Fréttablaðið - 19.10.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.10.2018, Blaðsíða 20
Veðrið var vægast sagt vont og strákarnir orðnir holdvotir á hlaupunum. Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Tíundubekkingarnir Þorsteinn og Oddur hafa verið vinir frá því Oddur flutti frá Hellu á Hvolsvöll í fimmta bekk. Þorsteinn bjó þá í sveit, á Guðnastöðum í Austur-Landeyjum, en flutti reyndar á Hvolsvöll núna í haust. „Við vorum búnir að vera að hugsa um það síðan í sjöunda bekk hvort við gætum ekki hlaupið í skólann einhvern daginn. Svo ákváðum við loksins að láta verða af því núna áður en Þorsteinn flutti upp á Hvolsvöll,“ segir Oddur en bætir við að upphaflega hafi hugmyndinni verið kastað fram í gríni. „En þegar fólk fór að segja að við gætum þetta aldrei, fór okkur virkilega að langa að ná þessu.“ Hvernig leist foreldrum þeirra á hugmyndina? „Þegar við vorum að plana þetta í sjöunda bekk voru þau að segja að það væri hættulegt að hlaupa á þjóðveginum. En svo núna þegar við ákváðum að hlaupa þá sögðu þau bara allt í lagi,“ segir Þorsteinn. Verkefnið frestaðist af ýmsum ástæðum. „Einu sinni vorum við búnir að ákveða að hlaupa á mánudegi en svo tognaði ég í tíu kílómetra hlaupi í skólanum vikuna áður. Þá var gert grín að því að við hefðum ekki hlaupið. En svo hlupum við bara helgina á eftir.“ Mánudagurinn 24. september varð fyrir valinu. Þeir voru ákveðnir í að hlaupa á mánudegi þar sem fyrsti tíminn í skólanum er sund og því sáu þeir fyrir sér að geta hlýjað sér vel í heita pottinum. Á sunnu- deginum var veðurspáin skoðuð og ljóst að ekki yrði blíðviðrinu fyrir að fara. Þeir ákváðu þó að láta slag standa og vöknuðu sjálfir við vekjaraklukku klukkan korter yfir fjögur. „Fyrst átti Oddur reyndar ekki að komast en svo um kvöldið hringdi hann og sagði að hann kæmist. Þá fórum við af stað seint og settum vatnsflöskur út í kant á fimm kíló- metra fresti og fórum svo að sofa um miðnætti,“ lýsir Þorsteinn. Þegar þeir vinir vöknuðu í bítið um morguninn buldi rigningin á húsinu. Þeir klæddu sig í striga- skó, joggingbuxur, innanundir- bol, peysu og vindjakka, og voru í neonlitum vestum til að sjást sem best. Síðan héldu þeir keikir af stað. „Það var mjög vont veður og við vorum orðnir svo blautir á leiðinni að þegar við komum að polli þá hlupum við bara í hann.“ Foreldrar strákanna komu öðru hvoru að kíkja á þá meðan þeir hlupu upp í gegnum sveitina, en fylgdu þeim svo á bíl alla leið á þjóðveginum. Þeir hlupu alla leiðina en stopp- uðu nokkrum sinnum til að fá sér að drekka. Þeir voru um þrjá tíma og 33 mínútur að hlaupa þessa 24,5 kílómetra. Rigningin var í bakið mestan tíma og truflaði þá ekki nema í drykkjarpásunum sem urðu heldur hráslagalegar. En var gaman? „Já, þetta var geðveikt. Fyrstu 14 kílómetrarnir voru sjúklega auð- Skokkuðu 24 km í skólann Tíundu bekkingarnir Oddur Helgi og Þorsteinn Ragnar eru bestu vinir. Vinirnir Þorsteinn Ragnar Guðnason og Oddur Helgi Ólafsson skor- uðu á sjálfa sig í haust og hlupu frá heimili Þor- steins í Austur- Landeyjum, 24,5 km leið í skólann sinn, Hvolsskóla á Hvolsvelli. Þeir létu ekki ausandi rigningu á sig fá. veldir og við vorum bara að spjalla. Þegar við komum upp á þjóðveginn breyttist það. Síðustu 10 kíló- metrarnir tóku svo langan tíma, það var ekki eðlilegt. Síðustu fimm kílómetrana voru fæturnir alveg blýþungir,“ lýsir Oddur. „Þegar við komum í skólann vorum við rosa þreyttir, en samt svo ferskir.“ Þeir voru fegnir því að geta skellt sér í sund við komuna í skólann og stungu sér í heita pottinn til að hlýja sér. Foreldrar þeirra höfðu komið með þurr föt. Þeir vilja ekki viðurkenna að hafa verið mjög þreyttir í skólanum. „Við fórum í alla tíma. Svo fór ég á æfingu í taekwondo og Oddur á söngæfingu. Svo fórum við bara að sofa um hálf ellefu eins og venju- lega.“ Er ætlunin að gera eitthvað þessu líkt aftur? „Já, bara ekki strax,“ segir Oddur og hlær. „Okkur langar að labba Laugaveginn einhvern tíma. Svo erum við alltaf að leita okkur að nýjum áskorunum, og langar til dæmis að tjalda einhvers staðar í vondu veðri í vetur,“ segir Þor- steinn. FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 fyrir húsfélög og sameignir Hljóðdempandi, létt í þrifum og umgengni Stigateppi 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B e R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 1 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 1 F -A A 1 8 2 1 1 F -A 8 D C 2 1 1 F -A 7 A 0 2 1 1 F -A 6 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.