Fréttablaðið - 15.11.2018, Side 2

Fréttablaðið - 15.11.2018, Side 2
Veður NA 13-18 m/s en snýst í suðlæga átt er líður á daginn, fyrst SA-lands. Slydda eða rigning, en snjókoma til fjalla, einkum á austanverðu landinu. sjá síðu 28 Sigurgangan heldur áfram Bene dikt Erl ings son leik stjóri hlaut LUX-kvik mynda verðlaun Evr ópuþings ins fyr ir kvik mynd sína Kona fer í stríð við hátíðlega athöfn í Strassborg í gær. Verðlaunin eru veitt árlega til kvikmyndar sem vekur athygli á mikilvægustu fé lags legu og póli tísku álita efn um okk ar tíma. nordicphotos/EpA lögreglumál Settur saksóknari mun vekja athygli ríkissaksóknara á ábendingum um afdrif Geirfinns og Guðmundar Einarssona sem komið hafa fram á undanförnum árum og vísað hefur verið til embættisins. Samkvæmt svari við fyrirspurn Fréttablaðsins má ætla að form- legt erindi þessa efnis verði afhent ríkissaksóknara á næstu dögum, til þóknanlegrar meðferðar. „Það liggur ekkert fyrir um aðgerðir,“ segir Sigríður Friðjóns- dóttir ríkissaksóknari innt eftir því hvort ákveðið hafi verið að opna nýja rannsókn á mannshvörfunum; öðru þeirra eða báðum. Fréttablaðið greindi frá því fyrr í haust að lögreglan á höfuðborgar- svæðinu liggur undir feldi vegna málsins. Það er hins vegar einungis Guðmundarmálið sem er á forræði þess embættis en Guðmundur hvarf í Hafnarfirði í janúar 1974. Hvarf Geirfinns heyrir hins vegar undir lögregluna á Suðurnesjum og það var lögreglan í Keflavík sem rannsakaði málið á sínum tíma. Þar var málinu lokað um mitt ár 1975 sem óupplýstu mannshvarfi, áður en lögreglan í Reykjavík kallaði eftir gögnum þaðan í janúar 1976, þegar fjöldi fólks var í gæsluvarðhaldi í Síðumúla vegna Guðmundarmáls. „Málinu var lokað hér sem óloknu á sínum tíma og ekki að sjá að það séu neinar viðbótarupplýsingar í því í rauninni,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suður- nesjum. „Þá er þetta mál í rauninni eins og hvert annað mannshvarf og engu lokið í því en ekkert er aðhafst nema nýjar upplýsingar berist.“ Ólafur segir mikið álag á emb- ættinu en gríðarlegan tíma tæki að fara í gegnum öll gögnin til að athuga hvort ástæða sé til að hefja einhverja rannsókn. „Ef við færum í að taka málið allt upp þá þyrftum við í rauninni sér fjárveitingu í málið. Það er ekkert útilokað en ekkert heldur sem við sjáum sem kallar á að gera slíkt,“ segir Ólafur. Hann segir þær upplýsingar sem embættinu hafi borist ekki hafa leitt neitt en að allar upplýsingar séu vel þegnar. adalheidur@frettabladid.is Þyrfti fjárveitingu til að rannsaka Geirfinnsmál Ábendingar um afdrif Guðmundar og Geirfinns Árið 2015 voru tveir menn hand- teknir vegna ábendinga um að þeir ættu aðild að hvarfi Guðmundar Einarssonar. Leiddar hafa verið líkur að því að annar þeirra, Stefán Almarsson, hafi gegn betri vitund bendlað Kristján Viðar og Sævar Marínó við málið í samtölum við lögreglu í því skyni að sleppa betur frá eigin afbrotum. Árið 2016 gaf maður sig fram við lögreglu og bar að hafa séð þrjá borgaralega klædda menn koma á smábáti til hafnar í Vestmanna- eyjum 20. nóvember 1974, daginn eftir að Geirfinnur hvarf í Keflavík. Tveir þeirra hafi leitt þann þriðja á milli sín, og taldi vitnið að þar væri um Geirfinn Einarsson að ræða. dómi hæstaréttar frá 1980 var snúið við í september síðastliðnum eftir ára- tuga baráttu þeirra sem dæmdir voru fyrir hvörfin. FréttAblAðið/sigtryggur Ari Settur saksóknari vekur athygli ríkissaksóknara á ábendingum um afdrif Guðmundar og Geir- finns. Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu liggur undir feldi. Lögreglan á Suðurnesjum segir allar ábendingar vel þegnar. guðmundur Einarsson. geirfinnur Einarsson. samfélag Banksy-mynd í eigu Jóns Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra, var eyðilögð með slípirokk í gærkvöldi en Jón birti myndband af framkvæmd eyðileggingarinnar. Þar sést maður með slípirokk pússa verkið af plöt- unni sem það hafði verið prentað á. Fréttablaðið greindi fyrst frá því að verkið hefði Jón fengið þegar hann var borgarstjóri en strangar reglur gilda um gjafir. Verkið hékk á skrifstofu Jóns í ráðhúsinu en hann tók það með sér heim og þar hékk það þangað til í gær, en þá greindi Jón frá því að hann hefði engan áhuga verkinu lengur, það væri verðlaust. Um útprentað plakat væri að ræða – eftirlíkingu sem hægt væri að fá fyrir smáaura á netinu. Hann ætlaði sér því að farga myndinni. – bg Beitti slípirokk á Banksy Jón gnarr með banksy í bakgrunni á skrifstofu borgarstjóra. FréttAblAðið/gVA umHVerfIsmál Landvernd hefur kvartað til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, vegna bráðabirgðaleyfis sem veitt var laxeldisfyrirtækjum á dögunum. Ekki var gert ráð fyrir að leyfisveitingin færi í umhverfis- mat eða að almenningur og samtök almennings gætu komið sjónar- miðum á framfæri áður en leyfið var veitt. Þetta er að sögn Land- verndar brot á EES-samningnum. Í tilkynningu frá Landvernd segir að um sé að ræða brot á reglum sem eigi uppruna sinn í Árósasamning- um sem Ísland hafi fullgilt. – bg Landvernd kvartar til ESA Eldislax FréttAblAðið/Anton 1 5 . n ó V e m b e r 2 0 1 8 f I m m T u D a g u r2 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a ð I ð 1 5 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 4 -3 8 7 0 2 1 6 4 -3 7 3 4 2 1 6 4 -3 5 F 8 2 1 6 4 -3 4 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.