Fréttablaðið - 12.11.2018, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 12.11.2018, Blaðsíða 9
Einu sinni var ég, fimmtán ára, laminn á einu kvöldi á útihátíð þrisvar sinnum af þremur ótengdum, en álíka pöddufullum, mér eldri strákum af engri ástæðu. Maður hristi þetta af sér. Svona var lífið. Það var alltaf verið að lemja einhverja. Guðmundur Steingrímsson Í dag Búnaður í Jaguar E-Pace D150 er m.a.: 10" Touch Pro skjár, símkerfi, 125w Jaguar hljómkerfi, LED- aðaljós með einkennandi dagljósum, 17" álfelgur, íslenskt leiðsögukerfi, rafdrifnir upphitaðir speglar með sjálfvirkri deyfingu og aðkomuljósum, varadekk, neyðarhemlunarbúnaður, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan. jaguarisland.is B ún að ur b íls á m yn d e r fr áb ru g ð in n au g lý st u ve rð i VERÐ FRÁ: 6.290.000 KR. Jaguar E-Pace D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 4 5 4 J a g u a r E - P a c e 5 x 2 0 o k t 2 VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE JAGUAR E-PACE Í gær voru 100 ár liðin frá lokum þeirra stríðsátaka sem Íslendingar kalla í bjartsýni sinni Fyrri heimsstyrjöldina. Upp undir 20 milljón manns létu lífið í þessari fjögurra ára martröð og annar eins fjöldi særðist. Alls börðust um 70 milljón hermenn í stríðinu, mest drengir. Fjölmargar lýsingar eru til af því hversu viður- styggileg hörmung þetta stríð var. Ungir menn með rotnar tennur fastir í skotgröfum, skríðandi í drullu innan um sprengingar. Það er ein af dýpri ráðgátum mann- kynssögunnar hvers vegna svona margir ungir karlmenn, jafnvel unglingar undir lögaldri, buðu sig fram til hermennsku til þess að storma inn á vígvöllinn og drepa hver annan. Ein kenningin er sú að fólk hafi almennt, eftir langvarandi frið í Evrópu, verið búið að gleyma því hvernig stríð færi fram. Önnur kenning er einfaldlega sú að múg- æsing hafi gripið um sig, einhvers konar allsherjar þrýstingur á unga menn í samfélögum Evrópu um að nú skyldu þeir sanna karlmennsku sína. Með því að skjóta hver annan. Oft hefur það verið hlutskipti karlmanna í mannkynssögunni að vera með einum eða öðrum hætti fallbyssufóður. Að ganga í takt við aðra unga menn í einkennis- klæddum massa með byssu á öxl inn í martraðir og dauða. Fyrri heimsstyrjöldin var í raun og veru ein samfelld, markviss tortíming á ungum karlmönnum. Þeim var fórnað í milljónavís í valdatafli sem fáir í raun skilja, ef einhver. Út af hverju var eiginlega þessi heims- styrjöld? Af hverju dóu allir þessir drengir? Karlfrelsisbarátta Það var eitthvað viðeigandi við það að 100 ára afmæli stríðs- lokanna skyldi bera upp á feðradaginn að þessu sinni. Báðir viðburðirnir setja karlmennskuna í brennidepil, með ólíku móti. Feðradagurinn á Íslandi á sér ekki langa sögu. Hann var fyrst haldinn árið 2006. Þá var efnt til ráðstefnu á Nordica, á vegum félagsmála- ráðuneytisins, Jafnréttisstofu og Félags ábyrgra feðra, um feður í samfélagi nútímans og um þátt- töku feðra í fæðingarorlofi. Síðan þá er dagurinn haldinn hátíðlegur annan sunnudag í nóvember ár hvert. Ég fékk knús. En reyndar bara eftir að ég var búinn að tilkynna heimilishaldinu, eins föðurlega og mér er unnt, að feðradagurinn væri. Það var ekki vitað. En hvað um það. Knúsið var gott. Og ég, semsagt, hugsaði um fyrri heims- styrjöldina í leiðinni og allar breytingarnar á veröldinni frá því hún var háð. Ég held að það gleymist stundum hvað jafnréttis- baráttan, kvenfrelsisbaráttan hefur verið mikilvæg fyrir karlmenn líka. Hvað hún hefur gert fyrir okkur feðurna og drengina. Karlmenn eiga ekki að drepa. Þeir þurfa ekki að rjúka í stríð til að sanna karl- mennsku sína. Þeir eiga að ala upp börn. Sinna heimilinu. Skipta um bleyjur. Tala um tilfinningar sínar. Ég held að jafnréttisbaráttan og breytingarnar á veröldinni sem hafa orðið út af henni sé langlík- legust til að koma í veg fyrir að nokkru sinni myndist aftur sú stemmning í Evrópu að ungir karl- menn telji sig almennt knúna til að rjúka í stríð og drepa hver annan. Kvenfrelsisbaráttan hefur þannig orðið karlfrelsisbarátta líka. Barðir menn Saga karlmennskunnar er órjúfan- lega tengd ofbeldi og átökum, þótt vissulega eigi hún sér fallegar og uppbyggilegar hliðar líka eins og hetjudáðir og ósérhlífni. En ég þekki semsagt — held ég að mér sé óhætt að segja — engan karl- mann sem hefur ekki á einhverjum tímapunkti í lífi sínu verið barinn. Þannig er að vera karl. Einu sinni var ég, fimmtán ára, laminn á einu kvöldi á útihátíð þrisvar sinnum af þremur ótengdum, en álíka pöddufullum, mér eldri strákum af engri ástæðu. Maður hristi þetta af sér. Svona var lífið. Það var alltaf verið að lemja einhverja. Ég náði líka í öllum tilvikum að hlaupa burt. Þegar upp er staðið var kvöldið líka gott vegna þess að þarna í fyrsta skipti kyssti mig stelpa. Í lopapeysu á tjaldstæði. Það trompaði barsmíðarnar. Hér er ég auðvitað að bera mig mannalega. Í hreinskilni sagt hefur þetta alltaf setið í mér. Að vera laminn er ekki gaman. Að verða fyrir ofbeldi er niðurlægjandi og trámatísk reynsla sem skilur eftir ör á sálinni. Ég held að mjög margir karlmenn beri slík ör, þótt þeir láti ekki endilega mikið með það. Kem ég þá aftur að hinu. Megi jafnréttisbaráttan halda áfram sem aldrei fyrr og ná nýjum hæðum helst, þar sem mark- miðum beggja kynja er náð, um að búa til veröld þar sem ofbeldi er ekki liðið — hvaða nafni sem það nefnist — og bæði karlar og konur, drengir og stúlkur, geta um frjálst höfuð strokið og þurfa ekki undir nokkrum kringumstæðum að sanna eitthvert bull með því að meiða, lemja eða drepa. Drengir, feður, stríð S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 2 . n ó v e M B e R 2 0 1 8 1 2 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 5 B -8 8 1 8 2 1 5 B -8 6 D C 2 1 5 B -8 5 A 0 2 1 5 B -8 4 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.