Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 www.skaginn3x.com Nánari upplýsingar um starfið veitir Gyða Björk Bergþórsdóttir, job@skaginn3x.com. Umsóknir skulu berast í gegnum heimasíðu Skaginn 3X. Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2018. YFIRVERKSTJÓRI    Starfssvið • Skipulagning á vinnu starfsmanna • Gerð tilboða í ýmis verk • Þátttaka í skipulagningu framleiðsluferla Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla af verkstjórn og starfsmannahaldi er æskileg • Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptahæfni • Skilningur á framleiðsluferlum • Lausnamiðuð hugsun • Æskilegt að viðkomandi geti haft samskipti við erlenda starfsmenn á öðru máli en íslensku Skaginn 3X óskar eftir að ráða yfirverkstjóra hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi. Þorgeir & Ellert hf. er hluti af Skaginn 3X ásamt systurfyrirtækjunum Skaganum hf. og 3X Technology ehf. Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði mynda saman Skaginn 3X. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavinina að finna víðsvegar um heiminn. Tæknistigið er hátt og starfsmenn eru rúmlega 300 talsins í starfsstöðvum sem eru um 14.000 m2. Starfsemin hefur vaxið mjög síðustu misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning. Skaginn 3X hlaut nýlega Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands. Fasteignasalar óskast Lögheimili Eignamiðlun auglýsir eftir löggiltum fasteignasölum eða nema í löggildingu fasteignasala til starfa. Mjög góð verkefni framundan bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi. Góð aðstaða og góðir tekjumöguleikar fyrir heiðarlegt og duglegt fólk. Reynsla af sölu fasteigna og hreint sakavottorð skilyrði. Umsækjendur sendi ferilskrá á logheimili@logheimili.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur til 03.10.2018. Vinlandsleið 14, Reykjavík - Skólabraut 26, Akranesi Bílstjóri óskast í sendibílaakstur Þjónustulundaður, hraustur, reyklaus og reglusamur. Íslenskumælandi með hreint sakavottorð. Upplýsingar í síma 892 6363 eða á skutlari@gmail.com intellecta.is Komi til þess að stjórnvöld geri breytingar á tekjuskatts- kerfinu er mikilvægt að þær gagnist helst tekjulægstu hóp- um samfélagsins svo og milli- tekjufólki. „Reka á skattkerfið og velferðarkerfi landsins með því hugarfari að fólk greiði inn eftir efnum og taki út eftir þörfum,“ segir í frétt á vef BSRB. Þar er tiltekið að síð- ustu ár hafi verið lögð þung áhersla á að bæta lægstu laun- in í kjarasamningum, en tekju- lægstu hóparnir þó setið eftir. Skerðingar á barnabótum, vaxtabótum og öðrum mikil- vægum jöfnunartækjum hafi gert það af verkum að staða fjölda fólks sé ekki jafn góð og ætla mætti. Bótakerfin verði styrkt BSRB er andvígt því að lækka skatta þeirra sem best- ar hafa tekjurnar. Telur rétt að svigrúm til skattalækkunar verði notað til að bæta stöðu þeirra sem standa höllum fæti. Það megi gera með því að styrkja á nýjan leik barnabóta- og vaxtabótakerfin. Benda megi á að helstu fjárhæðir í vaxtabótakerfinu hafa verið óbreyttar í nærri áratug. Á þeim tíma hafi verðlag hækkað um 22%, laun um 64% og íbúðaverð um 51,5% segir í pistli sem birtist í gær á vef bandalagsins. Húsnæðismál eru gerð að umfjöllunarefni hjá BSRB. Þar segir að miklar hækkanir íbúða- og leiguverðs hafi aukið mjög á ójöfnuð á Íslandi. Fólk sem eigi eigið húsnæði sé nú oft efnaðra en áður enda hafi húsnæðiskostnaður í mörgum tilvikum lækkað hjá þessum hópi vegna lækkunar vaxta og uppgreiðslu lána. Á meðan hafi þeir sem eru að reyna að kaupa sína fyrstu íbúð setið eftir svo og fólk sem leigir hús- næði. Hækkun íbúðaverðs leiði til þess að enn erfiðara en áður er að eignast eigið húsnæði og miklar hækkanir húsaleigu hafa étið upp launahækkanir. Húsnæðisfélög verði efld „Til að bregðast við þessu er nauðsynlegt að halda áfram að efla fasteignafélög, líkt og Bjarg íbúðafélag, sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Einnig þarf að taka næsta skref með því að byggja upp almenn leigufélög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni sem geta leigt þeim sem ekki falla undir þau tekjuviðmið sem leigufélög á borð við Bjarg þurfa að halda sig við. Þá þarf að grípa til markvissra að- gerða til að hjálpa fólki að kaupa sína fyrstu íbúð,“ segir BSRB. sbs@mbl.is Skattalækkanir gagnist tekjulægstu hópunum  BSRB vill nýta svigrúmið  Aðgerða er þörf í húsnæðismálum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Atvinna Fólk greiði inn í skattkerfið eftir efnum og taki út úr því eftir þörf, segir BSRB. Nýlega var Grensásdeild Landspítalans formlega af- hent gjöf frá Svölunum, góð- gerðarfélagi flugfreyja og -þjóna; það er ný Samsung- sjónvarpstæki sem fara á all- ar stofur á legudeild auk 65 tomma sjónvarpstækis sem verður í setustofu. Alls eru þetta 27 tæki. Gjöfin er að verðmæti rúmar tvær millj- ónir króna. Sigríður Guð- mundsdóttir, deildarstjóri hjúkrunar á Grensásdeild, veitti gjöfinni móttöku frá Guðrúnu Ólafsdóttur, for- manni Svalanna. Grensásdeildin er aðal- styrkþegi Svalanna og vorið 2017 voru deildinni færðar ýmsar góðar gjafir; tveir la- zyboy-stólar og þrír sturtu- stólar auk þess sem gefinn var húsbúnaður í setkrók sem útbúinn var á stigapalli á 2. hæð. Hann gerir sjúk- lingum Grensáss kleift að taka á móti gestum í nota- legu umhverfi, þar sem með- al annars er lítill leikkrókur fyrir yngri börnin. Setkrók- urinn kallast Svöluhreiður og hefur verið mikið notað- ur. Andvirði gjafa þessar var tæplega 2,4 milljónir króna. Svölur frá 1974 Svölurnar voru stofnaðar árið 1974 og er tilgangur fé- lagsins að viðhalda kunningsskap og vináttu starfandi og fyrrverandi flugfreyja og flugþjóna og svo að láta eitthvað gott af sér leiða. Félagið hefur frá stofnun styrkt fjöldamörg fyrirtæki jafnt sem einstak- linga, en það styrkir ein- göngu þá sem ekki njóta rík- isaðstoðar. Gefa á Grensás  Svölur leggja lið  Sjónvörp á legudeild  Aðstaða og húsgögn Ljósmynd/Aðsend Rausn Guðrún Ólafsdóttir, til vinstri, formaður Svalanna af- hendir Sigríði Guðmundsdóttur á Grensásdeildinni gjafabréf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.