Fréttablaðið - 04.01.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Leyfum klukkunni
að segja satt, skrifar Þórlindur
Kjartansson. 11
SPORT Tap í fyrsta leiknum á
æfingamóti í Noregi. 14
TÍMAMÓT Lagið Don’t Stop Me
Now með Queen kom út fyrir
heilum 40 árum í dag. 16
LÍFIÐ Hljómsveitin Hjaltalín
hefur verið þögul síðustu þrjú ár
en í dag breytist það. 26
PLÚS SÉRBLAÐ l FÓLK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
borgarleikhus.is
MBLFBL
,,Áhrifaríkasta Shakespeareuppfærsla sem ég
minnist á íslensku sviði og þó víðar væri leitað.”
,,Ríkharður III er ein af bestu
leiksýningum síðustu ára.”
SAMKEPPNI Íslandspóstur ohf. (ÍSP)
fékk ekki samþykki Samkeppnis-
eftirlitsins (SKE) áður en dóttur-
fyrirtæki þess, ePóstur, var innlimað
í móðurfélagið. Í sátt sem fyrirtækið
gerði við stofnunina í febrúar 2017
segir að ekki megi sameina dóttur-
félög móðurfélaginu nema samþykki
SKE liggi fyrir.
Félagið ePóstur var til umfjöllunar
undir lok síðasta árs. ÍSP lánaði félag-
inu um 300 milljónir króna en lét
lánin ekki bera vexti. Í fyrrnefndri
sátt segir að reikna skuli vexti á lánin
en það hyggst ÍSP ekki gera. Séu lánin
látin bera markaðsvexti má reikna
með að tap ÍSP af ePósti nemi hátt
í hálfan milljarð króna. Samkvæmt
fyrirtækjaskrá var ePóstur afskráð
13. desember síðastliðinn. Sam-
runi félaganna var ákveðinn síðasta
sumar en eftirlitsaðilum með sátt-
inni ekki tilkynnt um fyrirætlunina
fyrr en fjórum mánuðum síðar. Áður
en afstaða þeirra lá fyrir voru félögin
sameinuð.
Í skriflegu svari SKE við fyrirspurn
Fréttablaðsins segir að ekki liggi
fyrir hjá stofnuninni afstaða til þess
hvort aðgerðin sé brot gegn sáttinni.
Því liggi ekki fyrir hvort gripið verði
til aðgerða gagnvart ÍSP. Málið sé í
skoðun.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem SKE
skoðar fyrirtæki sem Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri ÍSP, stýrir en
hann var einnig forstjóri Eimskips
í upphafi þessarar aldar. SKE ákvað
Eimskipi 310 milljóna króna sekt
vegna samkeppnisbrota fyrirtækis-
ins í stjórnartíð Ingimundar.
Fyrir jól samþykkti Alþingi 1,5
milljarða neyðarlánsheimild til ÍSP
vegna bágrar fjárhagsstöðu. Stjórn-
endur segja að tapið megi rekja til
aukningar á „Kínasendingum“ en
viðvarandi taprekstur hefur verið á
dótturfélagi, sem ÍSP hefur lánað, og
ýmsum þáttum samkeppnisrekstrar,
til dæmis sendingum innanlands,
áður en tap af erlendum sendingum
kom til. – jóe
Afskráðu ePóst án samþykkis
Íslandspóstur ohf. afskráði dótturfyrirtæki sitt ePóst þann 13. desember síðastliðinn án samþykkis Sam-
keppniseftirlitsins. Eftirlitið á eftir að taka afstöðu til hvort um brot gegn sátt frá árinu 2017 sé að ræða.
Ingimundur
Sigurpálsson,
forstjóri ÍSP
Nancy Pelosi tók í gær við sem forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Hún hefur verið í eldlínunni í baráttu Demókrata við Donald Trump Bandaríkjaforseta um lokun ríkis
stofnana. Pelosi hefur áður gegnt embætti forseta. Dagurinn í gær var sögulegur að mörgu leyti, meðal annars hafa aldrei fleiri konur tekið sæti á þingi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Halldór
0
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
F
-A
4
6
4
2
1
E
F
-A
3
2
8
2
1
E
F
-A
1
E
C
2
1
E
F
-A
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K