Morgunblaðið - 16.08.2018, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 7VEIÐI
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
445c
Bátur
Kerra
F30Hp Mercury
utanborðsmótor.
Stjórntæki
Rafstart
Bensíntankur
fullur af bensíni
Frí heimsending
hvert á land sem er
Bátur með
hnakk & beisli
Leggðu árar í bát og fáðu þér einn með öllu
Utanborðsmótorar 30Hpf
TILBOÐ*
1.990.000 kr. með vsk.
fullt verð 2.320.873 kr með vsk.
Allt að 90% fjármögnun í boði
*Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
Þú sparar 330.000 kr.
Nóg er að gera í veiðivöruversl-
unum landsins og sögðu þeir versl-
unarmenn sem ViðskiptaMogginn
ræddi við að salan hefði sjaldan
eða aldrei gengið svona vel.
Haukur Jóhannesson hjá Veiði-
von segir undanfarinn áratug hafa
einkennst af sveiflum. „Árin fyrir
hrun var mikil keyrsla og allt sem
keypt var inn seldist jafnóðum.
Svo kom stutt skeið eftir hrun þar
sem menn fóru hálfpartinn í felur
og vildu ekki flíka því sem þeir
áttu með því að kaupa dýran veiði-
búnað. Tímabilið 2010 til 2014 var
erfitt en síðan tók salan að glæð-
ast jafnt og þétt.“
Kaupa bestu merkin
Ólafur Vigfússon, verslunar-
maður í Veiðihorninu, segir að í
hruninu hafi þurft að bregðast
hratt við, breyta vöruúrvalinu og
leggja meiri áherslu á ódýrari
veiðibúnað. Með því að halda verði
niðri hafi tekist að halda ágætum
dampi og hafi verslunin notið góðs
af því að margir notuðu árin eftir
hrun til að eiga ánægjulegar sam-
verustundir innanlands með fjöl-
skyldunni. „Við sáum að fjöl-
skyldufólki fjölgaði í búðinni. Í
stað þess að endurnýja jeppann
eða fara í frí til Spánar vildi fólk
eyða tímanum á Íslandi og t.d.
fara með börnin í veiðitúr. Mig
grunar að mjög margir nýir veiði-
menn hafi orðið til á þessum
tíma.“
Ólafur segir ekki bara líflegt í
búðinni um þessar mundir heldur
sæki viðskiptavinirnir í dýrari
vörur. „Ástandið í efnahagslífinu
er gott og sprenging í sölu á öllum
vandaðri búnaði.“
Þrátt fyrir efnahagsuppsveiflu
virðist ekki vera neinn „2007-
bragur“ á stangveiðisportinu og
segir Ólafur að íslenskir stang- og
skotveiðimenn séu upp til hópa
ósköp venjulegt meðal- og há-
tekjufólk. „Þannig hefur það verið
í hundrað ár, en í góðærinu festist
þessi óskemmtilegi stimpill við
laxveiðina vegna umfjöllunar um
lúxusveiðiferðir á vegum stór-
fyrirtækja sem voru samt sem áð-
ur fátíðar þrátt fyrir að vera mikið
á milli tannanna á fólki.“
Veiðihornið selur bæði stang- og
skotveiðibúnað og segir Ólafur að
salan sé með besta móti í báðum
deildum. „Skotveiðisportið er mun
fámennara. Áætla má að um 6-
8.000 Íslendingar stundi skotveiði
að einhverju marki en sennilega
eru um 100.000 stangveiðimenn í
landinu. Aftur á móti getur bún-
aðurinn fyrir skotveiðina verið
dýrari, svo að fleiri krónur koma í
kassann við hverja sölu.“
Veðrið og boltinn
hafa ekki truflað
Ingólfur Kolbeinsson, eigandi
Vesturrastar, segir líka þá breyt-
ingu hafa orðið á skotveiði hér á
landi að skytturnar æfi sig allt ár-
ið um kring. „Salan er orðin jafn-
ari frekar en að
vera bundin við
haustið og iðk-
endur nota skot-
æfingasvæðin
þegar veður
leyfir til að
stunda leirdúfu-
skotfimi eða æfa
riffilskotfimi.“
Það kemur
Ingólfi á óvart hve vel sala á veiði-
búnaði hefur gengið það sem af er
þessu. „Bæði var heimsmeistara-
mótið í knattspyrnu haldið í sumar
og ekki hefur viðrað vel. Fyrir
fjórum árum hefðu þessir tveir
þættir haft mikil áhrif hér í versl-
uninni en þeir virðast ekki
skemma fyrir okkur í dag og
áhugavert er til þess að hugsa
hvernig salan hefði þá orðið ef
veðrið hefði verið betra og ekkert
heimsmeistaramót.“
Sækja í dýrari vörur en áður
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Leiðinlegt veður og heims-
meistaramót í knattspyrnu
virðast ekki hafa dregið úr
veiðiáhuga landsmanna og
selst mikið af stang- og
skotveiðibúnaði.
Morgunblaðið/Einar Falur
Leiðinlegt veður og meira að segja HM í knattspyrnu virðast ekki hafa dregið úr stang- og skotveiðiáhuga landsmanna í sumar. Glímt við laxinn í Hafralónsá.
Ingólfur
Kolbeinsson
Ólafur
Vigfússon
Haukur
Jóhannesson
Greina má vísbendingar um að dregið hafi úr
laxveiðiferðum útlendinga hingað til lands.
Ingólfur í Vesturröst segir að styrking krón-
unnar sé sennilegasta skýringin og hugs-
anlegt að erlenda stangveiðifólkið leiti annað
þegar því fer að þykja veiðileyfin í íslensku
ánum of dýr. „Það má finna frábær veiði-
svæði í öðrum löndum og t.d. góðar lax-
veiðiár í Alaska, Kanada, Rússlandi og á
Skotlandi.“
Ef útlendingarnir eru farnir að sækja minna
í laxinn þá kemur á móti að erlendum
silungsveiðimönnum virðist fara fjölgandi.
„Er þá einkum um að ræða Norðurlandabúa
sem kaupa sér veiðikort og keyra svo af stað
í leit að góðu vatni til að renna fyrir fisk.“
Útlendingar farnir að sýna
silungsveiði aukinn áhuga
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum