Fréttablaðið - 19.10.2018, Blaðsíða 34
Merkisatburðir
1466 Friðarsamningarnir í Thorn binda enda á þrettán ára
stríðið. Gdansk, Pommern og allt Prússland voru innlimuð í
Pólland, en Þýsku riddararnir fengu að ríkja yfir austurhlut-
anum undir Pólverjum.
1655 Karl 10. Gústaf leggur Kraká undir
sig.
1898 Í Reykjavík er vígt timburhús fyrir
Barnaskóla Reykjavíkur og var það síðar
nefnt Miðbæjarskólinn. Það var byggt úr
timbri vegna ótta manna við að steinhús
kynni að hrynja í jarðskjálfta.
1912 Ítalir ná völdum í Trípólí í Líbýu af Ottómönum.
1918 Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um sambandslaga-
samninginn og er hann samþykktur með rúmlega 90%
atkvæða. Kosningaþátttaka var tæplega 44%. Samningurinn
gekk í gildi þann 1. desember.
1918 Spænska veikin berst til Íslands og geisar fram í
desember. Um 4-500 manns dóu af völdum hennar.
1933 Þjóðverjar segja sig úr Þjóðabandalaginu.
1969 Stytta af Ólafi Thors forsætisráð-
herra eftir Sigurjón Ólafsson er
vígð framan við Ráðherrabústaðinn í
Reykjavík.
1987 Svartur mánudagur – Dow Jones-
vísitalan fellur um 22%.
1994 Nýtt skip, Guðbjörg, kemur til Ísafjarðar. Var það full-
komnasta skip íslenska veiðiflotans og kostaði um hálfan
annan milljarð króna.
2005 Réttarhöldin yfir Saddam Hussein hefjast.
2007 Ný heildarþýðing Biblíunnar kom út, Biblía 21. aldar.
Ég hef gengið með þann draum í maganum í nokkur ár að halda tónleika með lögum Burts Bacharach. Þegar hann svo varð níræður á árinu fannst mér upplagt
að heiðra hann og láta þann draum ræt-
ast í leiðinni,“ segir Kristín.
,,Píanóleikarinn minn, Hlynur Þór
Agnarsson, tók vel í hugmyndina og
samþykkti að taka að sér útsetningar
og hljómsveitarstjórn. Það kom í ljós að
hann hafði einnig gælt við sömu hug-
mynd í nokkur ár. Hlynur er fulltrúi
ungu kynslóðarinnar í bandinu og það
að hann hafi hiklaust samþykkt að taka
þetta að sér sýnir að kynslóðabil þurrk-
ast út þegar góð tónlist er annars vegar,“
segir Kristín enn fremur. Sama var uppi
á teningnum með aðra meðlimi hljóm-
sveitarinnar.
,,Það er valinn maður í hverju rúmi.
Við sáum fljótlega að til að gefa þessum
lögum þá reisn sem þau eiga skilið
þyrftum við að setja saman stórhljóm-
sveit. Auk grunnbands og bakradda er
strengjasveit og blásarasveit. Alls erum
við 19 manns sem flytjum tónlistina og
það var alveg ólýsanlega gefandi ferli að
sjá þetta fæðast."
Hreimur Örn Heimisson er gesta-
söngvari og samþykkti einnig hiklaust
að taka verkið að sér þótt að eigin sögn
sé þetta ekki sú tegund tónlistar sem
hann hefur helst verið að syngja. ,,Hann
fer algjörlega á kostum og tekur lög eins
og Raindrops keep falling on my head og
Arthurs Theme auk dúetts og fleira sem
við tökum saman. Einnig munu hljóma
lög eins og Look of love, Close to you
og I say a little prayer svo einhver séu
nefnd. Það eiga allir allavega eitt uppá-
haldslag eftir Burt; það er bara þannig,“
segir Kristín.
,,Stundum hefur tónlist Burts verið
lýst sem ‘easy listening’. Sjálfur hefur
hann lýst efasemdum um þann stimpil.
Þessi tónlist er allt annað en auðveld
hvorki fyrir söngvara né annað tónlist-
arfólk sem flytur hana. Hin nákvæma
tilhögun laganna, taktbreytingar, setn-
ingaskipan, djassskotinn hljómagangur
ásamt munnfylli af texta gera þessa tón-
list töluverða áskorun fyrir flytjendur.
Ég vil meina að þegar allt gengur upp
þá hljómar það auðvelt. Í þessum laga-
smíðum og textagerð gengur allt upp og
í lögum hans er skýr boðskapur, fegurð
og gleði en líka tregi,“ segir Kristín með
áherslu.
Jafnframt því að syngja og halda tón-
leika rekur Kristín einnig sína eigin
tannlæknastofu í Kópavogi. ,,Ég er oft
spurð að því hvernig það fari saman.
Það fer reyndar alveg ágætlega saman
þó á margan hátt séu þetta ólíkir heimar.
Ég vil meina að við eigum ekki að skil-
greina okkur of þröngt. Ég er söngkona
og tannlæknir og ýmislegt fleira. Það að
ég sinni einu starfi útilokar ekki annað.
Svo framarlega sem maður fylgir hjart-
anu og ræktar hæfileika sína er maður á
réttri leið. Góður maður sagði einu sinni;
‘Don’t die with your music still in you’.
Það hugtak má skilja á ýmsan hátt en
eitt er víst að það ætla ég svo sannarlega
ekki að gera.“
Tónleikarnir eru sem fyrr segir í Saln-
um í Kópavogi föstudaginn 19. október
og hefjast kl. 19.30. Miða má nálgast á
Tix.is, Salurinn.is og í miðasölu Salarins.
stefanthor@frettabladid.is
Syngjandi tannlæknir
heiðrar Burt Bacharach
Kristín Stefánsdóttir, söngkona og tannlæknir, mun stíga á svið í Salnum í Kópavogi í
kvöld ásamt 18 manna hljómsveit og heiðra Burt Bacharach sem varð níræður í maí síð-
astliðnum. Hún segir að það sé ekki auðvelt verk þó að tónlistin sé kölluð easy listening.
Tannlæknirinn syngjandi, Kristín, tekur Bacharach í Salnum. Mynd/SvarT deSign
Saddam Hussein sagðist saklaus á fyrsta
degi réttarhalda yfir honum þennan dag
fyrir tíu árum. Saddam, sem þá hafði
verið steypt af stóli forseta Íraks í innrás
Bandaríkjamanna tveimur árum fyrr,
var erfiður við dómara og réttargæslu-
menn.
Aðaldómari í málinu var Kúrdi að
nafni Rizgar Mohammed Amin og gerði
Saddam honum erfitt fyrir. Er Saddam
var spurður til nafns neitaði hann að
staðfesta nafn sitt. „Hver ert þú? Ég vil
fá að vita hver þú ert,“ spurði Saddam
dómarann og sagðist þar að auki áskilja
sér þann rétt sem forseti Íraks að viður-
kenna ekki lögmæti dómstólsins.
Þegar kallað var til hlés á réttarhaldi
ætlaði Saddam að ganga sjálfur úr
vitnastúkunni en lenti í stympingum við
réttargæslumenn þegar þeir ætluðu að
leiða hann út. Eftir hlé tilkynnti Amin
að réttarhöldunum yrði frestað til
28. nóvember.
Saddam var ákærður fyrir að hafa
fyrirskipað fjöldamorð á 143 sjíamús-
limum í bænum Dujail árið 1982. Var
hann dæmdur til dauða fyrir þann glæp
í nóvember ári síðar og loks hengdur.
Þ ETTA G E R ð I ST : 1 9 . O KTó B E R 2 0 0 5
Réttað yfir Saddam Hussein
Þessi tónlist er allt
annað en auðveld
hvorki fyrir söngvara né annað
tónlistarfólk sem flytur hana.
Saddam var ákærður fyrir að hafa fyrir-
skipað fjöldamorð á sjíamúslimum.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi,
sonur, bróðir og mágur,
Ómar Ingi Friðleifsson
Rauðalæk 41,
lést á líknardeild Landspítalans
laugardaginn 13. október. Útförin fer fram
frá Langholtskirkju föstudaginn 26. október kl. 15.00.
Kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Svala Lind Ægisdóttir
Oliver Ómarsson Arna Björk Óðinsdóttir
Mikael Freyr Oliversson
Ingi Þór Ómarsson
Anice Theodór Chebout
Abraham Amin Chebout
Friðleifur Björnsson Elva Regína Guðbrandsdóttir
Gunnar Þór Friðleifsson Inga Guðmundsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Sigrún Sigurðardóttir
áður til heimilis að Víðilundi 6d,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
9. október. Útför hennar hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fjölskylda hennar þakkar fallegar kveðjur og samhug.
Theodóra Kristjánsdóttir Teitur Björgvinsson
Ingibjörg Unnur Pétursdóttir Eyjólfur Jónsson
ömmu- og langömmubörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
okkar ástkæru
Önnu Guðrúnar
Georgsdóttur
Borgarbraut 65a, Borgarnesi.
Rúnar Ragnarsson Dóra Axelsdóttir
Steinar Ragnarsson
Þóra Ragnarsdóttir Gísli Kristófersson
Jón Georg Ragnarsson Maríanna Garðarsdóttir
Ragnheiður Elín Ragnarsdóttir Björn Yngvi Sigurðsson
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn.
Innilegar þakkir færum við þeim öllum
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts elskulegs bróður okkar,
Haraldar Arnars
Haraldssonar
Stigahlíð 71, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til heimilisfólks og starfsfólks að
Stigahlíð 71.
Sigurður Haraldsson
Þóra Haraldsdóttir
Haukur Már Haraldsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Sighvatsson
frá Ási,
Vestmannaeyjum,
andaðist á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Vestmannaeyjum,
hinn 9. október. Útförin fer fram frá Landakirkju
laugardaginn 20. október klukkan 13.
Sigurlaug Bjarnadóttir Páll Sveinsson
Guðmunda Bjarnadóttir Viðar Elíasson
Sighvatur Bjarnason Ragnhildur Sesselja
Gottskálksdóttir
Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir Halldór Arnarson
Hinrik Örn Bjarnason Anna Jónína Sævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
1 9 . o K T Ó b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r18 T í m A m Ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
1
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
F
-9
6
5
8
2
1
1
F
-9
5
1
C
2
1
1
F
-9
3
E
0
2
1
1
F
-9
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K