Stjarnan - 01.07.1920, Blaðsíða 13

Stjarnan - 01.07.1920, Blaðsíða 13
STJARNAN 109 “Hið fyrsta sem séra Anderson gerði var að spyrja séra Spaulding hvers vegna hann nefndi hinn sjöunda dag hinn igyðinglega hvíldardag. “Af því að hann ásamt hinum boð- orðunum var gefinn Gyðingunum, ” svaraði hann. “Og alt hið gamla lög- mál. var afnumið við krossinn.” “J)að er einmitt þanniig sem eg ætíð hefi skilið þetta atriði,” greip skip- stjórinn fram í fyrir honum. “En eg held að þér munuð ekki trúa því framar þegar þér eruð búnir að heyra alt máli'ð. “Séra Anderson spurði: “Tniið þér þá, séra Spaulding, að það sé ekkert lögmál, sem banni mönnum að stela oig myrða og að börnin séu ekki skyldug til að heyðra föður og móður?” “Séra Spaulding sagði .eitthvað, sem enginn skildi; því hann gat ómögulega útlistað efnið, sem hann fór með, svj séra Anderso11 spurði hann ;enn frem- ur: ‘Bróðir, livað prédikið þér fyrir mönnunum þegar þér uppörfið þá til að ,koma til Kriats. Segið þér ekki að þeir séu syndarar? það er eg sann- færður um að þér gerið. En með því að segja það komið þér í mótsögn við yðar eigin staðhæfingu; því að menn eru syndarar einungis vegna þess að þeir brjóta lömálið. Páll postuli segir, cins og þér munið: “Synd tilreiknast ekki nema löigmál sé til. ” “Skarinn kringum okkur varð æ stærri meðan séra Anderson talaði og séra Spaulding vildi laumast í burtu; en við söigðum allir að hann ætti að leiða samtalið til lykta, fyrst áð hann var sá, sem hafði byrjað. Svo hann gengdi því og stóð kyr. “Nú, bróðir” sagði séra Anderson; ‘þetta hefir alla tíma verið sannleikur. Eina ástæðan til að Adam varð synd- ari vr sú, að hann braut lögmálið. Alla tíð síðan syndafallið hefir synd verið til og alla þesa tíð hefir lögmálið, Guðs löigmál, verið til. þannig hefir það einn ig alla þesisa tíð verið Freisari til að endurleysa mennina frá fyrirdæmingu lögmálsins. Lögmálið, syndin og Frels- arinn, þetta þrent gengur eins og rauð- ur þráður geignum alla ritninguna. ’ “þegar hann var búinn að segja þetta rétti eg honum biblíuna til þess að hann gæti lesið þá texta sem mundu sanna staðhæfingar hans, og hann las mairga texta og .sannaði til fulls alt, em hann hafði sagt. 1. Jóh. 3:4. sýnir ð synd er lagabrot. Róm. 5:13. sýnir að synd gétur ekki átt sér stað þar siem ekkert lögmál e.r til. (Róm. 5:15.) sýnir að Adam syndgaði og Opinb. 13:8. að Kristur hefir verið Frelsari frá upp- hafi veraldar. ” Skipstjórinn tók sína eigin biblíu og las Opinb. 13:8., því það var texti, sem hann engan gaum hafði gefið. “Hérna stendur það að Kristur hafi frá sköpun heimsins verið hið slátraða lamb Guðs. En eg skil ekki til fulls.” “Séra Anderson útiSkýrði það á þann hátt, að mennirnir alla tíð á undan fyr- ir komu Krists í heiminn, höfðu fagn- aðarerindið og urðu hólpnir fyrir trúna á hinn komandi Messias. Hann las Gal. 3;8. og Jóh. 8:56. til að sýna að Abraham þekti Krist og Heb. 11:26. til áð' sýna livað Mósesi gerði. Maður gat. ekki annað en orðið sannfærður. “þar næst sýndi hann fram á, að Kristur var sá, ,sem gaf oss hvíldardag- inn í öndverðu, að það vair Kristur sem kunngerði tíu boðorðin á Síaní og að það var Kristur sem fylgdi ísraelíitum yfir eyðimörkina frá Egyftalandi til

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.