Stjarnan - 01.03.1926, Blaðsíða 10

Stjarnan - 01.03.1926, Blaðsíða 10
S T J A R N / +2 ('FramhJ MeÖ þessum hætti hvarflaÖi hugur trú Lawrence fram, og aftur um viðburöi liðins tíma. Stundum var hún komin aftur heim i kæra húsið sitt, stundum var hún meÖ Harry á Frakklandi og stundum hjá frú Brooks. Alt þetta virt- ist líkt löngum draumi, sæla hlandin sorg. Klukkan 9 varö hún þess vör, a8 hún hnaut niÖur að nálinni sinni, og af því aö frú Brooks kóm ekki aftur, þá réÖ hún af að ganga til rekkju. Morguninn eftir bætust enn fleiri ný- lundur viÖ leyndardóminn, sem frá Lawrence átti fram úr aÖ ráða. Hún var snemma á fótum og varð hissa á því, að hún hitti þar frú Brooks; var hún ekki klædd venjuleum hversdags- ibúningi,\ heldur var hún búin hinum bezta “sunnudagsbúningi”. “Nú veit eg, að eitthyað meira hlýt- ur að vera fólgið í þessú en hún hefir sagt mér,” sagði frú Lawrence með sjálfri sér, “eg vildi eg vissi, hvað það er.” Hún skildi Ödu eftir hjá Zarítu og kastaði kveðju á frú Broo'ks og gekk niður á torgið. En alla leiðina niður- eftir vakti sú spurning í huga hennar, hví frú Brooks væri svona búin á laug- ardagsmorgni. “Ada komdu 0g hjálpaðu mér til að flysja þessar kartöflur.” “Mig langar ekki til þess', mamma,” svaraði hún tafarlítið. Frú Lawrence starði. Hún er að koma frá 'búðarferð sinni, og var að flýta sér að reiða fram morgunverðinn. Ada hjálpaði henni eins og hún gat; enda var færsla hennar í fyrsta bragði líka það, sem mamma hennar ætti ekki von á. “Hvað kemur til, að hjálpfúsa telpan mín færðist undan i fyrstu?” spurði hún forviða. “Nú, mamma, Zaríta sagði mér, að eg skyldi ekki gera það.” “Zaríta! Hvað hefir hún verið að segja þér í morgun?” “Ó, hún sagði mér margt! Hún sýndi mér inndæla myndabó'k, sem var full af hundum, köttum og öpurn, og 'hún á svo stóra brúðu, mamma.” “En hvað á það skylt við það, að þú vilt ekki hjálpa mér til að flysja kart- öflurnar?” tók frúin fram í. “Nú, mamma, eg fór með það, sem eg saumaði síðast og sýndi henni. Hún S'agði það væri inndælt; en svo þegar eg ætlaði að fara að sauma meira, þá sagði hún, að það væri rangt af mér að gera það ?” “Gerði hún það? Hvers vegna?” “Ó. hún sagði, að hún saumaði aldrei á laugardögum.” “Jæja,” sagði frúin og hugsaði með sér og bar öll hin nýjustu atvik saman, “stúlkan er lík móður sinni, hún vill ekk- ert vinna á laugardögum. Hvað skyldi ])að eiga að þýða?” Síðan sagði hún: “En komdu, barn mitt, sagði Zaríta þér ekki, hvers vegn hún vildi ekki sauma á laugardögum ?”

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.