Fréttablaðið - 15.11.2018, Side 8
Slitastjórn Landsbankans, LBI, hefur
fallið frá dómsmáli gegn fjórum
fyrrverandi bankaráðsmönnum
Landsbankans sem hófst um mán
aðamótin vegna ákvarðana þeirra
í aðdraganda bankahrunsins. Þetta
kemur fram á vef slitastjórnarinnar.
Það eru þau Kjartan Gunnarsson,
Þorgeir Baldursson, Andri Sveins
son og Svafa Grönfeldt. Björgólfi
Guðmundssyni, sem var formaður
bankaráðsins, var ekki stefnt því
hann varð gjaldþrota fljótlega eftir
hrun.
Slitastjórnin mun áfram reka
dómsmál gegn fjórum fyrrverandi
stjórnendum Landsbankans og
tveimur tryggingafélögum vegna
stjórnendaábyrgðar. Hún rak þrjú
dómsmál sem sameinuð voru í
eitt. Þeir fyrrverandi stjórnendur
bankans sem um ræðir eru banka
stjórarnir fyrrverandi Sigurjón Þ.
Árnason og Halldór J. Kristjánsson,
Elín Sigfúsdóttir, sem var forstöðu
maður fyrirtækjasviðs bankans, og
Jón Þorsteinn Oddleifsson, sem var
yfir fjárstýringu bankans. – hvj
LBI fellur frá dómsmáli
Slitastjórnin mun áfram reka dómsmál
gegn fjórum fyrrverandi stjórnendum
Landsbankans. FréttabLaðið/SteFán
1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U D A G U r8 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
markaðurinn
Uppsöfnuð þörf innlendra fyrir
tækja til verðhækkana gerir það að
verkum að gengisveiking krónunnar
gæti haft meiri og hraðari áhrif á
verðlag en áður, að mati aðalhag
fræðings Kviku banka. Forstjóri Inn
ness, sem er ein af stærstu matvöru
heildverslunum landsins, segir útlit
fyrir verðhækkanir vegna gengis
þróunarinnar. Þá er tvíbent hvaða
áhrif gengið hefur á samningsstöðu
í komandi kjaraviðræðum.
Krónan hefur veikst gagnvart
öllum helstu viðskiptagjaldmiðlum
sínum frá byrjun árs. Nemur veik
ingin 21 prósenti gagnvart Banda
ríkjadal, 15 prósentum gagnvart
breska pundinu og 13 prósentum
gagnvart evrunni.
Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðal
hagfræðingur Kviku banka, segir í
samtali við Markaðinn að gengis
veiking skili sér út í verðlag fremur
hratt undir núverandi aðstæðum.
„Gengisveiking hefur í för með sér
að kaupmáttur landsmanna dregst
saman. Það endurspeglast fyrst og
fremst í því að við finnum beint fyrir
verðhækkunum á öllum innfluttum
vörum sem við kaupum. Verðbólgan
fer því fljótt af stað vegna kostn
aðarhækkana á ákveðnum vöru
flokkum.“
Í þessu samhengi nefnir Kristrún
hugtakið gengisleki sem er mæli
kvarði á hversu hröð og hversu mikil
áhrif gengið hefur á verðbólgu. Áhrif
gengisins á verðbólgu hafi jafnan
verið 30 prósent og þeirra hafi gætt
með eins og hálfs til tveggja ára töf.
„Hraði slíkra áhrifa er háður efna
hagslegum aðstæðum hverju sinni.
Við erum að koma út úr tímabili þar
sem seljendur hafa ekki treyst sér til
þess að hækka verð í nokkurn tíma.
Samkeppni frá bæði erlendum stór
fyrirtækjum og netverslunum hefur
gert það að verkum að mörg innlend
fyrirtæki hafa uppsafnaða hækkun
arþörf sem er að vissu leyti ótengd
gengisveikingunni,“ segir Kristrún.
„Það er líklegt að mörg fyrirtæki
muni nýta tækifærið til að hækka
verð almennilega og þannig verða
gengisáhrifin meiri en ella vegna
þeirrar spennu sem nú er í hag
kerfinu.“
Hækkanir í kortunum
Eins og greint var frá í Markaðinum
hækkaði Innnes verð til viðskipta
vina sinna í október. Um var að
ræða fjögurra prósenta hækkun á
vörum sem eru keyptar til landsins
í evrum, fimm prósenta hækkun á
vörum sem keyptar eru í pundum
og sex prósenta hækkun í Banda
ríkjadölum.
Magnús Óli Ólafsson, forstjóri
Innness og formaður Félags atvinnu
rekenda, segir frekari verðhækk
Gengislekinn meiri og hraðari en áður
Gengisveiking krónunnar gæti haft meiri og hraðari áhrif á verðlag að mati hagfræðings þar sem innlend fyrirtæki hafa uppsafnaða
þörf fyrir verðhækkanir. Spennan í hagkerfinu magni gengisáhrifin. Forstjóri heildsölunnar Innness segir útlit fyrir verðhækkanir.
Hagfræðingur Kviku segir gengisveikingu geta skilað sér hratt út í verðlagið undir núverandi aðstæðum.
200
150
100
50
100
80
60
anir í kortunum ef fram heldur
sem horfir. „Gengisþróunin virðist
vera í eina átt og hún mun leiða til
frekari verðhækkana. Verðhækkun
Innness í október var til að mynda
aðeins brot af þeirri gengisveikingu
sem hefur átt sér stað á síðustu mán
uðum. Það er enn uppsöfnuð þörf
til að hækka verðin, aðallega vegna
gengisins en einnig vegna kostnað
arhækkana sem einskorðast ekki við
laun. Við sjáum á reikningunum að
allur kostnaður er að hækka,“ segir
Magnús Óli í samtali við Markaðinn.
tvíbent áhrif á kjaraviðræður
Ekki er útséð með hvaða hætti veik
ara gengi krónunnar mun hafa áhrif
á kjaraviðræðurnar í vetur, að sögn
Kristrúnar.
„Annars vegar mætti segja að
veiking krónunnar dragi úr svigrúmi
til launahækkana í þeim skilningi
að það er meiri hætta á verðbólgu
og því minna svigrúm til þess að
ráðast í miklar launahækkanir sem
kynda undir verðbólgu. Hins vegar
dregur veikingin úr kaupmætti og
setur þá sem sitja við borðið fyrir
hönd verkalýðshreyfingarinnar í þá
erfiðu stöðu að þurfa að vinna upp
meiri kaupmátt en ella,“ segir hún.
Eins sé hægt að horfa á gengis
styrkingu þannig að hún hífi upp
kaupmátt og dragi þannig úr launa
kröfum en hins vegar þannig að hún
geti leitt til þess að launþegar upplifi
að verðbólgusvigrúmið sé meira og
geri því kröfu um meiri launahækk
anir en ella. Sú hafi verið raunin í
kjaraviðræðunum árið 2015.
thorsteinn@frettabladid.is
✿ Þróun brent-hráolíuverðs frá áramótum
✿ Þróun gengis helstu viðskiptagjaldmiðla krónunnar
jan ’18 –
ágúst ’18
jan. ’18 –
ágúst ’18
september ’18
september ’18
október ’18
október ’18
nóvember ’18
nóvember ’18
Styrking Bandaríkja-
dals dempar áhrif
olíuverðslækkunar
Hækkun olíuverðs frá ársbyrjun
er nær gengin til baka eftir
lækkunarhrinu á síðustu vikum
og stendur verðið á tunnu nú í
67 Bandaríkjadölum. Í fyrradag
lækkaði verðið um sjö prósent
sem var mesta verðlækkun á
Brent-hráolíu í þrjú ár.
„Lækkun olíuverðs hefur
jákvæð áhrif, sérstaklega hvað
varðar rekstur flugfélaganna. Hin
hliðin er sú að olían er verð-
lögð í dollar sem hefur verið að
styrkjast verulega, meira heldur
en evran gagnvart krónunni.
Þetta þýðir að við finnum ekki
eins mikið fyrir þessari lækkun
og ef við værum dollaraþjóð,“
segir Kristrún.
Þá vegur bensínverð ekki
mikið í verðbólgumælingum
og segir Kristrún að sumir vilji
meina að olíuverð hafi meiri
áhrif á verðbólguvæntingar en
verðbólgu vegna þess að fólk
haldi að olían vegi meira en hún
gerir í raun. „Það er takmörkuð
verðvitund um margar vörur
en allir vita hvað bensínlítrinn
kostar. Það getur haft jákvæð
áhrif á verðbólguvæntingar
þegar olíuverð lækkar sem aftur
hefur jákvæð áhrif á verðbólgu
til lengri tíma.“
Það er líklegt að
mörg fyrirtæki
muni nýta tækifærið til að
hækka verð almennilega.
Kristrún Frostadóttir,
aðalhagfræðingur
Kviku banka
Magnús Óli
Ólafsson,
forstjóri innness.
Veikning krónu frá áramótum gagnvart: USD 21%, GBP 16%, EUR 13%
n GbP n eUr n USD
Lágmarkstilboð í tólf prósenta
hlut sem Landsbankinn býður til
sölu í Eyri Invest, kjölfestuhlut
hafa Marels, er 80 prósent af eigin
fé fyrirtækisins. Miðað er við eigið
fé Eyris hinn 30. júní að teknu til
liti til breytinga sem einkum varða
verðbreytingar á Marel, breytinga
á gengi evru gagnvart krónu, fjár
magnsliðum og áætluðum rekstrar
kostnaði. Þetta kemur fram í
útboðsskilmálum Landsbankans.
Eignir Eyris námu 663 millj
ónum evra í sumar og eiginfjár
hlutfallið var 69,5 prósent. Eigið
fé fjár festingar félagsins var því
461 milljón evra í sumar, eða um
65 milljarðar króna. Ef tólf pró
senta hlutur í Eyri verður seldur
á bókfærðu eigið fé nemur virði
hans tæplega átta milljörðum
króna. Standi fjárfestum til boða
20 prósenta afsláttur lækkar verðið
í rúmlega sex milljarða.
Fram hefur komið í Fréttablaðinu
að bankinn bjóði til sölu, í heild
eða hluta, allt að 12,1 prósents hlut
í Eyri. Tilboðsfrestur rennur út á
hádegi miðvikudaginn 28. nóvem
ber. Fjármálaeftirlitið hefur frá
því um miðjan september sektað
Landsbankann um hálfa milljón
króna á dag til þess að knýja á um
að bankinn selji 22 prósenta hlut
sinn í Eyri Invest. Í svari bankans við
fyrirspurn Markaðarins kom fram
að bankinn hefði lengi reynt að
selja bréfin í Eyri Invest og ákvörðun
Fjármálaeftirlitsins gerði það enn
brýnna en áður.
Eyrir á einnig 43,4 prósenta hlut
í Eyri Sprotum, sem fjárfestir í
nýsköpunarfyrirtækjum, og þriðj
ungshlut í Efni Media, sem selur
vörur og þjónustu í gegnum netið
og samfélagsmiðla.
Stærstu hlut haf ar Eyr is In vest
eru Lands bank inn með 22 pró
sent, Þórður Magnús son stjórn ar
formaður með 19 prósent og Árni
Odd ur Þórðar son, son ur hans og
for stjóri Mar els, með 16 prósenta
hlut. – hvj
Lágmarkstilboð 80 prósent af eigin fé
Lilja björk
einarsdóttir,
bankastjóri
Landsbankans.
1
5
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
4
-7
3
B
0
2
1
6
4
-7
2
7
4
2
1
6
4
-7
1
3
8
2
1
6
4
-6
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K