Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lokunarpóstur Brugðið á leik á reiðskjóta, sem notaður er til
að loka neðri hluta Laugavegarins fyrir bílaumferð.
Meirihluti Reykvíkinga er
verulega jákvæður gagnvart
göngugötum í miðborginni,
samkvæmt nýrri viðhorfs-
könnun Maskínu ehf. fyrir
umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkur. Alls 71% svar-
enda segjast nú jákvæðir
gagnvart göngugötunum en
11% eru neikvæð. Jákvæðnin
eykst eftir því sem fólk fer
oftar á göngugötusvæðið og
eins í síðustu könnun eru
íbúar í Miðborg og Hlíðum
jákvæðastir allra. Ekki er
mikill munur á afstöðu kynja.
Alls telja 77% íbúa að göngu-
göturnar hafi jákvæð áhrif á
mannlífið í miðborginni en
8% telja áhrifin vera nei-
kvæð.
Eftirfarandi götum hefur
verið breytt í göngugötur
undanfarin ár: Laugavegi og
Bankastræti, milli Vatnsstígs
og Þingholtsstrætis. Skóla-
vörðustíg milli Bergstaða-
strætis og Laugavegar. Aust-
urstræti, Veltusundi og
Vallarstræti. Pósthússtræti,
milli Kirkjustrætis og Hafn-
arstrætis.
5% alfarið á móti
Spurðir um tímabil göngu-
gatna, frá 1. maí til 1. októ-
ber, segja tæplega 40% að
tímabilið sé hæfilega langt,
30% vilja lengja tímabilið og
30% vilja stytta það. Mun
fleiri en áður vilja göngu-
götur allt árið eða réttur
fjórðungur svarenda en voru
12% í fyrra. Tæplega 5%
segjast alfarið á móti göngu-
götum, sem er sama hlutfall
og í síðustu könnun.
sbs@mbl.is
Góðar göngugötur
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Helstu verkefni og ábyrgð
Stefnumótun og þróun, m.a. á sviði árangurs,
gæða, aðgengis og öryggis í þjónustu
Leiðtogi við framkvæmd stefnu Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Innleiðing nýjunga og breytinga, s.s.
teymisvinnu og straumlínustjórnunar
Fagleg þróun og starfsþróun
Gæðaeftirlit
Nánari upplýsingar
Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri, s. 513-5000,
svanhvit.jakobsdottir@heilsugaeslan.is
Hæfnikröfur
Viðbótar- eða framhaldsmenntun á sviði
hjúkrunar æskileg
Viðbótarnám í stjórnun kostur
Brennandi áhugi á þróun heilbrigðisþjónustu
Stjórnunarreynsla og reynsla af stefnumótun í
heilsugæslu og/eða annarri heilbrigðisþjónustu
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt
viðmót
Frumkvæði og áræðni
Vilji til að helga sig sýn og gildum
heilsugæslunnar
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita
íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda
og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast
á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar
og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaðurinn
í heilbrigðisþjónustunni þar sem öllum þörfum
!
"
#
heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á.
Gerðar hafa verið breytingar á skipulagi heilsugæslunnar
sem miða að því að auka þjónustu við notendur, nýta
$$
Til að gera þjónustuna markvissari er lagt upp með
teymisvinnu sem grunnstef í starfseminni, ásamt
innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar.
Í breyttu skipulagi fær starfsfólk aukið sjálfstæði til að
móta starfsemi og til að útfæra þjónustu sem mætir
þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur
samkvæmt mælingum og mati.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins samanstendur af
15 heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi,
% !
&'($
)
Heimahjúkrun HH, Þroska- og hegðunarstöð,
Göngudeild sóttvarna og hælisleitenda,
Geðheilsuteymum, ásamt skrifstofu. Hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins starfa um 700 manns.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra
hjúkrunar. Leitað er eftir kraftmiklum, metnaðarfullum og farsælum stjórnanda.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar situr í framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2018.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
#
$!
*
+
' #
$! '
hjúkrunar sem er aðgengilegt á vef Embættis landlæknis og fæst einnig á skrifstofu Embættis landlæknis og setja það
$ 2 '
((4
+
#
umsækjandi hefur gegnt auk upplýsinga um vísinda- og ritstörf og önnur störf, eftir því sem við á. Allar umsóknir eru sendar til
stöðunefndar hjá Embætti landlæknis.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningar í laus störf. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Sækja skal um á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins www.heilsugaeslan.is undir laus störf eða á Starfatorgi
www.starfatorg.is.
Skoðunarmaður óskast
Óskum eftir að ráða starfsmann til að skoða hífi- og fallvarnarbúnað
Umsóknarfrestur er til og með 14. september.
Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á netfangið hjortur@isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell.is
Starfslýsing
■ Leitum að starfskrafti til að sjá um vettvangs
skoðanir og samsetningar á hífi- og fallvarnarbúnaði
■ Leitum að starfskrafti sem er tilbúinn að afla sér
menntunar og réttinda til að framkvæma slíkar
skoðanir og útgáfu vottorða
■ Starfið felst m.a. í að setja saman nýjan hífibúnað
sem og skoðanir og viðgerðir á notuðum búnaði
■ Utanumhald um skoðunarskýrslur
■ Almenn lagerstörf
Hæfniskröfur
■ Reynsla af notkun á hífi- og
fallvarnarbúnaði er kostur
■ Góð ensku kunnátta, bæði í ritun og tali.
Réttindakennsla og námskeið fara fram á ensku.
■ Reynsla og þekking á notkun Office hugbúnaðar
■ Iðnmenntun er kostur
■ Lyftarapróf og vélaréttindi æskileg
Sveitarfélög landsins eiga von
á sendingu á næstu dögum frá
NTÍ (Náttúruhamfaratrygg-
ingu Íslands), áður Viðlaga-
tryggingu. Er þetta í tilefni
lagabreyt-
inga og nýs
nafns
stofnunar-
innar. Um
er að ræða
bókina
Náttúruvá
á Íslandi
sem kom
út fyrir
nokkrum
árum á
vegum stofnunarinnar og Há-
skólaútgáfunnar. Margir
helstu sérfræðingar landsins á
sviði náttúruvár nærri 60
manns, lögðu til efni í bókina
sem er tæplega 800 síður með
um 1.000 ljósmyndum og skýr-
ingarmyndum. Þar er fjallað
ítarlega um rannsóknir, eld-
virkni og jarðskjálfta sem
valdið hafa Íslendingum þung-
um búsifjum gegnum tíðina.
Þörf á stöðugri uppfærslu
„Okkur fannst tilvalið að
leggja okkar af mörkum til að
koma á framfæri til sveitar-
félaganna áhugaverðum og
fræðandi upplýsingum um
náttúruvá á Íslandi á sama
tíma og við vekjum athygli á
þeim breytingum sem tóku
gildi 1. júlí sl. á lögum um
starfsemi stofnunarinnar,“
segir Hulda Ragnheiður
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Náttúruhamfaratryggingar
Íslands, í tilkynningu. Og bætt
er við:
„Stofnunin hefur fengið nýtt
nafn sem er meira lýsandi fyrir
starfsemina og einnig hefur
verið gerð breyting á eigin
áhættu sem skerpir áherslur í
starfseminni þannig að NTÍ
hafi ríkara hlutverk í alvarleg-
um tjónsatburðum en komi
minna að í tilvikum þar sem
um óverulegt tjón er að ræða.“
Stórbættar skráningar
Jafnframt er tækifæri nú
notað til að minna á skyldur
sveitarfélaga landsins um að
senda uppfærðar og réttar
upplýsingar til NTÍ um vá-
tryggingarverðmæti mann-
virkja sem þeim er skylt að vá-
tryggja. Heimsóknir í öll
sveitarfélög landsins á árunum
2016 til 2017 leiddu í ljós að
töluvert vantaði upp á að
skyldutryggingar hafnar-
mannvirkja, opinberra veitu-
mannvirkja og fleiri eigna
sveitarfélaga væru í takt við
gildandi lög og reglur í sumum
sveitarfélögum.
„Þessar heimsóknir skiluðu
stórbættum skráningum á vá-
tryggðum eignum en það má
alltaf gera betur, enda eru
þessar eignir sveitarfélaganna
í stöðugri uppbyggingu og þró-
un. Eftir kosningarnar í vor er
líka víða komið nýtt fólk við
stjórnvölinn sem við viljum ná
til,“ segir Hulda Ragnheiður.
Morgunblaðið/Ernir
Grímsvatnagos Árið er 2011. Hér sjást björgunarsveitarmenn
inni í miðjum öskumekki við Skaftárskála á Klaustri.
Ítarlegar upplýsingar
Náttúruvá á Íslandi Senda
bók til sveitarfélaganna í landinu
Hulda Ragnheiður
Árnadóttir