Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 9
um, sem hefur ekki stöðuga vinnu. Þegar þú
hefur ekki stöðuga innkomu er mjög erfitt,
jafnvel þó að þú sért kominn af vel stæðu fólki,
að fá aðgang að lánsfé. Það getur jafnvel verið
erfitt að fá kreditkort eða námslán,“ segir
Stoppani. Hann segir erfitt fyrir fólk á þessum
aldri að leggja fram veð og að hefðbundnari
bankar einblíni einfaldlega á það sem þeir hafi.
„Í Suður- og Mið-Evrópu er aldamótakynslóðin
að glíma við þetta vandamál. Þessi mál komu
upp á ráðstefnu hjá okkur í Skandinavíu, þann-
ig að þetta kemur okkur við hér líka,“ segir
Stoppani.
„Hins vegar eru þau sem ég kalla Ný-
Evrópubúa. Við lifum á tímum gríðarlegra
fólksflutninga. Fólk í leit að betra lífi, frá Afr-
íku eða Austur-Evrópu. Allt þetta fólk kemur,
hefur kannski störf einhvers staðar, en oftar en
ekki er það bara fast. Í Suður-Evrópu, á Spáni,
á Ítalíu eða í Frakklandi eru það yfirleitt inn-
flytjendur sem reka litlar búðir sem selja
ávexti, fisk og kjöt. Jafnvel 10 árum síðar, þeg-
ar fjölskyldan er búin að koma sér fyrir, er
ekki litið á þetta fólk sem heimafólk, með stöð-
ugar tekjur. Þetta fólk er ekki hluti af fjár-
málakerfinu. Stundum er fjárstreymið einnig
óformlegt. Það getur verið erfitt að henda
reiður á því,“ segir Stoppani. Segir hann fólk í
þessari stöðu fast í vítahring og standi iðulega
ekkert annað til boða en að fara til okurlánara.
„Þetta er dæmi um hópa sem við hjá
Creditinfo reynum að koma til móts við eins
mikið og við getum. Með kunnáttu okkar leyf-
um við lánveitendum að greina lánshæfi ein-
staklings, hvort sem það er aldamótakyn-
slóðin, Ný-Evrópubúar eða fólk sem stendur
utan við hið formlega fjármálakerfi,“ segir
Stoppani. „Hér þarf að eiga sér stað ákveðin
bylting í fjármálamenningunni,“ bætir hann
við eftir litla umhugsun.
Breyttur heimur bankanna
Lykilhlutverk í þeirri byltingu leika fjár-
tæknifyrirtæki sem stukku á tækifærið í kjöl-
far lagabreytinga sem setja neytandann í for-
gang. Ef ný lög um greiðsluþjónustu (PSD2)
eru tekin sem dæmi getur neytandinn nú með
samþykki sínu stýrt því hverjir geta notað
gögn um hann og meðal annars opnað fyrir að-
gengi þriðja aðila að bankaupplýsingum sínum.
„Heimurinn er að breytast fyrir bankana. Og
þar sem bankarnir eru stærstu viðskiptavinir
okkar er hann einnig að breytast fyrir fyrir-
tæki eins og okkar. En varan er ekki að breyt-
ast. Lánsfé. Það verður alltaf lánsfé til staðar
og hefur alltaf verið, í mannkynssögunni. Fólk
og fyrirtæki þurfa peninga til þess að vaxa. En
það sem mun gerast er að við munum í meiri
mæli sjá færri milliliði vinna við þetta. Þessi
þróun er hafin. Bankarnir eru ekki lengur eina
leiðin til að fá lán. Fjártæknifyrirtæki hafa
opnað á nýjar leiðir, sérstaklega í Evrópu, þar
sem það er jafnvelt auðvelt að fá lán frá fyr-
irtæki sem er í öðru landi. En þróun löggjaf-
arinnar er óljós,“ segir Stoppani og bendir á að
markaðurinn sé iðulega einu til tveimur skref-
um á undan löggjafanum í þessum efnum.
Leggur hann áherslu á að lagaumhverfið þurfi
að vera eins fyrir alla aðila á markaðnum. „Það
verður áhugavert að sjá hvernig þetta mun
þróast á næstu mánuðum og árum. Þú getur
sett reglugerð í kringum banka en sleppt fjár-
tæknifyrirtækjunum. Munum við sjá fleiri um-
svifameiri reglusetningar, eins og við sjáum á
sumum mörkuðum í Austur-Evrópu, þar sem
takmarkanir eru sett á vaxtabil, sem kemur
sér mjög illa fyrir fjártæknifyrirtæki? Eða
fáum við fleiri reglugerðir í anda PSD2 líkt og í
Evrópu sem beinlínis hvetur til aukinnar sam-
keppni?“ spyr Stoppani.
„Þessar evrópsku reglur opna tækifæri fyrir
okkur hjá Creditinfo og önnur sambærileg fyr-
irtæki. Þetta opnar á aðgengi að gögnum. Nú
er það einstaklingurinn sem hefur völdin. Ég,
sem einstaklingur, hef meiri völd og get gefið
leyfi, í símanum mínum, í hvaða appi sem ég
treysti mér til að nota og veita bankaupplýs-
ingar mínar. Ég geri það vegna þess að ég veit
að það mun koma mér að gagni, sér í lagi ef ég
flyt á milli landa. Ég er með lánshæfis-
matsgögnin mín hér í vasanum. Bara þær stað-
reyndir að ég borga rafmagnsreikninginn minn
á réttum tíma, heitavatnsreikninginn minn og
kreditkortið hjálpa til. Það er gríðarlegt magn
af gögnum til í dag, sem voru þar til núna
bundin við bankann,“ segir Stoppani.
Fyrirtækin stundum flöskuháls
Stoppani segir að þeir bankar sem ekki taki
þátt í þessari þróun sem á sér stað í þessari
gnótt gagna verði ekki langlífir.
„Ef bankarnir græða nóg af núverandi
rekstrarfyrirkomulagi munu þeir ekki hafa
hvata til þess að fara á þessar nýju slóðir. Þeir
sem eru þarna eru fjártæknifyrirtæki sem
starfa ekki undir jafn stífu regluverki. Fjár-
tæknifyrirtækin, sem eru sveigjanleg og hafa
ekki eins þunga yfirbyggingu. Það sem mun
gerast er að sumir af þessum bönkum munu
leyfa þessum fjártæknifyrirtækjum að starfa
sem eins konar rannsóknarstofa á nýjum slóð-
um við að þróa lausnir og öpp sem miðast að
þörfum þeirra sem eru að koma inn í fjárhags-
kerfið í dag. Ef þeir sjá að þessar lausnir eru
að skila sér munu þeir mögulega kaupa þessi
fyrirtæki. Hinir bankarnir, sem eru ekki þarna,
og einbeita sér að sínu; þeir eru risaeðlurnar,
tel ég, sem munu á endanum ekki standast
þessum nýju og kraftmiklu fyrirtækjum snún-
ing,“ segir Stoppani.
Stoppani segir að bankarnir þurfi að skilja
að þetta sé framtíðin en sá skilningur sé ekki
endilega alltaf til staðar. „Við högnumst á þess-
um lagabreytingum. En þar sem við seljum
lausnir okkar á fyrirtækjamarkaði eru þau
stundum flöskuháls. En við höfum skilninginn
og getum greint þessar upplýsingar. Laukur
upplýsinganna er að stækka og þarf að greina
fleiri og stærri blöð. En bankar þurfa að skilja
að í dag þurfa þeir að byggja ákvarðanir sína á
meiri upplýsingum. Annars sjá þeir af fjölda
viðskiptatækifæra,“ segir Stoppani.
„Ég á þrjár dætur. Sú elsta er 19 ára. Ég
get fullvissað þig um það að hún þarf aldrei á
ævi sinni að fara í bankaútibú. Þessi kynslóð
býst við því að hlutirnir gerist með því að
hreyfa einn fingur. Við þurfum einnig að lagast
að þessari kynslóð. Fólk gerir meiri kröfur í
dag,“ segir Stoppani.
Skjaldbökur sem lifa lengi
Spurður hvort um áhyggjuefni gæti verið að
ræða fyrir gamalgróna en gamaldags banka
segist Stoppani ekki vilja taka svo djúpt í ár-
inni. Hann tekur dæmi af 270 ára gamalli
skjaldböku sem hann sá í Simbabve nýlega.
„Hún sá nýlendustofnunina í Simbabve. Hún
sá Bretana koma. Hún sá þetta allt saman og
er þarna ennþá. En hún lagar sig að umhverf-
inu,“ segir Stoppani. „Ég held að við séum ekki
enn í þeirri stöðu að skilja hvernig markaður-
inn mun þróast. En maður sér að bankarnir
átta sig á því að þeir þurfa að breytast. Kaupin
á eyrinni ganga ekki lengur sinn vanagang. En
ég myndi aldrei segja að bankar séu í óþægi-
legri stöðu. Ef þú ert klár geturðu aðlagað þig
hægt og rólega, eins og skjaldbakan,“ segir
Stoppani.
Morgunblaðið/Valli
ánsfjár á öld gagnanna
”
Í Suður-Evrópu, á Spáni, á
Ítalíu eða í Frakklandi eru
það yfirleitt innflytjendur
sem reka litlar búðir sem
selja ávexti, fisk og kjöt.
Jafnvel 10 árum síðar,
þegar fjölskyldan er búin
að koma sér fyrir, er ekki
litið á þetta fólk sem
heimafólk, með stöðugar
tekjur.
„Ég, sem einstaklingur, hef meiri völd og get
gefið leyfi, í símanum mínum, í hvaða appi sem
ég treysti mér til að nota og veita bankaupplýs-
ingar mínar,“ segir Stoppani.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 9VIÐTAL
Morgunblaðið/Valli