Fréttablaðið - 02.01.2019, Blaðsíða 11
LÍ telur hugmyndir um
aukið hlutverk forstjóra heil-
brigðisstofnana óheppilegt
fyrirkomulag. Gæta þurfi
þess að þeir hafi ekki bæði
með framkvæmd og eftirlit
að gera eins og skilja má á
drögunum með vanreifun
á hugmynd um umdæmis-
stjórn þeirra.
TRAUST FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI FRÁ 1998
SÍÐUMÚLA 8
108 REYKJAVÍK
SÍMI 568 8410
VEIDIHORNID.IS
Læknafélag Íslands hefur fjallað um drög að Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og telur margt
vera jákvætt sem fram hefur komið,
en þó þurfi málið frekari umfjöll-
unar við. Þeir þættir, sem LÍ telur
að betur megi fara og eða vanti í
stefnudrögin hafa verið tíundaðir í
ítarlegri greinargerð og sendir heil-
brigðisráðuneytinu.
Í fyrsta lagi telur LÍ að eðlilegt og
rétt hefði verið að hafa viðameira og
ítarlegra samráð við hagsmunaaðila
við undirbúning þessarar stefnu-
mótunar. Þá er miður að ekkert
samráð virðist hafa verið haft við
veitendur sérhæfðrar heilbrigðis-
þjónustu utan sjúkrahúsa og stefnu-
mörkun um þann hluta heilbrigðis-
kerfisins of takmarkaður að mati LÍ
og þarfnist frekari skoðunar.
Í heilbrigðisstefnuna vantar
ákvæði um að öll þjónusta innan
heilbrigðiskerfisins sem greidd er
af opinberum aðilum skuli byggjast
á gagnreyndum fræðum. Umönnun
sem veitt er án þess að til hafi komið
sjúkdómsgreining og stofnað hafi
verið til viðeigandi meðferðar af
hálfu læknis er ógnun við gæði og
öryggi heilbrigðis þjónustu, segir í
sameiginlegri yfirlýsingu stærstu
læknasamtaka í Evrópu 2018, um
áherslu á lykilhlutverk lækna í sjúk-
dómgreiningu, meðferð og þverfag-
legri umönnun sjúklinga. Þá hefur
sóttvarnalæknir bent á að ekkert
eða lítið er fjallað um mikilvæg
atriði er snerta varnir og viðbrögð
við alvarlegum smitsjúkdómum
og öðrum sjúkdómum er ógnað
geta almannaheill, þ.m.t. vöktun og
viðbrögð við smitsjúkdómum, sýk-
ingum eða heilsuvá vegna eiturefna
eða mengunar. Í heilbrigðisstefnu
þarf að fjalla um heilbrigðisöryggi
landsmanna.
Ekkert um réttindi sjúklinga
Í drögunum er ekkert ákvæði um
réttindi sjúklinga og sjúkratrygg-
ingarétt. Hvergi er vikið að umboðs-
manni sjúklinga og ekki er fjallað
um sjúklingasamtök. LÍ leggur til
að í stefnuna komi markmið um að
árið 2030 verði búið að stofna heild-
arsjúklingasamtök sem hafi tryggan
faglegan og rekstrarlegan grunn.
LÍ varar við þeim hugmyndum
í heilbrigðisstefnunni að not-
endur heilbrigðisþjónustunnar séu
sviptir réttindum til að velja sér þá
þjónustu sem þeir telja sig þurfa og
þjónustu aðila til að veita hana. LÍ er
ósammála þeim uppgjafartóni sem
er í heilbrigðisstefnunni gagnvart
því verkefni að manna grunnheil-
brigðisþjónustu á landsbyggðinni
og að fullnægjandi geti talist að í
hennar stað komi fjarheilbrigðis-
þjónusta. Ekkert er fjallað um rétt
til öldrunarþjónustu eða endur-
hæfingar.
Einnig vantar í stefnuna umfjöll-
un um velferð og starfsþróun mann-
auðs heilbrigðiskerfisins. Hvergi er
minnst á úrbætur er varða vinnu-
Heilbrigðisstefnan 2030, athugasemdir
Reynir
Arngrímsson
formaður
Læknafélags
Íslands
tilhögun, sveigjanleika í starfi, heil-
brigði og vellíðan starfs manna, né
að stuðlað skuli að mótvægisað-
gerðum gegn álagsþáttum í starfi
og vinnuumhverfi. Alveg vantar
ákvæði um lágmarksöryggisviðmið
í mönnun starfseininga innan heil-
brigðiskerfisins. Ekkert markmið er
um öryggi starfsmanna.
Efling læknisþjónustunnar
lykilatriði
Endurskoðunar á stjórnskipulagi
heilbrigðisstofnana er hvergi getið.
LÍ telur hugmyndir um aukið hlut-
verk forstjóra heilbrigðisstofnana
óheppilegt fyrirkomulag. Gæta
þurfi þess að þeir hafi ekki bæði
með framkvæmd og eftirlit að gera
eins og skilja má á drögunum með
vanreifun á hugmynd um umdæmis-
stjórn þeirra. LÍ leggst gegn því að
stofnað verði til fleiri stjórnunar-
laga í heilbrigðiskerfinu. Bent skal
á að hlutfall heimilislækna er lágt
á Íslandi og þarf að auka. Hlutfall
lækna í starfsmannahópi Land-
spítala er lægra en á sambærilegum
háskólasjúkrahúsum skv. skýrslu
McKinsey og Company frá 2016
um lykilinn að fullnýtingu tæki-
færa Landspítalans, íslenska heil-
brigðiskerfið á krossgötum sem
unnin var fyrir Alþingi. Með fjölgun
lækna verður þjónusta heilbrigðis-
kerfisins skilvirkari, legudögum á
sjúkrahúsum getur fækkað og þörf
á hjúkrunarþjónustu og kostnaður
vegna hennar getur lækkað skv.
skýrslunni. Í drögum að heilbrigðis-
stefnu 2030 er horft fram hjá þessum
mikilvægu ábendingum. Tryggja
þarf óhindrað aðgengi að læknis-
þjónustu og sérhæfðri heilbrigðis-
þjónustu utan sjúkrahúsa. Heil-
brigðisöryggi landsmanna byggir
á stöðugri endurnýjun og nýliðun í
hópi lækna og aðgengi að þjónustu
þeirra og þekkingu.
LÍ treystir því að ábendingar
félagsins um breytingar og viðbætur
við stefnudrögin fái hljómgrunn
þannig að í tillögum að Heilbrigðis-
stefnu til ársins 2030, þegar hún
verður lögð fyrir Alþingi á vorþingi,
verði búið að taka tillit til þeirra.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9
0
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
D
-2
9
E
C
2
1
E
D
-2
8
B
0
2
1
E
D
-2
7
7
4
2
1
E
D
-2
6
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K