500 ein-
tökum frá 2010 til 2012 og kostaði
nærri fjórfalt mmeira en LC 500h
Framleiðsla LC 500 og 500h hófst
á fyrri helmingi árs 2017 og gaman
að segja frá því að íslenska Lexus-
umboðið flutti inn og seldi eitt ein-
tak. Allt of sjaldgæft að bílar af
þessu kalíberi birtist í sýningar-
sölum á Íslandi og væri óskandi að
íslenskir bílaáhugamenn gætu t.d.
fengið að mæna á Audi R8 hjá Heklu
eða Maserati Gran Turismo hjá Ís-
band – en það er efni í aðra grein.
Yfirvegun og agi
Þegar ég kom að sækja lyklana að
bílnum beið mín lítil sendinefnd frá
Lexus; hver með sitt hlutverk: einn
til að gæta þess að bíllinn væri í lagi,
annar til að hugsa um almanna-
tengslahliðina og sá þriðji til að
túlka. Eftir bugt og beygingar sam-
kvæmt japanskri hefð, og með fang-
ið fullt af nafnspjöldum, fékk ég lykl-
ana og spanaði af stað.
„En hvað er þetta?“ hugsaði ég
með mér. „Hvar er sportbílahljóðið?
Hefði ég kannski frekar átt á biðja
um V8-vélina?“ En eftir því sem ég
þræddi götur höfuðborgar Japans
rann betur upp fyrir mér að LC 500h
er hinn fullkomni sportbíll fyrir jap-
anskar aðstæður. Það þætti nefni-
lega allt of groddalegt að aka um
bæinn á háværum Huracán, og
Bentley Continental væri of breiður
fyrir þröngar hliðargöturnar þar
sem bílar, hjól og gangandi vegfar-
endur þurfa að deila með sér mjórri
ræmu af malbiki. Og útlitið smell-
passar við Tókýó þar sem allt er
framúrstefnulegt og framandi.
LC 500h er sportbíll hins kurteisa
manns sem þarf ekki að ýfa skraut-
fjaðrirnar eins og gutti í japönsku
strákabandi. Hann er yfirvegaður,
agaður og lætur sér meira að segja
annt um umhverfið því eldsneyt-
isnotkunin er ekki nema um 7,8 lítr-
ar á hundraðið í blönduðum akstri
(12,4 lítrar með V8-vélinni).
En svo, þegar aðstæður kalla á
það, varpar LC 500h af sér yfirveg-
uðu yfirbragðinu og breytist í trylli-
tæki. Til að láta reyna á eiginleika
bílsins var stefnan sett á hinn goð-
sagnakennda Hakone-veg suðvestur
af Tókýó og vélin sett á sportstill-
ingu.
Hakone-vegurinn er tollvegur og
meira eða minna laus við allt hraða-
eftirlit. Það sem meira er, þá er mal-
bikið rennislétt og fínt og gæði veg-
arins þykja minna á þýska
hraðbraut. Hann hlykkjast um skógi
vaxnar fjallshlíðar þar sem loftið er
svalt og hreint, og það eina sem
truflar friðinn eru drunurnar í stöku
tryllitæki sem þýtur eftir veginum.
Þetta er sá staður sem japanskir
bílablaðamenn nota þegar þeir vilja
virkilega sjá hvað býr í ökutækj-
unum sem þeir prófa. Hakone er
mekka japansks bíladellufólks.
Langferðabíll frekar en sportbíll?
Óhætt er að segja að LC 500h
njóti sín vel þegar komið er upp í
fjöllin. Hann er að vísu ekki raketta
– tekur 4,7 sekúndur að ná upp í
hundraðið sem er alveg ágætt, en
fær ekki hárin til að rísa eins og t.d.
Lamborghini Huracán sem er 3,2
sekúndur að ná sama hraða. Vélin
fnæsir heldur ekki eða urrar þegar
ýtt er fast á bensíngjöfina, heldur
rymur eins og samúræi.
Ökumaður nýtur akstursins út í
gegn, og hjálpar þar til hvað fram-
úrstefnuleg sætin eru þægileg og öll
stjórntæki eins og þau eiga að vera.
Leiðsögukerfið er m.a.s. nægilega
gott til að koma Íslendingi á áfanga-
stað þó svo að allar leiðbeiningar séu
á japönsku.
En er þá ekki LC 500h langferða-
glæsivagn – grand tourer – frekar
en hreinræktaður sportbíll? Sumir
bílablaðamenn vilja einmitt frekar
setja LC 500h í þann flokk en ég sé
eitt og annað því til fyrirstöðu: skott-
ið er t.d. ekki sérlega rúmgott, og
rétt svo pláss fyrir tvær töskur í
handfarangursstærð og einn inn-
kaupapoka úr fríhöfninni. Hljóðein-
angrunin er heldur ekki eins góð og
ég hefði vænst af dýrum lang-
ferðabíl, og hljóðkerfið gerði ekki
mikið fyrir mig. Strangt til tekið er
LC 500h fjögurra sæta, en aftur-
sætin henta ekki öðrum en fólki sem
misst hefur báða fætur fyrir neðan
hné.
Enn fallegri í eigin persónu
Hvaða dóm fær svo LC 500h, þeg-
ar upp er staðið? Það verður ekki um
það deilt að bíllinn er afskaplega fal-
legur, jafnt að innan sem utan, og
raunar fannst mér snúið að koma því
til skila á tvívíðum ljósmyndum hvað
hann hefur ofboðslega vel heppn-
aðar útlínur. Í akstri er LC 500h eins
og hugur manns, og tiltölulega spar-
neytinn miðað við getu. Þó að skottið
sé ekki stórt rúmar það eitt af þessu
þrennu: golfkylfusettið, matarinn-
kaup fyrir vikuna eða farangur fyrir
helgarferð til útlanda fyrir tvo.
Eftir situr að verðið er fullhátt.
Listaverð á LC 500h í Sport+ út-
færslu er rúmlega 20 milljónir, en til
samanburðar kostar frá 14 millj-
ónum að eignast grunnútgáfu
Porsche Panamera-tengiltvinnbíls,
sem er álíka hraðskreiður bræð-
ingur af sportbíl og langferðabíl.
Kannski geri ég of miklar kröfur
til Lexus, hafandi ekkert nema gott
að segja um þá framúrskarandi bíla
sem fyrirtækið framleiðir, en það er
eins og LC 500h nái ekki því efsta-
stigi sem ég hafði vonast eftir og því
er erfitt fyrir mig að réttlæta verð-
miðann. Ég gæti samt glápt á LC
500h endalaust.
lexus lc 500
Í akstri er LC 500h
eins og hugur
manns, og tiltölu-
lega sparneytinn
miðað við getu. Þó
að skottið sé ekki
stórt rúmar það eitt
af þessu þrennu:
golfkylfusettið, mat-
arinnkaup fyrir vik-
una eða farangur fyr-
ir helgarferð til
útlanda fyrir tvo.
Hakone-vegurinn liggur upp á fjallstind þar sem grænir skógar og blár himinn blasa við. Einn af þessum vegum sem kalla á pílagrímsför.