Fréttablaðið - 12.11.2018, Síða 9
Einu sinni var ég, fimmtán
ára, laminn á einu kvöldi á
útihátíð þrisvar sinnum af
þremur ótengdum, en álíka
pöddufullum, mér eldri
strákum af engri ástæðu.
Maður hristi þetta af sér.
Svona var lífið. Það var alltaf
verið að lemja einhverja.
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
Búnaður í Jaguar E-Pace D150 er m.a.: 10" Touch Pro skjár, símkerfi, 125w Jaguar hljómkerfi, LED-
aðaljós með einkennandi dagljósum, 17" álfelgur, íslenskt leiðsögukerfi, rafdrifnir upphitaðir speglar
með sjálfvirkri deyfingu og aðkomuljósum, varadekk, neyðarhemlunarbúnaður, bakkmyndavél,
fjarlægðarskynjarar að framan og aftan. jaguarisland.is
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
e
r
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ FRÁ: 6.290.000 KR.
Jaguar E-Pace D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
4
5
4
J
a
g
u
a
r
E
-
P
a
c
e
5
x
2
0
o
k
t
2
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
JAGUAR E-PACE
Í gær voru 100 ár liðin frá lokum þeirra stríðsátaka sem Íslendingar kalla í bjartsýni
sinni Fyrri heimsstyrjöldina. Upp
undir 20 milljón manns létu lífið
í þessari fjögurra ára martröð
og annar eins fjöldi særðist. Alls
börðust um 70 milljón hermenn í
stríðinu, mest drengir. Fjölmargar
lýsingar eru til af því hversu viður-
styggileg hörmung þetta stríð var.
Ungir menn með rotnar tennur
fastir í skotgröfum, skríðandi í
drullu innan um sprengingar. Það
er ein af dýpri ráðgátum mann-
kynssögunnar hvers vegna svona
margir ungir karlmenn, jafnvel
unglingar undir lögaldri, buðu sig
fram til hermennsku til þess að
storma inn á vígvöllinn og drepa
hver annan. Ein kenningin er sú að
fólk hafi almennt, eftir langvarandi
frið í Evrópu, verið búið að gleyma
því hvernig stríð færi fram. Önnur
kenning er einfaldlega sú að múg-
æsing hafi gripið um sig, einhvers
konar allsherjar þrýstingur á unga
menn í samfélögum Evrópu um að
nú skyldu þeir sanna karlmennsku
sína. Með því að skjóta hver annan.
Oft hefur það verið hlutskipti
karlmanna í mannkynssögunni að
vera með einum eða öðrum hætti
fallbyssufóður. Að ganga í takt
við aðra unga menn í einkennis-
klæddum massa með byssu á öxl
inn í martraðir og dauða. Fyrri
heimsstyrjöldin var í raun og veru
ein samfelld, markviss tortíming
á ungum karlmönnum. Þeim var
fórnað í milljónavís í valdatafli
sem fáir í raun skilja, ef einhver. Út
af hverju var eiginlega þessi heims-
styrjöld? Af hverju dóu allir þessir
drengir?
Karlfrelsisbarátta
Það var eitthvað viðeigandi við
það að 100 ára afmæli stríðs-
lokanna skyldi bera upp á
feðradaginn að þessu sinni. Báðir
viðburðirnir setja karlmennskuna
í brennidepil, með ólíku móti.
Feðradagurinn á Íslandi á sér ekki
langa sögu. Hann var fyrst haldinn
árið 2006. Þá var efnt til ráðstefnu
á Nordica, á vegum félagsmála-
ráðuneytisins, Jafnréttisstofu og
Félags ábyrgra feðra, um feður í
samfélagi nútímans og um þátt-
töku feðra í fæðingarorlofi. Síðan
þá er dagurinn haldinn hátíðlegur
annan sunnudag í nóvember ár
hvert.
Ég fékk knús. En reyndar bara
eftir að ég var búinn að tilkynna
heimilishaldinu, eins föðurlega
og mér er unnt, að feðradagurinn
væri. Það var ekki vitað. En hvað
um það. Knúsið var gott. Og ég,
semsagt, hugsaði um fyrri heims-
styrjöldina í leiðinni og allar
breytingarnar á veröldinni frá
því hún var háð. Ég held að það
gleymist stundum hvað jafnréttis-
baráttan, kvenfrelsisbaráttan hefur
verið mikilvæg fyrir karlmenn líka.
Hvað hún hefur gert fyrir okkur
feðurna og drengina. Karlmenn
eiga ekki að drepa. Þeir þurfa ekki
að rjúka í stríð til að sanna karl-
mennsku sína. Þeir eiga að ala upp
börn. Sinna heimilinu. Skipta um
bleyjur. Tala um tilfinningar sínar.
Ég held að jafnréttisbaráttan og
breytingarnar á veröldinni sem
hafa orðið út af henni sé langlík-
legust til að koma í veg fyrir að
nokkru sinni myndist aftur sú
stemmning í Evrópu að ungir karl-
menn telji sig almennt knúna til að
rjúka í stríð og drepa hver annan.
Kvenfrelsisbaráttan hefur þannig
orðið karlfrelsisbarátta líka.
Barðir menn
Saga karlmennskunnar er órjúfan-
lega tengd ofbeldi og átökum, þótt
vissulega eigi hún sér fallegar og
uppbyggilegar hliðar líka eins og
hetjudáðir og ósérhlífni. En ég
þekki semsagt — held ég að mér
sé óhætt að segja — engan karl-
mann sem hefur ekki á einhverjum
tímapunkti í lífi sínu verið barinn.
Þannig er að vera karl. Einu sinni
var ég, fimmtán ára, laminn á einu
kvöldi á útihátíð þrisvar sinnum
af þremur ótengdum, en álíka
pöddufullum, mér eldri strákum
af engri ástæðu. Maður hristi
þetta af sér. Svona var lífið. Það
var alltaf verið að lemja einhverja.
Ég náði líka í öllum tilvikum að
hlaupa burt. Þegar upp er staðið
var kvöldið líka gott vegna þess
að þarna í fyrsta skipti kyssti mig
stelpa. Í lopapeysu á tjaldstæði.
Það trompaði barsmíðarnar.
Hér er ég auðvitað að bera mig
mannalega. Í hreinskilni sagt hefur
þetta alltaf setið í mér. Að vera
laminn er ekki gaman. Að verða
fyrir ofbeldi er niðurlægjandi
og trámatísk reynsla sem skilur
eftir ör á sálinni. Ég held að mjög
margir karlmenn beri slík ör, þótt
þeir láti ekki endilega mikið með
það.
Kem ég þá aftur að hinu. Megi
jafnréttisbaráttan halda áfram
sem aldrei fyrr og ná nýjum
hæðum helst, þar sem mark-
miðum beggja kynja er náð, um
að búa til veröld þar sem ofbeldi
er ekki liðið — hvaða nafni sem
það nefnist — og bæði karlar og
konur, drengir og stúlkur, geta um
frjálst höfuð strokið og þurfa ekki
undir nokkrum kringumstæðum
að sanna eitthvert bull með því að
meiða, lemja eða drepa.
Drengir, feður, stríð
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 2 . n ó v e M B e R 2 0 1 8
1
2
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
B
-8
8
1
8
2
1
5
B
-8
6
D
C
2
1
5
B
-8
5
A
0
2
1
5
B
-8
4
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K