Fréttablaðið - 12.11.2018, Blaðsíða 32
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Edda Kaaber
Reynimel 76, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 8. nóvember á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 13. nóvember kl. 15.00.
Helga Guðnadóttir Helgi Jensson
Garðar Ás Guðnason
Kristín G. Guðnadóttir
barnabörn og langömmubörn.
1793 Jean Sylvain Bailly, fyrsti borgarstjóri Parísar, hálshöggvinn.
Hann varð borgarstjóri eftir byltinguna 1789 en féll síðar í ónáð.
1840 Franski myndhöggvarinn Auguste Rodin er í heiminn borinn.
1927 Leon Trotsky er rekinn úr sovéska Kommúnistaflokknum.
1929 Bandaríska leikkonan Grace Kelly fæðist.
1956 Marokkó, Súdan og Túnis ganga í Sameinuðu þjóðirnar.
1967 Síðustu tíu íbúarnir flytja úr Flatey á Skjálfanda og hefur
eyjan verið í eyði síðan. Flestir urðu íbúar Flateyjar árið 1952 þegar
þeir voru 129 talsins.
1974 Rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson deyr á Landspítalanum
í Reykjavík 86 ára að aldri.
1982 Júrí Andropov verður aðalritari sovéska Kommúnistaflokks-
ins og leiðtogi landsins. Hann tók við af Leoníd Brezhnev sem lést
tveimur dögum áður.
1996 Boeing 747 vél sádiarabíska ríkisflugfélagsins og Ilyushin II-
76 vél frá Kasakstan lenda í árekstri í háloftunum nálægt Nýju-Delí
á Indlandi. Allir 349 sem voru um borð í flugvélunum tveimur létu
lífið.
1999 Jarðskjálfti að styrkleika 7,2 ríður yfir norðvesturhluta Tyrk-
lands. Mest varð tjónið í Düzce-héraði en minnst 845 manns létu
lífið og um fimm þúsund slösuðust.
Merkisatburðir
Leikkonan Grace Kelly fæddist á þessum degi. MYND/GETTY
Ég hef nú orðað það þannig að Reykvíkingar alla vega hafi varla tekið eftir því að stríðið var búið. Það var allt lamað hérna út af spænsku veik-inni og engin blöð komu út.
Niður staðan varð sú að blöðin í Reykja-
vík splæstu í sameiginlegan fregnmiða,“
segir Gunnar Þór Bjarnason sagnfræð-
ingur um það hvernig Íslendingar fréttu
af lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Eins og fyrr segir var prentaður sér-
stakur fregnmiði mánudaginn 11. nóv-
ember 1918 þar sem sagt var frá því að
vopnahlé væri komið á og uppreisn væri
hafin í Þýskalandi.
„Seinni stríðsárin, alveg frá 1916, voru
mjög erfiður tími á Íslandi. Fólk kveið
því að þessu myndi ekkert linna strax.
Það var kolaskortur og myrkur á götum í
Reykjavík á kvöldin því menn höfðu ekki
efni á lýsingu,“ segir Gunnar Þór.
Hann bendir líka á að fyrri heims-
styrjöldin hafi haft mikil áhrif á fullveldi
Íslands sem fékkst 1. desember sama ár.
Stríðið hafi fært Ísland fjær Danmörku.
„Íslendingar þurftu svolítið að standa
á eigin fótum og semja um viðskipti við
Breta. Landsstjórnin keypti og leigði skip
og það voru siglingar til Ameríku sem
höfðu ekki verið áður. Þetta var mikið
tímamótaár fyrir Íslendinga. Stríðið
hafði miklu meiri áhrif hér en menn
hafa kannski gert sér grein fyrir því það er
alltaf verið að bera það saman við seinni
heimsstyrjöldina sem hafði auðvitað svo
gríðarleg áhrif.“
Gunnar Þór segir að fyrri heimsstyrj-
öldin hafi í raun gefið tóninn fyrir alla
20. öldina. „Þetta eru auðvitað tímamót í
Evrópu því það verða svo mikil umskipti
og uppstokkun. Það hverfur þarna úr
sögunni hvert heimsveldið á fætur öðru.
Tyrkjaveldi og Austurríki-Ungverja-
land hverfa og Rússar eru úr leik í bili.
Stríðið gekk líka mjög nærri Bretlandi
og Frakklandi þótt þau teldust til sigur-
vegara. Bandaríkin standa því uppi sem
öflugasta veldið þótt þau séu ekki í sömu
yfirburðastöðu og síðar varð.“
Macron varaði við þjóðernishyggju
Emmanuel Macron Frakklandsforseti
hvatti þjóðarleiðtoga til þess að minnast
loka fyrri heimsstyrjaldarinnar með því
að hafna þjóðernishyggju. Þetta sagði
hann í ávarpi í París í gær þar sem þess
var minnst að ein öld er liðin frá lokum
styrjaldarinnar.
Um sjötíu þjóðarleiðtogar gengu að
minnismerki óþekkta hermannsins
undir Sigurboganum þar sem Macron
flutti ávarp sitt. Hann sagði það frábært
að hafa leiðtogana á þessum stað til að
minnast loka styrjaldarinnar en velti
því fyrir sér hvernig ljósmyndanna af
viðburðinum yrði minnst í framtíðinni.
Hvort þær yrðu tákn um frið eða síðasta
augnablik samstöðu áður en ringulreið
tæki yfir í heiminum. Það væri undir
þeim sjálfum komið.
Friðarráðstefna var svo haldin í París
síðdegis í gær þar sem auk Macron tóku
þátt leiðtogar á borð við Angelu Merkel,
kanslara Þýskalands, Vladímír Pútín,
forseta Rússlands, og Tayyip Erdogan,
forseta Tyrklands. Donald Trump Banda-
ríkjaforseti tók hins vegar ekki þátt í ráð-
stefnunni heldur hélt til Bandaríkjanna
að lokinni minningarathöfninni.
Trump var gagnrýndur fyrir að hafa
á laugardaginn hætt við að heimsækja
kirkjugarð fyrir utan París þar sem
bandarískir hermenn sem féllu í styrj-
öldinni hvíla. Ástæðan sem gefin var fyrir
því var slæmt veður en ekki var hægt að
fljúga þyrlunni sem átti að flytja Trump.
Þess í stað heimsótti hann annan kirkju-
garð í gær. sighvatur@frettabladid.is
Reykvíkingar tóku varla
eftir lokum stríðsins
Þess var minnst víða í gær að hundrað ár voru liðin frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Um sjötíu þjóðarleiðtogar komu saman í París til sérstakrar athafnar. Gunnar Þór Bjarna-
son sagnfræðingur segir áhrif styrjaldarinnar á Ísland meiri en menn geri sér grein fyrir.
Emmanuel Macron og Angela Merkel heilsast í París í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
Parísarbúar fagna lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar 11. nóvember 1918 en styrjöldin stóð í rúm fjögur ár. NORDICPHOTOS/GETTY
Flatey á Skjálfanda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 m Á n U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
2
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
B
-8
8
1
8
2
1
5
B
-8
6
D
C
2
1
5
B
-8
5
A
0
2
1
5
B
-8
4
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K