Stjarnan - 01.03.1926, Blaðsíða 15

Stjarnan - 01.03.1926, Blaðsíða 15
STJARNAN 47 / TJARNAN kemur út mánaSarlega. Útgefenuur: The Western Canada Union Conference S.D.A. Stjarnan kost- ar $1.50 um áriS í Canada, Bandarikj- unum og á íslandi. (Borgist fyrirframj. Ritstjóri og ráSsmaSur : DAVÍD GUÐBRANDSSON. Skrifistofa: 306 Sherbrooke St.. WinnipeK. Man. Phone: B-1708 Næsta stimar verður stór sýning haldin í borginni Píladelfíu í minningu sjálfstæðisyfirlýsingarinnar, sem undir- rituÖ var fyrir hundraö og fimtiu árum. Þaö eru nú liðin átta ár síðan Danmörk seldi Bandaríkjunum Vesturheimseyjar sínar. Fengu Danir $300.00 fyrir ekr- una af landi, sem1 á friðartímum er ein- ungis $20.00 virði. Alla tíð síðan þræla- striðið, höfðu Bandarikin reynt að kaupa þessar eyjar. Akkerið, sem Kolumbus notaði á flag- skipi sínu “Santa Maria”, er nú eign “Chicago Historical Society”. í rústun- um í borginni Navidad á Santo Domin- go fundu menn tveimur öldum eftir að Kolumbus var þar, lista yfir það, sem hann sjálfur hafði ritað niður, og meðal annars var þetta akkeri nefnt. Dr. Alej- andro Llenas fann það eftir langa leit. Er það níu fet á hæð og vigtar meira en fjögur þúsund pund. Hefir það verið sent til Chicago. Samkvæmt manntali, sem tekið var 5. nóvember s'iðastliðinn, eru nú 3,386,274 íbúar í Danmörku. í Kaupmannahöfn eru 586,000 íbúar. Þetta er einungis 900 fleiri en í fyrra. Þegar maður tek- ur til greina hinn feykilega útflutning, sem nú á sér stað vegna atvinnuleysis- ins, þá stendur sú borg algjörlega í stað. Barnafæðingar fækka í stórum stil sök- um þess, að ólifnaðurinn er á Tsvo háu stigi, að fimta hver manneskja, sem maður mætir á strætunum, hefir einn eða annan af hinum hræðilegu kynferð- issjúkdömum. Margir hugsandi menn í Danmörku eru farnir að verða mjög á- hyggjufullir út af þessu ástandi. Læknir, sem Howard A. Kelly heitir og iheima á í borginni Baltimore, hefir fundið upp rafmagnsnál, til bess að gjöra uppskurði með, í staðinn fyrir að nota hnífa. Yfirburðir rafmagnsnálarinnar eru þeir, að sjúklingnum blæðir bókstaflega ekkert. í borginni Troy er stór verksmiðja, sem framleiðir hestaskeifur. Fyrir nokkru fann kona nokkur upp vél, sem getur búið skeifuna til á þremur mínútum. Verksmiðjan í Troy notar nú þess konar vélar og getur þessvegna framleitt skeif- ur fljótar og ódýrar en aðrar verk- smiðjur. í Norvegi eru nú 2612 fylgjendur kaþólskunnar, i Svíþjóð 4,000, í Dan- mörku ekki færri en 23,000. Frá þess- um löndum fóru 450 manns á fagnaðar- hátíð páfakirkjunnar í Rómaborg árið sem leið. í Berlínarborg á Þýzkalandi drýgðu ekki færri en 76 manns sjálfsmorð í einni viku og í sömu vikunni vo:u einnig gjörðar tólf tilraunir til að taka líf sm, sem mishepnuðust. Um jólin voru ó- venjulega mörg hryðjuverk framin þar í borginni. Svona fer, þegar menn fara að nefna kristindóminn “guðs- pestina”, eins og þar var gjört af miki- um mannfjölda. Vér höfum nú alla árganga Stjörnuiui- ar til sölu með lágu verði. Lisrthafendur eru beðnir um að rita skrifstofunni.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.